Fara í efni

Deiliskipulag hafnarsvæðis við Stykkið

Málsnúmer 1604036

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 46. fundur - 17.09.2026

Lagt er til að hafin verði vinna við deiliskipulag á hafnarsvæði til að bæta nýtingu, skipulag og skapa tækifæri til uppbyggingar í samvinnu skipulagsnefndar, atvinnu- og nýsköpunarnefndar og hafnarstjórnar og að skipaður verði starfshópur vegna þeirra vinnu sem vinni með skipulagsfulltrúa að tillögu að nýju deiliskipulagi.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að skipaður verði starfshópur vegna þeirra vinnu sem vinni með skipulagsfulltrúa að tillögu að nýju deiliskipulagi.

Bæjarstjórn - 52. fundur - 01.10.2026

Lagt er til að hafin verði vinna við deiliskipulag á hafnarsvæði til að bæta nýtingu, skipulag og skapa tækifæri til uppbyggingar í samvinnu skipulagsnefndar, atvinnu- og nýsköpunarnefndar og hafnarstjórnar og að skipaður verði starfshópur vegna þeirra vinnu sem vinni með skipulagsfulltrúa að tillögu að nýju deiliskipulagi.



Bæjarráð samþykkti tillöguna, á 46. fundi sínum, og lagði til við bæjarstjórn að skipaður verði starfshópur vegna þeirra vinnu sem vinni með skipulagsfulltrúa að tillögu að nýju deiliskipulagi.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs og að í stafshópinn verði skipaðir eftirtaldir:

Formaður hafnarstjórnar
Formaður atvinnu- og nýsköpunarnefndar
Formaður skipulagsnefndar
Fulltrúi tilnefndur af oddvita Í-lista
Fulltrúi tilnefndur af oddvita H-lista

Til máls tóku: SBS, JBSJ, KH, SIM.

Samþykkt með 4 atkvæðum fulltrúa H- lista. Þrír fulltrúar Í-lista sátu hjá.

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd (SH) - 7. fundur - 04.11.2026

Lögð fram til kynningar ákvörðun bæjarstjórnar frá 1. október um skipan starfshóps sem vinnur með skipulagsfulltrúa að tillögu að nýju deiliskipulagi hafnarsvæðisins. Formaður atvinnu- og nýsköpunarnefndar á sæti í starfshópnum.
Lagt fram til kynningar.

Skipulagsnefnd - 46. fundur - 12.11.2026

Á 52. fundi bæjarstjórnar 1. október 2026 var lagt til að hafin yrði vinna við deiliskipulag á hafnarsvæði með það að markmiði að bæta nýtingu og skipulag svæðisins og skapa tækifæri til uppbyggingar, í samvinnu skipulagsnefndar, atvinnu- og nýsköpunarnefndar og hafnarstjórnar. Jafnframt var lagt til að skipaður yrði starfshópur vegna vinnunnar sem ynni með skipulagsfulltrúa að tillögu að nýju deiliskipulagi.



Bæjarráð hafði samþykkt tillöguna á 46. fundi sínum og lagt til við bæjarstjórn að skipaður yrði starfshópur vegna vinnunnar sem ynni með skipulagsfulltrúa að tillögu að nýju deiliskipulagi.



Afgreiðsla bæjarráðs var lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.



Bæjarstjórn staðfesti afgreiðslu bæjarráðs og samþykkti að í starfshópinn yrðu skipaðir eftirtaldir:



-formaður hafnarstjórnar,

-formaður atvinnu- og nýsköpunarnefndar,

-formaður skipulagsnefndar,

-fulltrúi tilnefndur af oddvita Í-lista,

-fulltrúi tilnefndur af oddvita H-lista.



Málið er tekið til umfjöllunar að beiðni Skarphéðins Berg Steinarssonar, sem gerir nánari grein fyrir málinu á fundinum.
Lagt fram til kynningar.
Getum við bætt efni síðunnar?