Safna- og menningarmálanefnd
Dagskrá
1.Norska Húsið - Yfirlit yfir faglegan rekstur
Málsnúmer 1905061Vakta málsnúmer
Forstöðumaður fer yfir starfsemi Norska hússins - BSH, þróun síðustu missera og verkefni fram undan.
Lagt fram til kynningar.
2.Starfsemi Amtsbókasafnsins í Stykkishólmi - skýrsla og yfirferð
Málsnúmer 1910042Vakta málsnúmer
Forstöðumaður fer yfir starfsemi safnsins undanfarin misseri.
Lagt fram til kynningar.
3.Framtíðaráform Vatnasafns
Málsnúmer 2010035Vakta málsnúmer
Lögð fram gögn varðandi framtíðarform og þróun Vatnasafns. Jafnframt er lagt fram minnisblað bæjarstjóra, unnið að beiðni formanns nefndarinnar, um fund bæjarstjóra og forsætisráðherra vegna málsins, ásamt öðrum minnisblöðum og gögnum sem tengjast málinu.
Safna- og menningarmálanefnd lýsti, á 4. fundi sínum, skýrum vilja til að ná samningi um framtíð Vatnasafns í Stykkishólmi. Í því samhengi lagði nefndin ríka áherslu á mikilvægi þess að sveitarfélagið fái viðeigandi stuðning til uppbyggingar menningarinnviða í samræmi við fyrirliggjandi gögn, enda sé slíkur stuðningur lykilatriði í ljósi umfangsmikilla og langtímasamninga sem nú liggja fyrir um rekstur safnsins. Nefndin tók jafnframt undir efni minnisblaðs bæjarstjóra, minnisblað verkefnastjóra menningarmála á Vesturlandi og fundargerð vinnuhóps um framtíðarfyrirkomulag safnsins.
Bæjarráð samþykkti á 24. fundi sínum afgreiðslu nefndarinnar og vísaði málinu áfram til frekari vinnu í vinnuhópi um framtíð Vatnasafns.
Safna- og menningarmálanefnd þakkaði, á 6. fundi sínum, fyrir framlagðar upplýsingar, þar á meðal minnisblað bæjarstjóra, drög að nýjum samningi um Vatnasafnið og minnisblað verkefnastjóra menningarmála á Vesturlandi. Nefndin taldi að framangreind gögn varpi skýru ljósi á bæði menningarlegt gildi Vatnasafnsins og þau umfangsmiklu fjárhagslegu og rekstrarlegu verkefni sem tengjast framtíð safnsins. Nefndin ítrekaði fyrri afstöðu sína, líkt og fram kom á 4. fundi nefndarinnar, um að mikilvægt sé að ná samningi um framtíð Vatnasafnsins í Stykkishólmi. Í því samhengi lagði nefndin þunga áherslu á að sveitarfélagið fái viðeigandi stuðning til uppbyggingar menningarinnviða og til að mæta þeim langtímasamningsskuldbindingum sem fram koma í nýjum samningsdrögum. Nefndin tók undir þau sjónarmið sem fram koma í minnisblaði bæjarstjóra um að utanaðkomandi fjármögnun sé nauðsynleg forsenda þess að unnt sé að gera bindandi samning til lengri tíma. Nefndin tók jafnframt undir að tækifæri til að efla menningartengda ferðaþjónustu og samfélagslega virkni safnsins séu veruleg og vægi þess innan samtímalistar er ómetanlegt, en að viðhaldsþörf húseignarinnar og listaverksins kalli á aðkomu ríkisins, líkt og rakið er í framlögðum gögnum.
Safna- og menningarmálanefnd hvatti til þess að vinnuhópur um framtíð Vatnasafns fundi með annars vegar fulltrúum ríkisins og hins vegar fulltrúum listamannsins til að fara yfir stöðu málsins. Með vísan til framangreinds samþykkti nefndin að vísa málinu áfram til frekari vinnu í vinnuhópi um framtíð Vatnasafns og óskaði eftir að næstu skref í samningsgerð verði lögð fyrir nefndina þegar þau liggja fyrir.
Bæjarráð þakkaði, á 39. fundi sínum, fyrir framlagðar upplýsingar og ítarlega umfjöllun safna- og menningarmálanefndar um framtíðaráform Vatnasafnsins. Bæjarráð tók undir afstöðu nefndarinnar um að utanaðkomandi fjármögnun sé lykilforsenda þess að unnt sé að gera langtímasamning um rekstur safnsins. Bæjarráð staðfesti að öðru leyti afgreiðslu nefndarinnar. Bæjarráð samþykki að vísa málinu áfram til áframhaldandi vinnu starfshóps um framtíð Vatnasafnsins og fól bæjarstjóra jafnframt að fylgja málinu eftir gagnvart ríkinu. Bæjarráð óskaði einnig eftir að starfshópurinn leggi fram tillögur um næstu skref í samningsgerð og aðkomu ríkisins þegar þær liggja fyrir.
Bæjarstjórn staðfesti afgreiðslu bæjarráðs og safna- og menningarmálanefndar á 43. fundi sínum.
Á 40. fundi bæjarráðs var málið tekup upp að nýju í kjölfar samskipta milli sveitarfélagsins og fulltrúa listamannsins varðandi næstu skref málsins með áherslu farsæla lausn á húsnæðisþætti málsins. Fulltrúi Roni Horn mætiti til fundar við bæjarráð.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna áfram að málinu með áherslu farsæla lausn á húsnæðisþætti málsins.

Bæjarstjóri gerir grein fyrir málinu.
Safna- og menningarmálanefnd telur mikilvægt að skoða alla möguleika í stöðunni en vísar frekari umræðu til næsta fundar sem stefnt er að halda fljótlega.

4.Upplýsingaskilti um Walter Mitty á hafnarsvæði
Málsnúmer 1905066Vakta málsnúmer
Fjölmargir ferðamenn gera sér ferð í Stykkishólm til þess að sjá tökustað kvikmyndarinnar The Secret Life of Walter Mitty í bænum og er þar þyrluatriði myndarinnar sérstaklega vinsælt. Ljóst að fjölmargir gestir sýna því áhuga að sjá umhverfið úr myndinni með eigin augum. Fyrir liggur því sú hugmynd að setja upp upplýsingaskilti um kvikmyndina um The Secret Life of Walter Mitty sem tekin var upp m.a. á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi og staðsetja það á horninu hjá grassvæði sem staðsett er hinum meginn við gamla apótekið. Óskar bæjarstjóri eftir afstöðu safna- og menningarmálanefndar til þessarar hugmyndar.
Safna- og menningarmálanefnd tók á 108. fundi sínum vel í þessa hugmynd og staðsetningu á svæðinu til móts við Gamla-Apótekið (t.d. suðvestan megin) og mælir með því að málið verði unnið áfram og jafnframt í því sambandi að huga að öðrum kvikmyndum, auglýsingum eða sjónvarpsþáttum.
Málið tekið til umfjöllunar að nýju.

Safna og menningarmálanefnd leggur til að skoða aðrar lausnir til að miðla kvikmynda- og sjónvarpssögunni í Stykkishólmi en skiltagerð, t.d. með því að koma fyrir QR kóða sem vísar á vefsíðu hjá sveitarfélaginu um þessa sögu. Nefndin leggur áherslu á að skilti eða hverskonar miðlun sem sett verður fram verði fyrirferðarlítil þar sem fyrir er mikill fjöldi skilta í miðbænum/hafnarsvæði.
5.Samkomuhúsið í Stykkishólmi við Aðalgötu 6
Málsnúmer 2006020Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að samningi sveitarfélagsins og Aftanskin, félags eldri borgara í Stykkishólmi, um afnot af Samkomuhúsinu við Aðalgötu 6. Samningurinn er í samræmi við áherslur fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins og miðar að því að koma húsnæðinu í nothæft ástand og í samfélagslega notkun í samstarfi við Aftanskin.
Bæjarráð tók, á 40. fundi sínum, jákvætt í fyrirliggjandi hugmyndir og fól bæjarstjóra að halda áfram viðræðum Aftanskin um fyrirliggjandi samningsdrög og lagði til að málið yrði kynnt safna- og menningarmálanefnd.
Bæjarráð vísaði, á 41. fundi sínum, samningnum til samþykktar í bæjarstjórn.

Safna- og menningarmálanefnd telur jákvætt að gerð sé tilraun til þess að nýta húsið að nýju. Nefndin leggur áherslu á að byggingarlist og menningarinnviðir verði ekki fyrir skemmdum. Safna- og menningarmálanefnd gerir að öðru leyti ekki efnislegar athugasemdir við fyrirliggjandi drög að samkomulagi.
Samþykkt með þremur atkvæðum fulltrúa H-lista gegn einu atkvæði fulltrúa Í-lista.
Bókun Önnu Melsteð, fulltrúa Í-lista:
Ég tel það mjög vanhugsað að opna á notkun samkomuhússinn með þeim hætti sem kynnt hefur verið á þessum fundi. Eftirlit og ráðgjöf fagaðila er hunsuð auk þess sem starfsemi í húsinu til framtíðar hefur ekki verið rædd í nefndinni heldur hefur umræðan snúist um gildi hússins í sögulegu samhengi og möguleika þess í framtíðinni eftir nauðsynlegar endurbætur og/eða endurbyggingu. Nefndin fjallaði um málefni Samkomuhússins á síðasta fundi þar sem nefndarfólk var sammála um að afla þyrfti gagna vegna endurbóta/endurbyggingar og meta þannig valkostina um framhaldslíf hússins. Auk þess bókaði nefndin að mikilvægt væri að ræða valkostina um starfsemi í húsinu á opnum íbúafundi og að næstu skref yrðu rædd á fundi nefndarinnar í febrúar 2026.
Anna Melsteð

Fundi slitið.