Fara í efni

Fréttasafn

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Ráðhúsið í Stykkishólmi
Fréttir

Ráðhús lokar á hádegi 20. nóvember

Ráðhúsið lokar á hádegi föstudaginn 20. nóvember.
20.11.2026
Jólaljósin tenduð í Hólmgarði
Fréttir

Jólaljósin tenduð í Hólmgarði

Þriðjudaginn 24. nóvember verða ljósin á jólatrénu í Hólmgarði tendruð við hátíðlega athöfn. Viðburðurinn hefst kl. 18:00 og verður með hefðbundnu sniði. Kvenfélagið selur heitt súkkulaði og smákökur, nemendur 1. bekkjar tendra ljósin og hver veit nema nokkrir rauðklæddir láti sjá sig.
19.11.2026
Vinna við nýtt aðalskipulag Stykkishólms heldur áfram
Fréttir

Vinna við nýtt aðalskipulag Stykkishólms heldur áfram

Vinna við nýtt aðalskipulag fyrir sveitarfélagið Stykkishólm stendur nú yfir. Markmið verkefnisins er að móta framtíðarsýn fyrir þróun byggðar, atvinnulífs, samgangna og landnýtingar til næstu ára. Mikil áhersla er lögð á að tryggja að sjónarmið íbúa og landeigenda komi fram á undirbúningsstigi skipulagsvinnunnar. Fyrr á árinu var haldinn íbúafundur og leitað eftir ábendingum frá íbúum um framtíð sveitarfélagsins. Samhliða fundi voru lagðar fram vefkannanir, annarsvegar fyrir íbúa og hinsvegar fyrir landeigendur. Enn vantar svör frá nokkrum landeigendum í sveitarfélaginu og er þeir sérstaklega hvattir til þátttöku.
18.11.2026
Niðurstaða kosninga í dreifbýlisráð
Fréttir

Niðurstaða kosninga í dreifbýlisráð

Gengið var til kosninga í dreifbýlisráð laugardaginn 7. nóvember síðastliðinn í Félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit. Kosningarrétt í kosningu til dreifbýlisráðs hafa íbúar innan sveitarfélagamarka Helgafellssveitar eins og þeim er lýst á sveitarfélagakorti Landmælinga Íslands frá 2014 og íbúar með búsetu í Ögri. Kjörgengur í dreifbýlisráð er hver sá sem hefur skráð lögheimili í þeim hluta sveitarfélagsins sem lýst er hér að ofan.
09.11.2026
Sundlaugin í Stykkishólmi
Fréttir

Syndum í nóvember

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi allan nóvembermánuð. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess.
03.11.2026
Íþróttamiðstöðin í Stykkishólmi lokuð hluta úr degi
Fréttir Þjónusta

Íþróttamiðstöðin í Stykkishólmi lokuð hluta úr degi

Íþróttamiðstöðin í Stykkishólmi verður lokuð frá 15:00 til 19:00 á morgun, þriðjudaginn 3. nóvember. Vegna vinnu Rarik við heðslustöðvar á íþróttahúsplaninu þarf að taka rafmagn af íþróttamiðstöðinni og verður húsinu lokað á meðan. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
02.11.2026
Getum við bætt efni síðunnar?