Hafnarstjórn (SH)
Dagskrá
1.Fundargerðir stjórnar Hafnarsambands Íslands
Málsnúmer 2003028Vakta málsnúmer
Lagðar fram nýjustu fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands.
Lagt fram til kynningar.
2.Fyrirhugaðar framkvæmdir og staða verkefna
Málsnúmer 2404025Vakta málsnúmer
Almenn yfirferð yfir framkvæmdir á hafnarsvæði og stöðu verkefna.
Hafnarvörður gerir grein fyrir viðhaldsframkvæmdum.
3.Gjaldtaka við salerni á hafnarsvæði
Málsnúmer 2208022Vakta málsnúmer
Gjaldtaka fyrir notkun salerna á hafnarsvæði verður tekin upp í sumar. Bæjarstjóri gerir grein fyrir stöðu máls.
Lagt fram til kynningar.
4.Hreinsun og fegrun umhverfis í Skipavík
Málsnúmer 2005059Vakta málsnúmer
Lögð fram tilkynning sveitarfélagsins um tiltekt á hafnarsvæði Skipavíkur í samvinnu við Heilbrigðiseftir Vesturlands. Hafnarvörður gerir grein fyrir stöðu máls.
Hafnarstjórn hvetur til þess að verkefninu verði haldið áfram.
5.Bátar í Maðkavík
Málsnúmer 2208021Vakta málsnúmer
Formaður hafnarstjórnar gerði á fysta fundi hafnarstjórnar grein fyrir hugmyndum um að fjölga bátum í Maðkavík og fegra svæðið sem er vaxandi ferðamannaparadís. Málið er nú tekið til umræðu á ný.
Formaður gerir grein fyrir málinu.
Hafnarstjórn telur að starfsfólk áhaldahúss og vinnuskóla, í samstarfi við starfsfólk eignasjóðs eða hafnarsjóðs, sé vel til þess fallið til að mála og ditta að þeim bátum sem þar liggja í sumar.
Hafnarstjórn telur að starfsfólk áhaldahúss og vinnuskóla, í samstarfi við starfsfólk eignasjóðs eða hafnarsjóðs, sé vel til þess fallið til að mála og ditta að þeim bátum sem þar liggja í sumar.
6.Gjaldtaka bílastæða á hafnarsvæði
Málsnúmer 1909018Vakta málsnúmer
Lögð fram samþykkt um bílastæðasjóð Stykkishólms sem bæjarstjórn samþykkti eftir tvær umræður síðastliðið sumar, ásamt gjaldskrá bílastæðasjóðs. Bæjarstjóri gerir grein fyrir stöðu málsins.
Lagt fram til kynningar.
7.Bréf frá Fiskistofu vegna strandveiða
Málsnúmer 2505007Vakta málsnúmer
lagt fram bréf frá Fiskistofu þar sem vakin er athygli á breytingu á reglugerð um strandveiðar.
Lagt fram til kynningar.
8.Umsókn um stöðuleyfi - Agnið
Málsnúmer 2505005Vakta málsnúmer
Lögð fram umsókn um stöðuleyfi fyrir matarvagninn Agnið á hafnarsvæðinu á Stykkishólmi.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við umbeðið stöðuleyfi og vísar málinu til afgreiðslu hjá byggingarfulltrúa.
9.Umsókn um stöðuleyfi - Fish and Chips
Málsnúmer 2503021Vakta málsnúmer
Lögð fram umsókn um stöðuleyfi fyrir fish and chips matarvagn á hafnarsvæðinu á Stykkishólmi.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við umbeðið stöðuleyfi og vísar málinu til afgreiðslu hjá byggingarfulltrúa.
10.Umsókn um stöðuleyfi - Skrifstofa Ferjuleiða
Málsnúmer 2504026Vakta málsnúmer
Lögð fram umsókn Ferjuleiða ehf. um 20 ft. skrifstofugám við ekjubrú á hafnarsvæði.
Bæjarráð fól, á 32. fundi sínum, hafnarstjórn fullnaðarumboð til ákvörðunar á staðsetningu. Bæjarráð fól jafnframt byggingarfulltrúa afgreiðslu málsins í kjölfarið. Þá hvatti bæjarráð Ferjuleiðir ehf. að finna framtíðarlausn sem fellur betur að umhverfinu.

Hafnarstjórn tekur undir með bæjarráði varðandi mikilvægi þess að finna viðunandi framtíðarlausn.
Hafnarstjórn hefur efasemdir um að sú staðsetning sem lagt er til í erindinu sé heppileg út frá umferðaröryggi og öðrum þáttum miðað við umfang starfsemi hafnarinnar á þessu svæði á sumrin. Hafnarstjórn getur því ekki samþykkt þá staðsetningu.
Hafnarstjórn telur fara best á því að staðsetja skrifstofugám á bílastæðum norðanmegin við Smiðjustíg 3, gegn því að fundið verði sanngjarnt verð fyrir leigu á aðstöðu til viðbótar stöðuleyfisgjald þar sem það liggur fyrir að sveitarfélagið verður af tekjum af þeim bílastæðum sem fer undir skrifstofuhúsnæðið. Einnig þarf fyrirtækið að standa undir þeim kostnaði sem þarf til að nýta megi svæðið. Að öðrum kosti telur hafnarstjórn að nýta þurfi núverandi skilgreint þjónustusvæði undir skrifstofugám. Á þessum forsendum samþykkir hafnarstjórn staðsetningu fyrir stöðuleyfi á hafnarsvæðinu út september 2025.
Hafnarstjórn felur formanni að taka samtal við ferjuleiðir og byggingarfulltrúa varðandi niðurstöðu hafnarstjórnar og eftir atvikum heimild til færslu á skrifstofugám innan svæðanna ef framangreindar staðsetningar eru með öllu óásættanleg með tilliti til ytri þátta.

11.Gjaldskrár 2025
Málsnúmer 2409029Vakta málsnúmer
Lögð fram að nýju gjaldskrá Stykkishólmshafnar 2025 vegna formgalla sem leyndist í gjaldskránni þegar hún var samþykkt á síðasta ári. Lagt er til að b-liður 18 greinar verði felldur út.
Hafnarstjórn samþykkir tillöguna.
Fundi slitið - kl. 19:24.