Mötuneyti
Málsnúmer 2402001
Vakta málsnúmerSkóla- og fræðslunefnd - 11. fundur - 15.02.2024
Lagðar fram athugasemdir frá íbúa vegna matseðils í grunnskóla og leikskóla.
Skóla- og fræðslunefnd leggur það í hendur Heimis og Sigrúnar að fá næringarfræðing til að taka út matseðla skólana. Einnig telur nefndin að skoða ætti mötuneytismál sveitarfélagsins í heild sinni.
Bæjarstjórn unga fólksins - 3. fundur - 09.04.2026
Málefni mötuneytis Grunnskólans í Stykkishólmi tekin til umræðu. Fulltrúi bæjarstjórnar unga fólksins gerir grein fyrir málinu.
Bæjarstjórn unga fólksins leggur til að bætt verði gæði og magn skólamáltíða við Grunnskólann í Stykkishólmi. Tryggja þarf að gæðamál í matargerð grunnskólans verði eins og best verður á kosið. Jafnframt leggjum við til að skoðað verði fyrirkomulag matartíma unglingastigs þannig að nemendur þurfi ekki sjálfir að flytja mat á milli hæða og nota þess í stað vagna og lyftuna eða hreinlega borða í matsalnum.
Skóla- og fræðslunefnd - 25. fundur - 14.04.2026
Bæjarstjórn unga fólksins lagði, á 3. fundi sínum, til að gæði og magn skólamáltíða við Grunnskólann í Stykkishólmi verði bætt. Taldi bæjarstjórn unga fólksins þarft að tryggja að gæðamál í matargerð grunnskólans verði eins og best verður á kosið. Jafnframt var lagt til að skoðað verði fyrirkomulag matartíma unglingastigs þannig að nemendur þurfi ekki sjálfir að flytja mat á milli hæða og nota þess í stað vagna og lyftuna, eða borða í matsalnum á neðri hæð.
Skóla- og fræðslunefnd styður bókun bæjarstjórnar unga fólksins. Nefndin telur stöðu mötuneytismála í Grunnskólanum í Stykkishólmi óásættanlega og benda niðurstöður kannana til verulegrar óánægju meðal bæði nemenda og foreldra. Jafnframt liggur fyrir að ekki er að fullu farið eftir leiðbeiningum landlæknisembættisins um skólamötuneyti.
Grunnskólinn í Stykkishólmi er heilsueflandi grunnskóli og þar starfar teymi um heilsueflingu, sem gerir þær aðstæður að mati nefndarinnar enn alvarlegri þar sem mötuneytismál eru lykilþáttur í heilsueflandi skólastarfi.
Málefni mötuneytisins hafa ítrekað verið til umfjöllunar hjá skóla- og fræðslunefnd (m.a. á fundum nr. 15 þann 18. september 2024 og nr. 13 þann 8. apríl 2024) án þess að nægjanlegar úrbætur hafi orðið. Nefndin leggur því til að málið verði tekið til heildstæðrar skoðunar, eftir atvikum með aðkomu utanaðkomandi fagaðila sem gæti veitt bæði aðhald og faglegan stuðning