Fara í efni

Fréttasafn

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Tillaga um launalækkun og aukið aðhald samþykkt samhljóða
Fréttir Stjórnsýsla

Tillaga um launalækkun og aukið aðhald samþykkt samhljóða

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms samþykkti samhljóða á fundi sínum 29. október að vísa fjárhagsáætlun fyrir árið 2027, ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2028–2030, til síðari umræðu. Á fundinum var jafnframt samþykkt samhljóða tillaga Björns Ásgeirs Sumarliðasonar, forseta bæjarstjórnar, um tímabundna launalækkun bæjarfulltrúa og bæjarstjóra og stefnumörkun í fjármálum fyrir árin 2027 og 2028.
30.10.2026
Fulltrúar Stólpa, Koma, Batterýsins og Sveitarfélagsins Stykkishólms ásamt ráðherra
Fréttir

Nýjar raðhúsaíbúðir Stólpa kynntar í Stykkishólmi

Tíu nýjar raðhúsaíbúðir Stólpa við Bauluvík 1 í Víkurhverfi voru kynntar gestum á sérstökum kynningarfundi Stólpa í gær, fimmtudaginn 29. október. Íbúðirnar eru um 45 fermetrar hver og bæta við framboð minni íbúða í Stykkishólmi. Kynningin fór fram á Fosshótel Stykkishólmi og gafst boðsgestum jafnframt tækifæri til að skoða húsin. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, tók þátt í kynningunni ásamt fulltrúum Stólpa og samstarfsaðila. Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri, ávarpaði gesti fyrir hönd bæjarstjórnar.
30.10.2026
53. fundur bæjarstjórnar Stykkishólms
Fréttir Stjórnsýsla

53. fundur bæjarstjórnar Stykkishólms

53. fundur bæjarstjórnar Stykkishólms fer fram fimmtudaginn 29. október 2026 kl. 17:00 í bæjarstjórnarsal. Smelltu á hnappinn hér að neðan til að kynna þér dagská fundar.
27.10.2026
Jakob Björgvin S. Jakobsson og Logi Einarsson rituðu undir í Vatnasafni.
Fréttir

Ritað undir stofnun þekkingarseturs við Breiðafjörð

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, undirritaði í gær, 22. október 2026, samning við Sveitarfélagið Stykkishólm um stofnun og rekstur nýs þekkingarseturs á Snæfellsnesi. Setrið verður staðsett í Stykkishólmi og er fyrsta svæðisbundna þekkingarsetrið af þessu tagi á Vesturlandi, en sambærileg setur starfa nú þegar í öllum öðrum landshlutum á grundvelli samninga við ráðuneytið.
23.10.2026
Malbikun heldur áfram
Fréttir

Malbikun heldur áfram

Malbikun á Stykkishólmsvegi heldur áfram í dag, miðvikudaginn 21. október. Malbikað verður frá afleggjara frá Arnarborg að afleggjara að Snooppu í dag. Báðar akgreinar verða malbikaðar samtímis og reiðstígurinn nýttur sem hjáleið eins og sýnt er á myndinn hér að neðan.
21.10.2026
Óskað eftir ábendingum og tillögum við gerð fjárhagsáætlunnar
Fréttir

Óskað eftir ábendingum og tillögum við gerð fjárhagsáætlunnar

Vinna við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins stendur nú yfir og er íbúum gefin kostur á að skila inn ábendingum og tillögum vegna þessa og hafa með því móti tækifæri til að hafa áhrif á aðgerðir bæjarstjórnar.
20.10.2026
Fundurinn fer fram í Borgarnesi og á vef SAF
Fréttir

Fundur um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi

Fimmtudaginn 22. október standa Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða að fundi um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram í Hjálmakletti, Menningarhúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi kl. 17:00-19:00 undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar?
20.10.2026
Hjáleið vegna framkvæmda
Fréttir

Lokun á Stykkishólmsvegi vegna malbikunar

Malbikun á Stykkishólmsvegi hefst í dag, þriðjudaginn 20. október. Gert er ráð fyrir að verkið standi yfir í dag og á morgun. Malbikað verður frá afleggjara að Fákaborg og út fyrir afleggjara að Snoppu. Ákveðið var að malbika báðar akgreinar samtímis og nýta veginn um Arnarborg og Nýrækt sem hjáleið. Vegurinn lokar í dag en framkvæmdaraðilar vinna nú að því að koma upp umferðarstýringu um hjáleiðir á svæðinu í samræmi við kortið hér að neðan. Almenn hjáleið til að komast úr bænum liggur um Nýrækt og Arnarborg en þeir sem þurfa að komast að Hamraendum fara upp Fákaborg og reiðstíginn.
20.10.2026
Kosið í dreifbýlisráð 7. nóvember
Fréttir

Kosið í dreifbýlisráð 7. nóvember

Kosið verður í dreifbýlisráð laugardaginn 7. nóvember í Félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit. Kosningarrétt í kosningu til dreifbýlisráðs hafa íbúar innan sveitarfélagamarka Helgafellssveitar eins og þeim er lýst á sveitarfélagakorti Landmælinga Íslands frá 2014 og íbúar með búsetu í Ögri.
19.10.2026
Jakob Björgvin, bæjarstjóri, með viðurkenningarskjalið.
Fréttir

Sveitarfélagið Stykkishólmur hlýtur Jafnvægisvog FKA

Sveitarfélagið Stykkishólmur hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem sveitarfélagið hefur verið á sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Fjölbreytt stjórnendateymi taka betri ákvarðanir, stuðla að sterkari menningu og betri árangri fyrir sveitarfélagið og samfélagið allt.
14.10.2026
Getum við bætt efni síðunnar?