Bekkir í Stykkishólmi
Málsnúmer 2609003
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 44. fundur - 10.09.2026
Kynning á drögum á samantekt og tillögu að staðsetningu nýrra og núverandi bekkja í þéttbýlinu, sem Landmótun vann fyrir sveitarfélagið.
Bæjarráð - 46. fundur - 17.09.2026
Lögð fram samantekt og tillaga að staðsetningu nýrra og núverandi bekkja í þéttbýlinu, sem Landmótun vann fyrir sveitarfélagið.
Skipulagsfulltrúi lagði fram og kynnti tillögu að samantekt á 44. fundi skipulagsnefndar. Mælst er til þess að fínni bekkir verði í miðbænum og með u.þ.b. 150 metra á milli þeirra.
Skipulagsnefnd tók vel í verkefnið og lagði til að kynna það fyrir m.a. umhverfis-og náttúruverndarnefnd, ungmennaráði og öldungaráði.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og óskar eftir umsögnum um tillöguna frá umhverfis- og náttúruverndarnefnd, ungmennaráði, öldungaráði og æskulýðs- og íþróttanefnd.
Æskulýðs- og íþróttanefnd (SH) - 6. fundur - 29.09.2026
Lögð fram samantekt sem unnin var af Landmótun varðandi staðsetningu núverandi bekkja og tillögur að nýjum bekkjum í bænum. Mælst er til þess að fínni bekkir verði í miðbænum og með u.þ.b. 150 metra millibili.
Magnús Ingi fór yfir stöðuna á bekkjum í Stykkishólmi. Nefndin fór yfir samantekt Landmótunar. Heiðrún Edda tekur til máls og kynnir hugmyndir sínar um staðsetningar bekkja í bænum. Nefndin tekur vel í hugmyndir Heiðrúnar og vill koma eftirfarandi ábendingum á framfæri til bæjarstjórnar. Sjá viðhengi.
Bæjarráð - 47. fundur - 22.10.2026
Lögð fram samantekt sem unnin var af Landmótun varðandi staðsetningu núverandi bekkja og tillögur að nýjum bekkjum í bænum. Mælst er til þess að fínni bekkir verði í miðbænum og með u.þ.b. 150 metra millibili.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi gerði grein fyrir málinu á 6. fundi æskulýðs- og íþróttanefndar. Nefndin fór yfir samantekt Landmótunar. Heiðrún Edda, nefndarmaður æskulýðs- og íþróttanefndar, kynnti hugmyndir sínar um staðsetningar bekkja í bænum. Nefndin tók vel í hugmyndir Heiðrúnar og vill koma fyrirliggjandi ábendingum á framfæri til bæjarstjórnar.

Bæjarráð þakkar æskulýðs- og íþróttanefnd fyrir sína vinnu og felur skipulagsfulltrúa að vinna verkefnið áfram.
Skipulagsnefnd tók vel í verkefnið og leggur til að kynna það fyrir m.a. umhverfis-og náttúruverndarnefnd, ungmennaráði og öldungaráði.