Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Breytingar á skipulagslögum
Málsnúmer 2610030Vakta málsnúmer
Til kynningar breytingar á skipulagslögum, en í samráðsgátt, mál nr. S-190/2026, liggja fyrir drög að frumvarpi til laga um breytingar á skipulagslögum nr. 123/2010.
Lagt fram til kynningar.
2.Endurskoðun aðalskipulags
Málsnúmer 2206040Vakta málsnúmer
Málið er tekið til umfjöllunar að beiðni Skarphéðins Berg Steinarssonar, sem gerir nánari grein fyrir málinu á fundinum.
Lagt fram til kynningar.
3.Deiliskipulag hafnarsvæðis
Málsnúmer 1604036Vakta málsnúmer
Á 52. fundi bæjarstjórnar 1. október 2026 var lagt til að hafin yrði vinna við deiliskipulag á hafnarsvæði með það að markmiði að bæta nýtingu og skipulag svæðisins og skapa tækifæri til uppbyggingar, í samvinnu skipulagsnefndar, atvinnu- og nýsköpunarnefndar og hafnarstjórnar. Jafnframt var lagt til að skipaður yrði starfshópur vegna vinnunnar sem ynni með skipulagsfulltrúa að tillögu að nýju deiliskipulagi.
Bæjarráð hafði samþykkt tillöguna á 46. fundi sínum og lagt til við bæjarstjórn að skipaður yrði starfshópur vegna vinnunnar sem ynni með skipulagsfulltrúa að tillögu að nýju deiliskipulagi.
Afgreiðsla bæjarráðs var lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfesti afgreiðslu bæjarráðs og samþykkti að í starfshópinn yrðu skipaðir eftirtaldir:
-formaður hafnarstjórnar,
-formaður atvinnu- og nýsköpunarnefndar,
-formaður skipulagsnefndar,
-fulltrúi tilnefndur af oddvita Í-lista,
-fulltrúi tilnefndur af oddvita H-lista.
Málið er tekið til umfjöllunar að beiðni Skarphéðins Berg Steinarssonar, sem gerir nánari grein fyrir málinu á fundinum.
Bæjarráð hafði samþykkt tillöguna á 46. fundi sínum og lagt til við bæjarstjórn að skipaður yrði starfshópur vegna vinnunnar sem ynni með skipulagsfulltrúa að tillögu að nýju deiliskipulagi.
Afgreiðsla bæjarráðs var lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfesti afgreiðslu bæjarráðs og samþykkti að í starfshópinn yrðu skipaðir eftirtaldir:
-formaður hafnarstjórnar,
-formaður atvinnu- og nýsköpunarnefndar,
-formaður skipulagsnefndar,
-fulltrúi tilnefndur af oddvita Í-lista,
-fulltrúi tilnefndur af oddvita H-lista.
Málið er tekið til umfjöllunar að beiðni Skarphéðins Berg Steinarssonar, sem gerir nánari grein fyrir málinu á fundinum.
Lagt fram til kynningar.
4.Miðbæjarskipulag Stykkishólms
Málsnúmer 2609013Vakta málsnúmer
Á 46. fundi bæjarráðs 17. september 2026 var lagt til að hafin yrði vinna við að þróa áfram miðbæ Stykkishólms, með sérstakri áherslu á túnið við Laxárstíg og möguleika til uppbyggingar á og við það svæði. Við vinnuna yrði lögð áhersla á uppbyggingu sem félli vel að yfirbragði gömlu húsanna og byggðamynstri gamla bæjarins, styddi við þéttingu byggðar og nýtti tækifæri til að efla mannlíf, þjónustu og gæði almenningsrýma í miðbænum.
Lagt var til að vinnuhópi yrði falið að móta hugmyndir og tillögur að frekari þróun svæðisins, í samráði við viðkomandi fastanefndir, og leggja þær fyrir bæjarráð.
Bæjarráð samþykkti að hafin yrði vinna við frekari þróun miðbæjar Stykkishólms, með áherslu á afmarkað svæði við túnið við Laxárstíg (Bankatúnið) og möguleika til uppbyggingar á og við það svæði.
Bæjarráð samþykkti jafnframt að skipaður yrði þriggja manna vinnuhópur, eins konar spretthópur, sem falið yrði að móta forsendur, hugmyndir og tillögur að uppbyggingu á svæðinu, með hliðsjón af meginmarkmiðum miðbæjarskipulags um að styrkja gamla bæjarkjarnann, styðja við þéttingu byggðar og tryggja að ný uppbygging félli vel að yfirbragði og byggðamynstri gamla bæjarins, jafnframt því sem hugað yrði að gæðum almenningsrýma og mannlífi í miðbænum. Í hópinn voru skipuð Gerður Kristjánsdóttir, formaður, Jón Ragnar Daðason og Björvin Ólafsson.
Við vinnu sína skyldi hópurinn leita samráðs við skipulagsnefnd, safna- og menningarmálanefnd og víðar eftir atvikum, þ.m.t. hjá félagasamtökum í sveitarfélaginu, og leggja niðurstöðu vinnunnar að því loknu fyrir bæjarráð, sem tæki ákvörðun um næstu skref málsins.
Málið er tekið til umfjöllunar að beiðni Skarphéðins Berg Steinarssonar, sem gerir nánari grein fyrir málinu á fundinum.
Lagt var til að vinnuhópi yrði falið að móta hugmyndir og tillögur að frekari þróun svæðisins, í samráði við viðkomandi fastanefndir, og leggja þær fyrir bæjarráð.
Bæjarráð samþykkti að hafin yrði vinna við frekari þróun miðbæjar Stykkishólms, með áherslu á afmarkað svæði við túnið við Laxárstíg (Bankatúnið) og möguleika til uppbyggingar á og við það svæði.
Bæjarráð samþykkti jafnframt að skipaður yrði þriggja manna vinnuhópur, eins konar spretthópur, sem falið yrði að móta forsendur, hugmyndir og tillögur að uppbyggingu á svæðinu, með hliðsjón af meginmarkmiðum miðbæjarskipulags um að styrkja gamla bæjarkjarnann, styðja við þéttingu byggðar og tryggja að ný uppbygging félli vel að yfirbragði og byggðamynstri gamla bæjarins, jafnframt því sem hugað yrði að gæðum almenningsrýma og mannlífi í miðbænum. Í hópinn voru skipuð Gerður Kristjánsdóttir, formaður, Jón Ragnar Daðason og Björvin Ólafsson.
Við vinnu sína skyldi hópurinn leita samráðs við skipulagsnefnd, safna- og menningarmálanefnd og víðar eftir atvikum, þ.m.t. hjá félagasamtökum í sveitarfélaginu, og leggja niðurstöðu vinnunnar að því loknu fyrir bæjarráð, sem tæki ákvörðun um næstu skref málsins.
Málið er tekið til umfjöllunar að beiðni Skarphéðins Berg Steinarssonar, sem gerir nánari grein fyrir málinu á fundinum.
Lagt fram til kynningar.
5.Aðalgata 5, breytt notkun
Málsnúmer 2608039Vakta málsnúmer
Á 46. fundi bæjarráðs var gerð bókun varðandi afgreiðslufund byggingarfulltrúa þar sem hann samþykkti áform að breyta bílskúr og geymslu í skrifstofu og íbúð.
Eftirfarandi bókun var gerð:
Bæjarráð óskar eftir að skipulagsfulltrúi og eftir atvikum skipulagsnefnd rýni fyrirliggjandi bókun vegna Aðalgötu 5 og meti hvort fyrirhuguð áform samræmist gildandi deiliskipulagi.
Minnisblað skipulagsfulltrúa lagt fram.

Skipulagsnefnd leggur til að erindið verði kynnt fyrir eigendum Aðalgötu 5. Samkvæmt skilgreiningu um miðsvæði þá er þjónusta á jarðhæð leyfileg en ekki íbúðarhúsnæði.
6.Skúlagata 13
Málsnúmer 2608021Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga að staðsetningu og útlit húss á lóðinni.
Skipulagsnefnd heimilar að haldið verði áfram hönnun byggingar á lóðinni, passa þarf upp á götumyndina. Þegar að því kemur þá skulu eigendur óska eftir heimild til að grenndarkynna aðaluppdrætti skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
7.Fjárhagsáætlun 2027 og til þriggja ára 2028-2030
Málsnúmer 2609021Vakta málsnúmer
Lögð fram til umsagnar fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2027-2030 að lokinni fyrri umræðu í bæjarstjórn 29. október. Óskað er umsagnar nefndarinnar um þá liði áætlunarinnar sem varða málefnasvið nefndarinnar.
Skipulagsnefnd hefur ekki athugasemd við fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
SBS situr hjá við afgreiðslu málsins.
SBS situr hjá við afgreiðslu málsins.
8.Gjaldskrár 2027
Málsnúmer 2610027Vakta málsnúmer
Lagðar fram til umsagnar gjaldskrár sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Bæjarstjórn vísaði þeim til fastanefnda 29. október. Óskað er umsagnar nefndarinnar um áhrif fyrirhugaðra gjalda sem snerta málefnasvið nefndarinnar.
Skipulagsnefnd hefur ekki athugasemd við fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrám sveitarfélagsins 2027.
Fundi slitið - kl. 18:40.