Fara í efni

Skóla- og fræðslunefnd

27. fundur 07. september 2026 kl. 17:00 - 18:30 í Leikskóla Stykkishólms
Nefndarmenn
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir (HH) formaður
  • Jón Sindri Emilsson aðalmaður
  • Kristín Rós Jóhannesdóttir aðalmaður
  • Eva Rut Ellertsdóttir aðalmaður
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir
  • Steinunn Helgadóttir (SH) varamaður
Starfsmenn
  • Sigrún Þórsteinsdóttir (SÞó) skólastjóri leikskóla
  • Þóra Margrét Birgisdóttir skólastjóri grunnskóla
  • Steinunn María Þórsdóttir
  • Veronika G. Sigurvinsdóttir
  • Valbjörn Snær Lilliendahl Aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Stykkishólms
Fundargerð ritaði: Jón Sindri Emilsson ritari
Dagskrá

1.Starfsemi Leikskólans í Stykkishólmi - Greinargerð stjórnenda

Málsnúmer 1910039Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla Leikskólans í Stykkishólmi, stjórnendur fara yfir starfsemi skólans.
Aðstoðarleikskólastjóri gerir grein fyrir skýrlsu stjórnenda.

2.Starfsemi Grunnskólans í Stykkishólmi - Greinargerð stjórnenda

Málsnúmer 1910040Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla Grunnskólans í Stykkishólmi, skólastjóri fer yfir starfsemi skólans.
Skólastjóri gerir grein fyrir skýslu sinni.

3.Starfsemi Tónlistaskóla Stykkishólms - Greinargerð stjórnanda

Málsnúmer 1910043Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla Tónlistarskóla Stykkishólms, skólastjóri fer yfir starfsemi skólans.
Aðstoðarskólastjóri gerir grein fyrir skýrslu sinni.

4.Starfsemi Regnbogalands - skýrsla og yfirferð

Málsnúmer 1910041Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla Regnbogalands, umsjónarmaður fer yfir starfsemina.
Umsjónarmaður Regnbogalands gerir grein fyrir skýrslu sinni.

Opnunartími Regnbogalands tekinn til umræðu. Opið er nú til 15:45 en æskilegt væri að mati nefndar að opnunartími væri lengdur til að koma sem best til móts við foreldra.

5.Starfsumhverfi og líðan í íslenskum skólum

Málsnúmer 2608026Vakta málsnúmer

Lögð fram B.S.-ritgerð sem byggir á rannsókn á vinnuálagi, kulnun og líðan skólastjórnenda í íslenskum skólum.
Lagt fram til kynningar.

6.Markmið skólastofnana á sviði næringar

Málsnúmer 2604007Vakta málsnúmer

Á 44. fundi bæjarráð var lagt til að eftirfarandi aðilar yrðu skipaðir í starfshóp um markmið skólastofnana sveitarfélagsins á sviði næringar:



Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, formaður skóla- og fræðslunefndar, skólastjóri Grunnskólans í Stykkishólmi, skólastjóri Leikskólans í Stykkishólmi, fjármála- og skrifstofustjóri og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi. Jafnframt lagði bæjarráð til að Sæþór H. Þorbergsson ynni með starfshópnum sem utanaðkomandi fagaðili. Einnig er gert er ráð fyrir að starfsfólk í eldhúsum sitji fundi starfshópsins eftir atvikum.



Erindisbréf starfshópsins er lagt fram en það var samþykkt á 45. fundi bæjarráðs.
Lagt fram til kynningar. Skóla- og fræðslunefnd fagnar nýskipuðum starfshóp og umræddri vinnu.

7.Niðurstöður grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) vorið 2026

Málsnúmer 2608027Vakta málsnúmer

Lagðar fram niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar vorið 2026.



Bæjarráð vísaði, á 45. fundi sínum, málinu til umfjöllunar í skóla- og fræðslunefnd.
Skóla- og fræðslunefnd telur heildarmyndina nokkuð jákvæða, sérstaklega hvað varðar skóla, vináttu, fjölskyldu- og öryggismál. Aftur á móti er andleg líðan nemenda, hreyfing og einelti þau atriði sem helst kalla á athygli. Nefndin telur jafnframt mikilvægt að huga að áhrifum mikillar samfélagsmiðlanotkunar ungs fólks á líðan og félagsleg samskipti.

Nefndin hvetur skólastjórnendur til að rýna niðurstöður rannsóknar og nýta þær til að greina styrkleika og áskoranir í skólastarfinu og efla eftir atvikum aðgerðir sem stuðla að bættri líðan, öryggi og heilbrigðum lífsháttum nemenda.

Nefndin telur mikilvægt að niðurstöður rannsóknarinnar verði hafðar til hliðsjónar við áframhaldandi þróun skóla- og forvarnarstarfs.

8.Kosning varaformanns og ritara

Málsnúmer 2211039Vakta málsnúmer

Á 26. fundi skóla- og fræðslunefndar var Jón Sindri Emilsson kjörinn ritari nefndarinnar en kjöri varaformanns til næsta fundar.
Kristín Rós Jóhannesdóttir kjörin varaformaður skóla- og fræðslunefndar.

9.Fundaáætlun skóla- og fræðslunefndar

Málsnúmer 2609004Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fundaáætlun skóla- og færðslunefndar.
Skóla- og fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi fundaáætlun nefndarinnar.

Fundi slitið - kl. 18:30.

Getum við bætt efni síðunnar?