Lóðin Áskinn 6 laus til umsóknar
Lóðin Áskinn 6 er hér með auglýst til úthlutunar í samræmi við reglur um úthlutun lóða í Stykkishólmi og bætist þar með á úthlutunarlista yfir lausar lóðir í Stykkishólmi. Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2026.
Berist fleiri en ein umsókn áður en umsóknarfrestur rennur út sem uppfyllir skilyrði úthlutunarreglna sveitarfélagsins skal hlutkesti ráða úthlutun. Eftir þann tíma skal úthluta lóðinni til fyrsta umsækjanda sem eftir leitar að uppfylltum skilyrðum reglnanna.
Á lóðinni er heimilt að byggja einbýlishús, parhús eða þríbýli á einni hæð. Þar sem ekki er til gildandi deiliskipulag af svæðinu ber að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn samkvæmt 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sækja má um lóðina á íbúagátt Stykkishólms, undir umsóknir.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í Ráðhúsinu, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða í síma 433-8100 eða á heimasíðu sveitarfélagsins, stykkisholmur.is.
Jafnframt er vakin athygli öðrum lausum lóðum sem áður voru auglýstar og skráðar eru á úthlutunarlista sem finna má á vefsíðu sveitarfélagsins.