Stórþörungarækt í sjó
Málsnúmer 2609022
Vakta málsnúmerBæjarráð - 46. fundur - 17.09.2026
Lögð fram áform um frumvarp til laga um stórþörungarækt í sjó, mál nr. S-172/2026, sem birt hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 25. september 2026.
Bæjarráð telur mikilvægt að skoðað verði hvernig ný lagaumgjörð um stórþörungarækt geti stutt við frekari atvinnu- og þekkingaruppbyggingu við Breiðafjörð, samhliða því að hugað verði að samspili lagasetningar og strandsvæðisskipulags. Jafnframt verði sérstaklega horft til þess hvort Breiðafjörður geti nýst sem tilrauna- og þekkingarsvæði við fyrstu innleiðingu laganna.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ljúka við umsögn sveitarfélagsins, í samráði við oddvita, á grundvelli framangreindra áherslna og umræðna á fundinum og senda hana til Atvinnuvegaráðuneytisins.