Fréttir
Kvennafrídagurinn 24. október
Í dag, miðvikudaginn 24. október, munu konur víðsvegar um landið leggja niður störf kl. 14:55. Stykkishólmsbær hvetur því forráðamenn, sér í lagi feður, til að sækja börn sín í heilsdagsskóla og leikskóla fyrir klukkan 14:55, til að gera þeim konum er starfa á þeim stofnunum kleift að leggja niður störf.
24.10.2018