Aftanskin heldur opið hús í Samkomuhúsinu
Eins og greint hefur verið frá í fréttum frá sveitarfélaginu hafa Sveitarfélagið Stykkishólmur og Aftanskin, félag eldri borgara í Stykkishólmi, gert með sér samkomulag um afnot af Samkomuhúsinu við Aðalgötu 6.
Aftanskin mun nýta húsnæðið undir tómstundir á borð við smíðar og fleira. Einnig hefur félagið heimilað Golfklúbbnum Mostra að nýta hluta hússins fyrir golfhermi en með fyrrnefndum samningi heimilaði sveitarfélagið Aftanskin að ráðstafa rými í húsnæðinu til golfklúbbsins.
Golfklúbburinn Mostri mun nýta aðstöðuna tímabundið undir golfhermi á meðan klúbburinn vinnur að því að koma upp aðstöðu á svæði golfklúbbsins undir slíka starfsemi.
Í Samkomuhúsinu hafa nú verið settir upp milliveggir til að skilja á milli rýma. Búið er að útbúa sér rými fyrir rennibekk auk þess sem aðalsalnum hefur verið skipt í tvennt. En í fremri hluta salsins hefur golfklúbburinn sett upp golfhermi. Líkt og áður hefur komið fram hefur verið sett upp öflugt loftskiptakerfi með varmaendurvinnslu í húsinu og útsog í kjallara með röraviftu til að tryggja góð loftgæði.
Á stuttum tíma hefur mikið áunnist og hafa því félagsmenn Aftanskin ákveðið að bjóða í opið hús þar sem gestum og gangandi gefst kostur á að sjá breytingar á húsnæðinu, kynnast starfseminni og forvitnast um framhaldið.
Aftanskin býður í opið hús í Samkomuhúsinu í Stykkishólmi fimmtudaginn 16. apríl á milli klukkan 15:00 og 17:00.