Fara í efni

Fréttasafn

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Norska húsið í Stykkishólmi
Fréttir

Agnes, áföll og valdbeiting - uppelstur Gyðu Ölvisdóttur

Guðrún Gyða Ölvisdóttir verður með upplestur úr nýútkominni bók sinni, Agnes, áföll og valdbeiting, í Norska húsinu föstudaginn 28. ágúst kl. 15:00. Öll hjartanlega velkomin, léttar veitingar í boði.
28.08.2026
51. fundur bæjarstjórnar Stykkishólms
Fréttir Stjórnsýsla

51. fundur bæjarstjórnar Stykkishólms

51. fundur bæjarstjórnar Stykkishólms fer fram fimmtudaginn 27. ágúst 2026 kl. 17:00 í bæjarstjórnarsal. Smelltu á hnappinn hér að neðan til að kynna þér dagská fundar.
25.08.2026
Snæfell mætti Reyni Hellissandi á íþóttavellinum í Stykkishólmi 15. ágúst sl.
Fréttir

Íþróttastarf hefst á ný

Ný tímatafla Snæfells fyrir veturinn 2026-2027 hefur litið dagsins ljós. Vetrarstarf félagsins hefst í dag samhliða skólastarfi. Vetrarstarf Heilsuhraustra Hólmara 60+ hefst svo næstkomandi mánudag, 31. ágúst, eftir sumarfrí. Íbúar, ungir sem aldnir, eru hvattir til að kynna sér það fjölbreytta og umfangsmikla íþróttastarf sem boðið er uppá í Stykkishólmi en þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi sem eflir bæði líkama og sál.
25.08.2026
Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026
Fréttir Stjórnsýsla

Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026

Kjörfundur í Sveitarfélaginu Stykkishólmi vegna þjóðaratkvæðagreiðslu verður laugardaginn 29. ágúst 2026 í Grunnskólanum í Stykkishólmi, Borgarbraut 6. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00. Kjörskrá liggur frammi til kjördags í Ráðhúsi Stykkishólms alla virka daga á opnunartíma. Kjósendur geta einnig séð á heimasíðu Þjóðskrár hvar þeir eru á kjörskrá. Kynningarvefur landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst er www.thjodaratkvaedi.is/
17.08.2026
Snæfellsjökull
Fréttir Aðsendar greinar

Áminning frá forvarnarteymi Snæfellsness og lögreglunni á Vesturlandi

Hér að neðan  er áminning frá forvarnarteymi Snæfellsness og lögreglunni á Vesturlandi varðandi ábyrgð foreldra og hættur sem stafa að eftirlitslausum unglingasamkomum á bæjarhátíðum og öðrum hátíðum. Um helgina eru bæði Danskir dagar í Stykkishólmi og Iceland Eclipse á Hellissandi.
14.08.2026
Friðrik S. Kristinsson
Fréttir

Nýr söngkennari í Stykkishólmi

Tónlistarskóli Stykkishólms vekur athygli á því að Hólmarinn Friðrik S. Kristinsson er fluttur aftur heim og tekur nú við sem söngkennari tónlistarskólans. Friðrik er lærður söngvari, söngkennari og kórstjóri. Lengst af hefur hann stjórnað og starfað hjá Karlakór Reykjavíkur þar sem hann mun eiga starfslok 1. janúar nk. eftir 38 farsæl ár sem söngstjóri kórsins.
12.08.2026
Götulýsing slökkt vegna almyrkva
Fréttir

Götulýsing slökkt vegna almyrkva

Götulýsing í Stykkishólmi verður slökkt miðvikudaginn 12. ágúst á meðan almyrkvi á sólu stendur yfir. Almyrkvinn verður sýnilegur í Stykkishólmi og stendur yfir í um 1 mínútu og 28 sekúndur frá Hólminum séð. Með því að slökkva á götulýsingunni er leitast við að draga úr birtu í bænum og skapa sem bestar aðstæður fyrir íbúa til að upplifa þennan einstaka náttúruviðburð. Íbúar sem vilja njóta myrkvans í sem mestu myrkri eru jafnframt hvattir til að huga að útilýsingu við heimili sín og slökkva á ljósum sem kunna að kvikna sjálfkrafa, til dæmis vegna tímastillingar.
10.08.2026
Danski júróvisjónfarinn Jørgen Olsen á Dönskum dögum 2024
Fréttir Lífið í bænum

Danskir dagar 2026

Danskir dagar verða haldnir í Stykkishólmi dagana 12.–16. ágúst 2026. Hátíðin er ein elsta bæjarhátíð landsins og hefur verið haldin frá árinu 1994. Eftir afar vel heppnaða hátíð árið 2024 er á ný stefnt að fjölbreyttri og líflegri bæjarhátíð þar sem íbúar og gestir koma saman og njóta þess besta sem Stykkishólmur hefur upp á að bjóða.
10.08.2026
Hæka á Frúarhól
Fréttir Lífið í bænum

Hækusýning á Frúarhól

Hækusýning hefur verið sett upp á Frúarhól í þriðja sinn. Anna Sigríður Gunnarsdóttir stendur fyrir sýningunni ásamt höfundi, en hækurnar eru eftir Theodóru Gallant Helgason, og eru á ensku.
04.08.2026
Almyrkvi verður 12. ágúst
Fréttir

Almyrkvi verður 12. ágúst

Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Almyrkvi á sér stað þegar tunglið gengur beint milli sólar og jarðar og skyggir alveg á sólina í örfáar mínútur. Á þeim tíma verður dimmt og hita­stig getur jafnvel lækkað lítil­lega. Fyrir og eftir almyrkva sést deild­ar­myrkvi, það er þegar tunglið skyggir á hluta sólar.Almyrkvinn sést frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga.
04.08.2026
Getum við bætt efni síðunnar?