Fara í efni

Framkvæmdaleyfisumsókn - Endurbygging Stykkishólmsvegar (58) Þingvallavegur - Stykkishólmur - Endurbætur

Málsnúmer 2602010

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 39. fundur - 11.02.2026

Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðra framkvæmda skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar nr. 772/2012 vegna styrkingar og endurbyggingar Stykkishólmsvegar (58): Þingvallavegur - Stykkishólmur.

Lagt fram til kynningar.
Skipulagsfulltrúi gerir grein fyrir framkvæmdaleyfisumsókn Vegagerðarinnar.
Skipulagsnefnd leggur til að skipulagsfulltrúi afgreiði framkvæmdaleyfisumsóknina.

Bæjarráð - 41. fundur - 19.02.2026

Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðra framkvæmda skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar nr. 772/2012 vegna styrkingar og endurbyggingar Stykkishólmsvegar (58): Þingvallavegur - Stykkishólmur.



Skipulagsnefnd lagði til, á 39. fundi sínum, að skipulagsfulltrúi afgreiði framkvæmdaleyfisumsóknina.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn - 45. fundur - 26.02.2026

Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðra framkvæmda skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar nr. 772/2012 vegna styrkingar og endurbyggingar Stykkishólmsvegar (58): Þingvallavegur - Stykkishólmur.



Skipulagsnefnd lagði til, á 39. fundi sínum, að skipulagsfulltrúi afgreiði framkvæmdaleyfisumsóknina.



Bæjarráð samþykkti, á 41. fundi sínum, afgreiðslu skipulagsnefndar og vísaði henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur skipulagsnefndar og bæjarráðs.

Til máls tók RMR, JBSJ, HH.

Samþykkt samhljóða.

Skipulagsnefnd - 44. fundur - 10.09.2026

Starfsmaður Vegagerðarinnar kynnir fyrir nefndinni framkvæmdir við Stykkishólmsveg.
Starfsmaður Vegagerðarinnar forfallaðist og féll þessi liður niður.

Bæjarráð - 46. fundur - 17.09.2026

Framkvæmdir og endurbætur á Stykkishólmsvegi teknar til umræðu. Birgitta Rán Ásgeirsdóttir, fulltrúi Vegagerðarinnar, kemur til fundar og gerir grein fyrir stöðu verkefnisins.
Bæjarráð þakkar fulltrúa Vegagerðarinnar fyrir komuna á fundinn og greinargóða kynningu á stöðu og fyrirhuguðum framkvæmdum við Stykkishólmsveg.

Bæjarráð fagnar því að framkvæmdir við endurbyggingu Stykkishólmsvegar séu hafnar og leggur áherslu á mikilvægi framkvæmdarinnar fyrir umferðaröryggi og bættar samgöngur til og frá Stykkishólmi.

Bæjarráð leggur áherslu á að samhliða framkvæmdinni verði ráðist í nauðsynlega færslu og frágang göngustíga beggja vegna Stykkishólmskirkjugarðs og gerðar viðeigandi ráðstafanir vegna þeirra breytinga sem framkvæmdin hefur í för með sér, þ.m.t. að Hannesarsteini verði fundinn viðeigandi staður við göngustíg í nágrenni við fyrri staðsetningu hans.

Bæjarráð leggur jafnframt sérstaka áherslu á að komið verði fyrir gönguröri undir Stykkishólmsveg til að tryggja örugga tengingu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur milli útivistarsvæða beggja vegna vegarins. Þá óskar bæjarráð eftir því að sérstaklega verði skoðað að hækka veginn í brekkunni milli Vogsbotns og Ögursafleggjara, m.a. með hliðsjón af aðstæðum og umferðaröryggi á þessum kafla.
Getum við bætt efni síðunnar?