Bæjarstjórn unga fólksins
Dagskrá
1.Knattspyrnuvöllur
Málsnúmer 2505002Vakta málsnúmer
Málefni knattspyrnuvallar og stúku tekin til umræðu. Fulltrúi bæjarstjórnar unga fólksins gerir grein fyrir málinu.
Bæjarstjórn unga fólksins vill hvetja bæjaryfirvöld til þess að auka viðhald á knattspyrnuvelli sveitarfélagsins og einnig að auka viðhald á stúkunni sem stendur við völlinn.
2.Sturtuklefar í Íþróttamiðstöð Stykkishólms
Málsnúmer 2604001Vakta málsnúmer
Sturtuklefar á neðri hæð Íþróttamiðstöðvar Stykkishólms teknir til umræðu. Fulltrúi bæjarstjórnar unga fólksins gerir grein fyrir málinu.
Bæjarstjórn unga fólksins leggur til að því að lagað verði vatnsþrýsting og sturtuaðstöðu á neðri hæð íþróttahússins, þar sem vatn dreyfist illa og með litlum þrýstingi.
3.Mötuneyti FSN
Málsnúmer 2604002Vakta málsnúmer
Kostnaður vegna þjónustu mötuneytis Fjölbrautaskóla Snæfellinga tekinn til umræðu. Fulltrúi bæjarstjórnar unga fólksins gerir grein fyrir málinu.
Bæjarstjórn unga fólksins leggur til að leitað verði leiða til að lækka verð eða niðurgreiða skólamat í Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Einnig er lagt til að endurskoðað verði sú ákvörðun um að sleppa fríum hafragraut fyrir nemendur.
Bæjarstjórn unga fólksins óskar eftir viðbrögðum frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Bæjarstjórn unga fólksins óskar eftir viðbrögðum frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
4.Mötuneyti Grunnskólans í Stykkishólmi
Málsnúmer 2402001Vakta málsnúmer
Málefni mötuneytis Grunnskólans í Stykkishólmi tekin til umræðu. Fulltrúi bæjarstjórnar unga fólksins gerir grein fyrir málinu.
Bæjarstjórn unga fólksins leggur til að bætt verði gæði og magn skólamáltíða við Grunnskólann í Stykkishólmi. Tryggja þarf að gæðamál í matargerð grunnskólans verði eins og best verður á kosið. Jafnframt leggjum við til að skoðað verði fyrirkomulag matartíma unglingastigs þannig að nemendur þurfi ekki sjálfir að flytja mat á milli hæða og nota þess í stað vagna og lyftuna eða hreinlega borða í matsalnum.
5.Leikvellir í Stykkishólmi
Málsnúmer 2604003Vakta málsnúmer
Leikvellir og leiktæki í Stykkishólmi tekin til umræðu. Fulltrúi bæjarstjórnar unga fólksins gerir grein fyrir málinu.
Bæjarstjórn unga fólksins hvetur bæjaryfirvöld til þess að fara í úrbætur á leikvöllum í sveitarfélaginu, með það að leiðarljósi að hafa leikvellina fjölbreytta og aðgengilega.
Fundi slitið.