Fara í efni

Bæjarráð

47. fundur 22. október 2026 kl. 15:20 - 19:06 í bæjarráðssal
Nefndarmenn
  • Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir formaður
  • Björn Ásgeir Sumarliðason (BÁS) aðalmaður
  • Sigurður Grétar Jónasson aðalmaður
Starfsmenn
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
  • Gyða Steinsdóttir
Fundargerð ritaði: Gyða Steinsdóttir fjármála- og skrifstofustjóri
Dagskrá

1.Stjórn Náttúrustofu Vesturlands - 6

Málsnúmer 2609007FVakta málsnúmer

Lögð fram 6. fundargerð stjórnar Náttúrustofu Vesturlands.
Lagt fram til kynningar.

2.Æskulýðs- og íþróttanefnd (SH) - 6

Málsnúmer 2609006FVakta málsnúmer

Lögð fram 6. fundargerð æskulýðs- og íþróttanefndar.
Lagt fram til kynningar.

3.Skóla- og fræðslunefnd - 28

Málsnúmer 2610001FVakta málsnúmer

Lögð fram 28. fundargerð skóla- og fræðslunefndar.
Lagt fram til kynningar.

4.Skipulagsnefnd - 45

Málsnúmer 2610002FVakta málsnúmer

Lögð fram 45. fundargerð skipulagsnefndar.
Lagt fram til kynningar.

5.Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 2102003Vakta málsnúmer

Lögð fram nýjasta fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.

6.36 holu golfvöllur

Málsnúmer 2610019Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Golfklúbb Grundarfjaðar þar sem óskað er eftir samstarfi við markaðsetningu golfvalla á öllu Snæfellsnesi.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að kanna möguleika á aðkomu að verkefninu með starfsfólki sveitarfélagsins og tengja forsvarsmenn við Félag atvinnulífs í Stykkishólmi.

7.Úthlutunarreglur búseturéttaríbúða

Málsnúmer 2610007Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað mannauðs- og launafulltrúa Sveitarfélagsins Stykkishólms varðandi úthlutunarreglur búseturéttaríbúða.
Bæjarráð óskar eftir umgögn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga um málið og að það verði í kjölfarið tekið til umfjöllunar og umsagnar í öldungarráði.

8.Styrkumsóknir 2026

Málsnúmer 2610001Vakta málsnúmer

Lagðar fram styrkumsóknir sem bárust á auglýstum umsóknartíma fá 16. september til 8. október.
Bæjarráð vísar málinu til næsta bæjarráðsfundar og leggur til við bæjarstjórn að fela bæjarráði fullnaðarumboð til afgreiðslu málsins.

9.Umsókn um námsstyrk

Málsnúmer 2608043Vakta málsnúmer

Lögð farm umsókn um námsstyrk í samræmi við reglur sveitarfélagsins þar um.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi umsókn um námsstyrk vegna náms veturinn 2026-2027, að uppfylltum skilyrðum reglna sveitarfélagsins um námsstyrki til starfsmanna, sem bæjarráð felur skólastjóra að sannreyna, og með fyrirvara um að skólastjóri meti að fyrirkomulag námsleyfis rúmist innan núverandi mönnunar, fjárheimilda og skipulags skólans og hafi ekki neikvæð áhrif á starfsemi hans.

Bæjarráð felur skólastjóra að ganga frá skriflegum samningi við viðkomandi starfsmann í samræmi við reglurnar að framangreindum skilyrðum uppfylltum.

10.Minnisvarði um Júlíönu Jónsdóttur

Málsnúmer 2610021Vakta málsnúmer

Lagður fram uppdráttur sem sýnir staðsetningu fyrir listaverk til heiðurs Júlíönu skáldkonu sem fyrirhugað er að setja upp á næsta ári.
Bæjarráð fagnar fyrirliggjandi hugmynd að uppsetningu listaverks til heiðurs Júlíönu Jónsdóttur og óskar eftir umsögn safna- og menningarmálanefndar og skipulagsnefndar um málið.

11.Deiliskipulagsbreyting við Reitarveg 10-12

Málsnúmer 2610013Vakta málsnúmer

Lögð fram deiliskipulagsbreyting fyrir Reitarveg 10-12 þar sem óskað er eftir að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Reitarvegar vegna nr. 10-12, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Skipulagsnefnd samþykkti, á 45. fundi sínum, að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Reitarvegar 10-12 skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um að aðrir lóðarhafar hafi ekki áhuga á að taka þátt í breytingum.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar að því gefnu að ekki verði kostnaðarauki hjá sveitarfélaginu vegna gatnagerðar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn Skipavíkur ehf. á sama grunni og fyrirliggjandi samningur við lóðarhafa í Víkurhverfi, varðandi kostnaðaraukningu og aðgengismál

12.Merkjalýsing Kjarrhólmar

Málsnúmer 2610015Vakta málsnúmer

Lögð fram merkjalýsing að uppskiptingu landeignar. Skipt er út einni landspildu úr landi Saura L136954 og fær hún nafnið Kjarrhólmar. Ekki er til deiliskipulag af svæðinu. Merkjalýsingin er unnin skv. aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022. Stærð spildunar er 42.322,4 fermetrar (4,23 ha). Stærð Saura er 136,6 ha og minnkar um 4,23 ha eftir uppskiptingu og verður 132,37 ha.



Skipulagsnefnd samþykkti erindið á 45. fundi sínum.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

13.Víkurhverfi - heildstæð endurskoðun deiliskipulags

Málsnúmer 2111004Vakta málsnúmer

Tekin til umræðu endurskoðun á deiliskipulagi Víkurhverfis. Á 44. fundi nefndarinnar gerði skipulagshöfundur Víkurhverfis grein fyrir núgildandi deiliskipulagi Víkurhverfis og aðra þéttingarreiti í sveitarfélaginu. Skipulagsfulltrúa var falið að vinna málið áfram með skipulagshönnuði.



Skipulagsfulltrúi óskaði á 45. fundi skipulagsnefndar eftir hugmyndum frá nefndinni um breytinguna.



Skipulagsnefnd fól skipulagsfulltrúa til að koma hugmyndum áleiðis til skipulagshöfundar og vinna málið áfram með honum.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

14.Umferðaröryggismál 2026

Málsnúmer 2610014Vakta málsnúmer

Á 45. fundi skipulagsnefndar var lagt fram til afgreiðslu umferðaröryggismál við Borgarbraut.



Skipulagsfulltrúi lagði fram til umræðu umferðaröryggismál við Borgarbraut við Flata- og Víkurhverfi. Enn fremur voru kynnt önnur svæði þar sem tillögur frá VSÓ um hraðatakmarkandi aðgerðir liggja fyrir. Skipulagsnefnd fór yfir málið og fól skipulagsfulltrúa að vinna nánar með umferðaröryggismál almennt í sveitarfélaginu. Samhliða verði útfærsla við Nesveg skoðuð.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

15.Ársreikningur 2025

Málsnúmer 2609025Vakta málsnúmer

Lagður fram ársreikningur Náttúrustofu Vesturlands 2025.

Stjórn Náttúrustofu Vesturlands samþykkti ársreikninginn á 6. fundi sínum.
Framlagt opinbert uppgjör á bókhaldi stofnunar fyrir rekstrarárið 2025. Bæjarráð telur í þessu sambandi vert að stíga skref að áttina að fullri aðlögun sem B-hluta stofnun sveitarfélagsins og samþykkir að rekstrarárið 2027 verði bókfært af hálfu sveitarfélagsins eins og aðrar stofnanir sveitarfélagsins.

16.Sturtuklefar í Íþróttamiðstöð Stykkishólms

Málsnúmer 2604001Vakta málsnúmer

Sturtuklefar á neðri hæð Íþróttamiðstöðvar Stykkishólms voru til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins lagði til að laga vatnsþrýsting og sturtuaðstöðu á neðri hæð íþróttahússins, þar sem vatn dreyfist illa og með litlum þrýstingi.



Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og benti á að í fjárhagsáætlun 2026 er gert ráð fyrir endurbótum á sturtuklefum á neðri hæð. Að öðru leyti vísaði bæjarráð málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.



Ráðist var í endurbætur á sturtuaðstöðunni sl. sumar.



Íþrótta- og tómstundafulltrúi, fór yfir framkvæmdir á neðri hæð íþróttamiðstöðvar á 6. fundi íþrótta- og æskulýðsnefndar. Búið er að laga sturtuaðstöðuna að hluta en þó vantar að laga hirslur og uppsetningu á handklæðarekkum ásamt fleiru. Einnig var rætt um sturtuklefana uppi þar sem gera þarf breytingar á handklæðahirslum. Nefndin skoraði á bæjarstjórn að handklæðahirslur verði settar upp og endurnýjaðar í klefum.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu nefndarinnar en vísar viðhalds- og fjárfestingarverkefnum til umfjöllunar í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.

17.Nýting á tómstundarhúsnæði við Íþróttamiðstöð (Regnbogaland)

Málsnúmer 2604004Vakta málsnúmer

Á 25. fundi skóla- og fræðslunefndar var tekið til umfjöllunar nýting á tómstundarhúsnæði við Íþróttamiðstöð (Regnbogaland) m.t.t. notkunar fyrir eldri nemendur og X-ið.



Rætt var um nýtingu tómstundarhúsnæðisins við Íþróttamiðstöð. Forskóli Tónlistarskóla Stykkishólms nýtir húsnæðið nú til kennslu. Einnig var rætt um mögulega nýtingu húsnæðisins að lokinni starfsemi Regnbogalands, meðal annars fyrir dagopnun félagsmiðstöðvar og/eða starfsemi píludeildar Snæfells.



Skóla- og fræðslunefnd vísaði áframhaldandi umræðu um notkun húsnæðisins til æskulýðs- og íþróttanefndar.



Bæjarráð staðfesti, á 43. fundi sínum, afgreiðslu skóla- og fræðslunefndar.



Íþrótta- og tómstundafulltrúi gerði grein fyrir málinu á 6. fundi æskulýðs- og íþróttanefndar. Ýmsar hugmyndir hafa komið upp varðandi nýtingu á húsnæðinu eftir lokun Regnbogalands. Að mati nefndarinnar yrði þaðfrábær viðbót við annað tómstundastarf ef hægt væri að bjóða upp á dagopnun í X-inu frá 16 - 18 og nýta þar Regnbogaland. Með því væru meiri líkur á því að iðkendur Snæfells komi inn á milli æfinga o.þ.h. Góð mæting hefur verið í félagsmiðstöðina hingað til en alltaf hægt að gera betur.



Nefndin vill vísa hugmyndinni áfram til forsvarsmanna Regnbogalands hvort möguleiki sé á því að samnýta húsið m.t.t. búnaðar sem þarf að forfæra. Möguleiki væri að hafa lágmarksbúnað í Regnbogalandi fyrir félagsmiðstöðina. Ef þetta yrði að veruleika þarf að hafa í huga að Sveitarfélagið þyrfti að ráða tvo starfsmenn í starfið.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu nefndarinnar með þeirri breytingu að hugmyndinni er vísað til skólastjóra til frekari úrvinnslu í samvinnu við sitt starfsfólk og í samráði við íþrótta- og tómstundafulltrúa og vísar að öðru leyti umfjöllun um fjölgun stöðugilda til umfjöllunar í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.

18.Knattspyrnuvellir

Málsnúmer 2505002Vakta málsnúmer

Málefni knattspyrnuvallar og stúku voru tekin til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að auka viðhald á knattspyrnuvelli sveitarfélagsins og einnig að auka viðhald á stúkunni sem stendur við völlinn.



Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og vísaði málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.



Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fór yfir stöðuna á knattspyrnuvellinum á 6. fundi æskulýðs- og íþróttanefndar. Starfsmenn bæjarins hafa sinnt vellinum vel í sumar en mikilvægt er að sanda og stinga völlinn til þess að halda honum við. Langstökksgryfjur þarf að passa betur þar sem þær hafa verið nýttar sem sandkassar í sumar. Kaupa þarf læst lok á gryfjurnar til að hlýfa þeim. Þá þyrfti að skoða að setja tartanbraut í fjárhagsáætlun.



Nefndin ræddi um girðinguna sem sett hefur verið í kringum íþróttavöllinn. Að mati nefndar er mikilvægt er að klára að girða frá stúkunni að Aðalgötunni og finna lausn á girðingarmálum við bókasafnið.



Kominn er tími á að huga að stúkunni, gera hana upp og klæða hana. Stúkan er eitt það fyrsta sem blasir við fólki sem keyrir inn í bæinn. Nefndin vill þrýsta á bæjarstjórn að taka upp samtalið við Veitur á ný í sambandi við lagfæringar á stúkunni.
Bæjarráð vísar til fyrri vinnu í þessu sambandi og þeim undirbúningi sem fram hefur farið nú þegar og beinir því til Veitna að hraða þeirri undirbúningsvinnu og að ráðast í endurbætur á mannvirkinu á árinu 2027 í samstarfi við sveitarfélagið.

19.Leikvellir í Stykkishólmi

Málsnúmer 2604003Vakta málsnúmer

Leikvellir og leiktæki í Stykkishólmi voru tekin til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að fara í úrbætur á leikvöllum í sveitarfélaginu, með það að leiðarljósi að hafa leikvellina fjölbreytta og aðgengilega.



Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og vísaði málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.



Æskulýðs- og íþróttanefnda vildi, á 6. fundi sínum, þrýsta á bæjarstjórn að hefja uppbyggingu og viðhalda leikvöllum betur í samræmi við þá grunnvinnu sem hefur átt sér stað varðandi þetta mál. Lagt er til að rýnt verði í skýrslu sem unnin var í samráði við íbúasamráðsverkefnið varðandi leikvelli og æfingastöðvar á Grensásnum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma því á framfæri við þjónustumiðstöð að viðhalda leikvöllum til samræmis við fyrirliggjandi skýrslu en lýsir að sama skapi ánægju með þá vinnu sem fram hefur farið á leikvöllum sveitarfélagsins. Varðandi viðhalds- og fjárfestingarverkefnum er þeim vísað til umfjöllunar í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.

20.Bekkir í Stykkishólmi

Málsnúmer 2609003Vakta málsnúmer

Lögð fram samantekt sem unnin var af Landmótun varðandi staðsetningu núverandi bekkja og tillögur að nýjum bekkjum í bænum. Mælst er til þess að fínni bekkir verði í miðbænum og með u.þ.b. 150 metra millibili.



Íþrótta- og tómstundafulltrúi gerði grein fyrir málinu á 6. fundi æskulýðs- og íþróttanefndar. Nefndin fór yfir samantekt Landmótunar. Heiðrún Edda, nefndarmaður æskulýðs- og íþróttanefndar, kynnti hugmyndir sínar um staðsetningar bekkja í bænum. Nefndin tók vel í hugmyndir Heiðrúnar og vill koma fyrirliggjandi ábendingum á framfæri til bæjarstjórnar.
Bæjarráð þakkar æskulýðs- og íþróttanefnd fyrir sína vinnu og felur skipulagsfulltrúa að vinna verkefnið áfram.

21.Beiðni um umfjöllun og endurskoðun ákvörðunar

Málsnúmer 2610008Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi til skóla- og fræðslunefndar þar sem óskað er eftir umfjöllun nefndarinnar og endurskoðun ákvörðunar Tónlistarskóla Stykkishólms um synjun á námsumsókn.



Skóla- og fræðslunefnd tók málið til umfjöllunar á 28. fundi sínum og tók undir að markmið Tónlistarskóla Stykkishólms skuli ávallt vera að bjóða eins mörgum nemendum og unnt er hverju sinni upp á tónlistarnám.



Að fengnum útskýringum skólastjórnenda hvatti nefndin stjórnendur til að leita allra leiða til að vinna á biðlista fyrir forskóla 1.



Einnig ítrekaði skóla- og fræðslunefnd mikilvægi þess að umsóknargögn séu skýr og umsóknarfrestur tilgreindur í auglýsingum skólans.



Lögð er einnig fram greinargerð skólastjóra vegna málsins.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skóla- og fræðslunefndar og fagnar frumkvæði skólastjóra við að finna lausn á málinu.

22.Dreifbýlisráð Sveitarfélagsins Stykkishólms - kosning

Málsnúmer 2610026Vakta málsnúmer

Lögð fram kjörskrá vegna kosninga í dreifbýlisráð sem fram fara laugardaginn 7. nóvember nk.
Lögð fram kjörskrá Sveitarfélagsins Stykkishólms fyrir vegna kosningu í dreifbýlisráð sem fer fram laugardaginn 7. nóvember 2026, sbr. lög nr. 138/2011 og reglugerð um íbúakosnignar sveitarfélaga nr. 922/2023. Á kjörskrá eru 62 einstaklingar.

Bæjarráð staðfestir framlagða kjörskrá og veitir bæjarstjóra umboð til að undirrita hana, yfirfara og staðfesta breytingar sem kunna að verða gerðar á kjörskránni fram til kosninga í samræmi við III kafla laga nr. 5/1998, um íbúakosningar.

23.Gjaldskrá fyrir geymslusvæði Sveitarfélagsins Stykkishólms - Endurskoðun

Málsnúmer 2610017Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að nýjum reglum fyrir geymslusvæði sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir nýjar reglur fyrir geymslusvæði og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja þær, með áorðnum breytingum.

24.Erindi frá Aftanskin

Málsnúmer 2609026Vakta málsnúmer

Lagt fram að nýju erindi frá Aftanskin, félagi eldri borgara í Stykkishólmi, þar sem félagið lýsir áhyggjum vegna stöðu húsnæðismála aldraðara í sveitarfélaginu.



Bæjarstjórn þakkaði, á 52. fundi sínum Aftanskin, félagi eldri borgara í Stykkishólmi, fyrir erindið. Bæjarstjórn benti á mikilvægi áframhaldandi uppbyggingar og þróunar Höfðaborgar í samræmi við stefnumörkun sveitarfélagsins, meðal annars með fjölgun íbúða fyrir eldra fólk. Jafnframt lagði bæjarstjórn áherslu á að húsnæðisúrræði mæti fjölbreyttum þörfum eldra fólks og stuðli að öryggi, félagslegum tengslum og virkni. Bæjarstjórn vísaði málinu til nánari umfjöllunar í bæjarráði og eftir atvikum öðrum fastanefndum sveitarfélagsins.
Bæjarráð þakkar Hönnu Jónsdóttur, fulltrúa Aftanskins, fyrir greinargóða yfirferð á fundinum.

Bæjarráð tekur jákvætt í þær hugmyndir sem fram koma í erindi Aftanskins um frekari nýtingu Höfðaborgar fyrir eldra fólk og vísar erindinu til umsagnar öldungaráðs. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að kanna nánar möguleika og kostnað við þá útfærslu sem fjallað er um í erindinu, með fyrirvara um jákvæða afgreiðslu öldungaráðs.

Bæjarráð hvetur jafnframt öldungaráð til að taka til umfjöllunar önnur úrræði til að mæta fjölbreyttum þörfum eldra fólks í sveitarfélaginu, ekki síst hvað varðar félagslega einangrun, félagsleg tengsl, öryggi og virkni.

25.Lögheimilisskráning fasteignaeigenda í Stykkishólmi

Málsnúmer 2609014Vakta málsnúmer

Tekið til umræðu í bæjarráði staða lögheimilisskráningar í íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu þar sem enginn einstaklingur er skráður með lögheimili og möguleikar á að hvetja viðkomandi fasteignaeigendur til að skrá lögheimili sitt í sveitarfélaginu, enda megi ætla að framangreindir eigendur íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu nýti með ýmsum hætti þá innviði og þjónustu sem sveitarfélagið stendur að og vilji leggja sitt af mörkum til að standa undir þeirri þjónustu og viðhalda góðu þjónustustigi í samfélaginu. Áður hefur sveitarfélagið beint sambærilegri hvatningu til eigenda íbúðarhúsnæðis í Stykkishólmi sem ekki áttu þar lögheimili.



Bæjarráð fól bæjarstjóra, á 46. fundi sínum, að láta taka saman uppfærðar upplýsingar um fjölda íbúðarhúsnæða í sveitarfélaginu þar sem enginn einstaklingur er skráður með lögheimili og vinna drög að bréfi til viðkomandi fasteignaeigenda sem og atvinnurekenda. Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að hún hvetji þá fasteignaeigendur sem eiga sitt annað heimili í Sveitarfélaginu Stykkishólmi, en eru skráðir með lögheimili annars staðar, til að skrá lögheimili sitt í sveitarfélaginu, en með því leggi þeir sitt af mörkum til að standa undir þeim innviðum og þeirri þjónustu sveitarfélagsins sem þeir nýta ásamt öðrum íbúum sveitarfélagsins og taki þannig virkari þátt í að viðhalda góðu þjónustustigi í samfélaginu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar að senda út fyrirliggjandi bréf í samræmi við ákvörðun bæjarstjórnar.
Óskar Hjartarson kom inná fund.

26.Samningur um refaveiðar

Málsnúmer 2401025Vakta málsnúmer

Tekin er til umræðu á vettvangi bæjarráðs staða refa- og minkaveiða í sveitarfélaginu og fyrirkomulag veiðanna. Málið hefur áður verið til umfjöllunar í dreifbýlisráði og bæjarráði, m.a. með tilliti til samninga við veiðimenn og mögulegrar setningar reglna um refa- og minkaveiðar innan sveitarfélagsmarka. Óskar Hjartarson, sem komið hefur að refa- og minkaveiðum í sveitarfélaginu, kemur til fundarins og gerir grein fyrir stöðu mála og reynslu af framkvæmd veiðanna.
Bæjarráð þakkar Óskari fyrir greinargóða yfirferð og telur vert að taka mið af þeim sjónarmiðum sem fram komu varðandi refa og minkaveiðar í sveitarfélaginu.
Óskar vék af fundi.

27.Stórþörungarækt í sjó

Málsnúmer 2609022Vakta málsnúmer

Lagt fram frumvarp til laga um stórþörungarækt í sjó, mál nr. S-172/2026, sem birt hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda.



Bæjarráð lagði, á 46. fundi sínum, áherslu á að við áframhaldandi vinnslu málsins verði horft sérstaklega til sérstöðu Breiðafjarðar, þeirrar þekkingar og atvinnustarfsemi sem þegar er til staðar á svæðinu og þeirra tækifæra sem felast í frekari rannsóknum, nýsköpun og verðmætasköpun. Bæjarráð taldi mikilvægt að skoðað verði hvernig ný lagaumgjörð um stórþörungarækt geti stutt við frekari atvinnu- og þekkingaruppbyggingu við Breiðafjörð, samhliða því að hugað verði að samspili lagasetningar og strandsvæðisskipulags. Jafnframt verði sérstaklega horft til þess hvort Breiðafjörður geti nýst sem tilrauna- og þekkingarsvæði við fyrstu innleiðingu laganna. Bæjarráð fól bæjarstjóra að ljúka við umsögn sveitarfélagsins, í samráði við oddvita, á grundvelli framangreindra áherslna og umræðna á fundinum og senda hana til Atvinnuvegaráðuneytisins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að rýna fyrirliggjandi drög að frumvarpi og senda að nýju umsögn um frumvarpið sem byggir á fyrri umsögn sveitarfélagsins.

28.Trúnaðarmál

Málsnúmer 2610006Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags ásamt fylgiskjölum.



Á 28. fundi sínum hvatti skóla- og fræðslunefnd bæjarráð til að afla umsagna frá skólastjóra og Félags-og skólaþjónustu Snæfellinga, vegna málsins og samþykkja fyrirliggjandi umsókn styðji umsagnir málið.
Bæjarráð samþykkir umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags út skólaárið 2026-2027.

29.Trúnaðarmál

Málsnúmer 2610012Vakta málsnúmer

Á 28. fundi skóla- og fræðslunefndar gerði formaður grein fyrir málefni er varðar Grunnskólann í Stykkishólmi.



Skóla- og fræðslunefnd tók málið til umfjöllunar. Formaður gerði grein fyrir þeim upplýsingum sem hún hafði fengið vegna málsins. Vegna þeirra takmörkuðu upplýsinga sem lágu fyrir hjá nefndinni þótti nefndinni a.m.k. ljóst að taka þarf málið alvarlega og taldi brýnt að skólinn vinni hratt og örugglega að viðeigandi lausnum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra fullnaðarumboð til samþykktar fjárhagslegra ráðstafana vegna málsins.

30.Viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2026-2029

Málsnúmer 2610024Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2026-2029.
Viðaukinn sýnir breytingar á flokkun málaflokka og deilda vegna breytingar á reglugerð 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.

Bæjarráð samþykkir viðauka 3 við fjárhagsáætlun 2026-2029 og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja hann.

31.Fjárhagsáætlun 2027 og til þriggja ára áætlun 2028-2030

Málsnúmer 2609021Vakta málsnúmer

Lögð fram fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2027 og til þriggja ára 2028-2030.



Bæjarráð vísaði, á 43. fundi sínum, forsendum til samþykktar í bæjarstjórn. Bæjarstjórn samþykkti, á 51. fundi sínum, fyrirliggjandi forsendur fjárhagsáætlunar 2027 og til þriggja ára 2028-2030.
Bæjarráð samþykkir fyrliggjandi grunn að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2027 og til þriggja ára 2028-2030 og vísar fjárhagsáætlun til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

32.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 2610027Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að gjaldskrám sveitarfélagsins fyrir árið 2027.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá 2027 og vísar henni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Fundi slitið - kl. 19:06.

Getum við bætt efni síðunnar?