Fara í efni

Skipulagsnefnd

44. fundur 10. september 2026 kl. 16:30 - 19:00 í fundarsal á 3. hæð
Nefndarmenn
  • Steindór Hjaltalín Þorsteinsson aðalmaður
  • Hilmar Hallvarðsson aðalmaður
  • Kári Geir Jensson aðalmaður
  • Gerður Silja Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Sigurður Grétar Jónasson varamaður
Starfsmenn
  • Þuríður Ragna Stefánsdóttir skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Þuríður Ragna Stefánsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Framkvæmdaleyfisumsókn - Endurbygging Stykkishólmsvegar (58) Þingvallavegur - Stykkishólmur - Endurbætur

Málsnúmer 2602010Vakta málsnúmer

Starfsmaður Vegagerðarinnar kynnir fyrir nefndinni framkvæmdir við Stykkishólmsveg.
Starfsmaður Vegagerðarinnar forfallaðist og féll þessi liður niður.

2.Bekkir í Stykkishólmi

Málsnúmer 2609003Vakta málsnúmer

Kynning á drögum á samantekt og tillögu að staðsetningu nýrra og núverandi bekkja í þéttbýlinu, sem Landmótun vann fyrir sveitarfélagið.
Skipulagsfulltrúi lagði fram og kynnti tillögu að samantekt sem unnin var af Landmótun varðandi staðsetningu núverandi bekkja og tillögur að nýjum bekkjum í bænum. Mælst er til þess að fínni bekkir verði í miðbænum og með u.þ.b. 150 metra á milli þeirra.
Skipulagsnefnd tók vel í verkefnið og leggur til að kynna það fyrir m.a. umhverfis-og náttúruverndarnefnd, ungmennaráði og öldungaráði.

3.Deiliskipulagsmál í sveitarfélaginu

Málsnúmer 2609008Vakta málsnúmer

Umræður um deiliskipulag í Víkurhverfi, næsti áfangi. Bæring B Jónsson, arkitekt mætir og kynnir fyrir nefndinni deiliskipulagið sem er í gildi.
Bæring B Jónsson mætti á fundinn í gegnum Teams fjarfundarbúnað og kynnti núgildandi skipulag og aðra þéttingarreiti í sveitarfélaginu.
Skipulagsnefnd þakkaði Bæring fyrir kynninguna. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram með skipulagshönnuði.

4.Heimild til grenndarkynningar Víkurflöt 10

Málsnúmer 2609005Vakta málsnúmer

Óskað er eftir heimild til að grenndarkynna byggingu 12 fermetra geymsluskúrs á lóðinni. Óskað er eftir að kynna fyrir eigendum Garðaflatar 7 og 9 og Víkurflatar 8.
Skipulagsnefnd heimilar byggingu geymsluskúrs á lóðinni að undangenginni grenndarkynningu. Grenndarkynna skal fyrir eigendum Garðaflatar 7 og 9 og Víkurflatar 8.

5.Fyrirspurn um byggingu frístundahús á jörðini Fjarðarhorni

Málsnúmer 2609007Vakta málsnúmer

Óskað eftir afstöðu sveitarfélagins um að fá að byggja 60-100 m2 frístundahús við Hraunsfjörð.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í áformin um að byggja frístundahús en sbr. 4.3.2.14. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 skal ekki reisa mannvirki nær vötnum, ám eða sjó en 50 metra. Enn fremur bendir nefndin á að óska þarf umsagnar Minjastofnunar Íslands og Náttúuverndarstofnunar.

6.Reitarvegur 8, fyrirspurn til skipulags- og byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2608005Vakta málsnúmer

Lagt fram svar húsfélagsins Reitarvegi 8 varðandi íbúð í kjallara hússins.
Skipulagsnefnd samþykkti á 43. fundi sínum að kynna ætti áform um íbúð fyrir íbúum hússins og þurfa allir að vera sammála um byggingaráformin. Íbúar voru ekki sammála og höfnuðu áformunum.
Að svo stöddu sér skipulagsnefnd sér ekki fært að samþykkja erindið.

Fundi slitið - kl. 19:00.

Getum við bætt efni síðunnar?