Miðbæjarskipulag Stykkishólms
Málsnúmer 2609013
Vakta málsnúmerBæjarráð - 46. fundur - 17.09.2026
Lagt er til að hafin verði vinna við að þróa áfram miðbæ Stykkishólms, með sérstakri áherslu á túnið við Laxárstíg og möguleika til uppbyggingar á og við það svæði. Við vinnuna verði lögð áhersla á uppbyggingu sem fellur vel að yfirbragði gömlu húsanna og byggðamynstri gamla bæjarins, styður við þéttingu byggðar og nýtir tækifæri til að efla mannlíf, þjónustu og gæði almenningsrýma í miðbænum.
Lagt er til að vinnuhópi verði falið að móta hugmyndir og tillögur að frekari þróun svæðisins, í samráði við viðkomandi fastanefndir, og leggja þær fyrir bæjarráð.
Lagt er til að vinnuhópi verði falið að móta hugmyndir og tillögur að frekari þróun svæðisins, í samráði við viðkomandi fastanefndir, og leggja þær fyrir bæjarráð.
Bæjarráð samþykkir að skipaður verði þriggja manna vinnuhópur, einskonar spretthópur, sem falið verði að móta forsendur, hugmyndir og tillögur að uppbyggingu á svæðinu, með hliðsjón af meginmarkmiðum miðbæjarskipulags um að styrkja gamla bæjarkjarnann, styðja við þéttingu byggðar og tryggja að ný uppbygging falli vel að yfirbragði og byggðamynstri gamla bæjarins, jafnframt því sem hugað verði að gæðum almenningsrýma og mannlífi í miðbænum. Í hópnum sitji Gerður Kristjánsdóttir (formaður), Jón Ragnar Daðason og Björvin Ólafsson.
Við vinnu sína skal hópurinn leita samráðs við skipulagsnefnd, safna- og menningarmálanefnd og víðar eftir atvikum, þ.m.t. hjá félagasamtökum í sveitarfélaginu, og leggja niðurstöðu vinnunar að því loknu fyrir bæjarráð sem tekur ákvörðun um næstu skref málsins.