Fréttir
Tiltekt á Reitarvegi - Eigendur lausamuna athugið
Sveitarfélagið Stykkishólmur stendur nú fyrir hreinsunarátaki og hvetur eigendur lausamuna á Reitarvegi til að taka þátt í hreinsun á svæðinu. Búið er að koma fyrir gám á svæðinu þar sem hægt er að henda járni. Gámurinn er eingöngu ætlaður undir járn og verður fjarlægður af svæðinu mánudaginn 9. mars.
26.02.2026