Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

16. fundur 26. ágúst 2021 kl. 13:00 Í gegnum fjarfundarbúnað
Nefndarmenn
  • Jökull Helgason byggingarfulltrúi
  • Sigurður Grétar Jónasson (SGJ) starfsmaður tæknisviðs
Fundargerð ritaði: Jökull Helgason Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Skúlagata 26 A - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2108001Vakta málsnúmer

Björgvin Ólafsson sækir um leyfi fyrir breytingum á Skúlagötu 26 A.
Um er að ræða gagngerar endurbætur og breytingar á húsi, innra skipulagi og útliti breytt auk þess sem húsið verður stækkað.
Að utan verður húsið klætt timburklæðningu. Skv. skráningu hjá Þjóðskrá Íslands er byggingarár hússins skráð 1950.
Með erindinu fylgdu aðaluppdrættir frá Plan teiknistofu.
Núverandi stærð hússins skv. skráningu hjá Þjóðskrá Íslands er 72,5 m2 birt stærð/brúttóstærð og 326,5 m3 brúttórúmmál en eftir breytingu verður birt stærð hússins 106 m2 og brúttórúmmál 353,4 m3. Samanlagt flatarmál beggja hæða verður 137 m2.
Mesta mænishæð verður 5,0 m.
Lóðin er 1.833 m2 að stærð skv. lóðarleigusamningi dags. 22.01.2021 en skv. honum er á lóðinni kvöð um að ekki sé leyfð geymsla lausafjármuna á lóðinni.
Núverandi fasteign er skráð sem vörugeymsla og í skattflokki C skv. Þjóðskrá Íslands.
Í gildi er breyting á deiliskipulagi miðbæjar Stykkishólms, sem upphaflega var samþykkt í bæjarstjórn Stykkishólms þann 28.08.2003, fyrir lóðina Skúlagötu 26 A, dags. 10.10.2019, sem samþykkt var í bæjarstjórn Stykkishólms þann 13.02.2020, þar sem gert er ráð fyrir að núverandi hús á lóðinni verði endurbyggt og því breytt í íbúðarhús með möguleika á stækkun byggingarreits við norðvesturhlið hússins og verði hann 3 x 10 metrar eða 30 m2 á einni hæð. Nýtingarhlutfall deiliskipulagsins verður 0,08 sem þýðir að heimilt er að byggja allt að 146,64 m2 íbúðarhús á lóðinni.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, með síðari breytingum og samræmist skipulagsáætlunum svo sem gildandi deiliskipulagi á svæðinu.
Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og að uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.

2.Sæmundarreitur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2108009Vakta málsnúmer

Rakel Þorsteinsdóttir sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóðinni Sæmundarreit 1.
Um er að ræða timburhús á forsteyptum sökkli og forsteyptum kjallaraveggjum og steyptri gólfplötu. Útveggir kjallara eru forsteyptar einingar, en efri hæðir eru timburveggir klæddir borðaklæðningu. Burðarvirki milligólfa er úr timbri. Þak er hefðbundið mænisþak klætt aluzink báruplötum.
Birt flatarmál hússins er 236 m2, brúttóflatarmál 242,2 m2, brúttórúmmál er 727,3 m3.
Hámarkshæð hússins er 7,2 m frá aðalhæð, auk kjallara.
Með erindinu fylgdu aðaluppdrættir frá W7 slf. dags.09.08.2021.

Í gildi er breyting á deiliskipulagi við Reitarveg dags. 27.01.2020, sem samþykkt var í bæjarstjórn Stykkishólms 26.03.2020.
Skipulagsskilmálar eru skv. samþykkt bæjarstjórnar Stykkishólms þann 27.04.2018 en skv. þeim skilmálum heitir umrædd lóð Sæmundarreitur 2 en ekki Sæmundarreitur 1.
Skv. núgildandi deiliskipulagi er lóðin 525 m2 að stærð. Heimilt er að byggja allt að tvær hæðir og ris á lóðinni, hámark 100 m2 að grunnfleti. Hámarks nýtingarhlutfall er 0,5 sem þýðir að byggja má alls 262,5 m2 íbúðarhús innan byggingarreits. Hámarkshæð byggingar má vera allt að 8,0 m frá gólfi aðalhæðar.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, með síðari breytingum og samræmist skipulagsáætlunum svo sem gildandi deiliskipulagi á svæðinu.
Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og að uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.

3.Sæmundarreitur 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2108010Vakta málsnúmer

Ragnheiður Jónasdóttir sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóðinni Sæmundarreit 2.
Um er að ræða timburhús á forsteyptum sökkli og steyptri gólfplötu. Útveggir eru timburveggir klæddir borðaklæðningu. Burðarvirki milligólfs er úr timbri. Þak er hefðbundið mænisþak klætt aluzink báruplötum.
Birt flatarmál hússins er 142 m2, brúttóflatarmál 153,2 m2, brúttórúmmál er 442,5 m3.
Hámarkshæð hússins er 6,68 m frá aðalhæð.
Með erindinu fylgdu aðaluppdrættir frá W7 slf. dags.09.08.2021.

Í gildi er breyting á deiliskipulagi við Reitarveg dags. 27.01.2020, sem samþykkt var í bæjarstjórn Stykkishólms 26.03.2020.
Skipulagsskilmálar eru skv. samþykkt bæjarstjórnar Stykkishólms þann 27.04.2018 en skv. þeim skilmálum heitir umrædd lóð Sæmundarreitur 4 en ekki Sæmundarreitur 2.
Skv. núgildandi deiliskipulagi er lóðin 525 m2 að stærð. Heimilt er að byggja allt að tvær hæðir og ris á lóðinni, hámark 100 m2 að grunnfleti. Hámarks nýtingarhlutfall er 0,5 sem þýðir að byggja má alls 262,5 m2 íbúðarhús innan byggingarreits. Hámarkshæð byggingar má vera allt að 8,0 m frá gólfi aðalhæðar.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, með síðari breytingum og samræmist skipulagsáætlunum svo sem gildandi deiliskipulagi á svæðinu.
Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og að uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?