Fara í efni

Breyting á samþykkt og reglum um kosningu í dreifbýlisráð

Málsnúmer 2608036

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 45. fundur - 20.08.2026

Í kjölfar sveitarstjórnarkosninga 2026 þarf að kjósa að nýju fulltrúa í dreifbýlisráð Sveitarfélagsins Stykkishólms.



Núgildandi ákvæði samþykktar um stjórn sveitarfélagsins og reglur nr. 551/2023 um kosningu í dreifbýlisráð voru sett á árunum 2022 og 2023 og miðast að hluta við þáverandi laga- og reglugerðarumhverfi um framkvæmd kosninga og íbúakosninga sveitarfélaga. Frá þeim tíma hafa orðið breytingar á viðeigandi lögum og reglugerðum og því er jafnframt tilefni til að yfirfara og skýra ákvæði um framkvæmd kosningarinnar.



Lögð eru fram til fyrri umræðu drög að breytingu á 36. gr. samþykktar um stjórn sveitarfélagsins, nr. 1130/2022, ásamt drögum að nýjum reglum um kosningu í dreifbýlisráð sem leysa af hólmi reglur nr. 551/2023.
Bæjarráð samþykkir að vísa fyrirliggjandi drögum að breytingu á samþykkt um stjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms og nýjum reglum um kosningu í dreifbýlisráð til síðari umræðu.

Bæjarstjórn - 51. fundur - 27.08.2026

Í kjölfar sveitarstjórnarkosninga 2026 þarf að kjósa að nýju fulltrúa í dreifbýlisráð Sveitarfélagsins Stykkishólms.



Núgildandi ákvæði samþykktar um stjórn sveitarfélagsins og reglur nr. 551/2023 um kosningu í dreifbýlisráð voru sett á árunum 2022 og 2023 og miðast að hluta við þáverandi laga- og reglugerðarumhverfi um framkvæmd kosninga og íbúakosninga sveitarfélaga. Frá þeim tíma hafa orðið breytingar á viðeigandi lögum og reglugerðum og því er jafnframt tilefni til að yfirfara og skýra ákvæði um framkvæmd kosningarinnar.



Lögð eru fram til síðari umræðu drög að breytingu á 36. gr. samþykktar um stjórn sveitarfélagsins, nr. 1130/2022, ásamt drögum að nýjum reglum um kosningu í dreifbýlisráð sem leysa af hólmi reglur nr. 551/2023.



Bæjarráð samþykkti, á 45. fundi sínum, að vísa fyrirliggjandi drögum að breytingu á samþykkt um stjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms og nýjum reglum um kosningu í dreifbýlisráð til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir breytingar á samþykkt um stjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms og nýjar reglur um kosningu í dreifbýlisráð.

Samþykkt samhljóða.

Bæjarráð - 46. fundur - 17.09.2026

Lagður fram tölvupóstur frá innviðaráðuneytinu þar sem fram kemur að breyting á samþykkt um stjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms verði birt í B-deild Stjórnartíðinda 29. september nk. Sama dag verða jafnframt birtar nýjar reglur sveitarfélagsins um kosningu í dreifbýlisráð.



Tekin er til umræðu ákvörðun um kjördag vegna kosningar í dreifbýlisráð.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að boðað verði til beinnar kosningar tveggja aðalmanna og tveggja varamanna í dreifbýlisráð Sveitarfélagsins Stykkishólms og að kjördagur verði laugardaginn 7. nóvember 2026.

Bæjarráð leggur jafnframt til að bæjarstjóra verði falið að annast nauðsynlegar tilkynningar vegna kosningarinnar, þ.m.t. til kjörstjórnar og Þjóðskrár Íslands. Jafnframt verði því beint til kjörstjórnar að Félagsheimilið Skjöldur verði kjörstaður vegna kosningarinnar.

Kjörstjórn annist að öðru leyti undirbúning og framkvæmd kosningarinnar, þ.m.t. endanlega ákvörðun um kjörstað og opnunartíma, í samræmi við samþykkt um stjórn sveitarfélagsins, reglur um kosningu í dreifbýlisráð og reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga.

Bæjarstjórn - 52. fundur - 01.10.2026

Lagður fram tölvupóstur frá innviðaráðuneytinu þar sem fram kemur að breyting á samþykkt um stjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms birtist í B-deild Stjórnartíðinda 29. september. Sama dag voru jafnframt birtar nýjar reglur sveitarfélagsins um kosningu í dreifbýlisráð.



Á 46. fundi bæjarráðs var tekin til umræðu ákvörðun um kjördag vegna kosningar í dreifbýlisráð.



Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að boðað verði til beinnar kosningar tveggja aðalmanna og tveggja varamanna í dreifbýlisráð Sveitarfélagsins Stykkishólms og að kjördagur verði laugardaginn 7. nóvember 2026.



Bæjarráð lagði jafnframt til að bæjarstjóra verði falið að annast nauðsynlegar tilkynningar vegna kosningarinnar, þ.m.t. til kjörstjórnar og Þjóðskrár Íslands. Jafnframt verði því beint til kjörstjórnar að Félagsheimilið Skjöldur verði kjörstaður vegna kosningarinnar.



Kjörstjórn annist að öðru leyti undirbúning og framkvæmd kosningarinnar, þ.m.t. endanlega ákvörðun um kjörstað og opnunartíma, í samræmi við samþykkt um stjórn sveitarfélagsins, reglur um kosningu í dreifbýlisráð og reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni síðunnar?