Æskulýðs- og íþróttanefnd (SH)
Dagskrá
1.Erindisbréf æskulýðs-og íþróttanefndar
Málsnúmer 1902044Vakta málsnúmer
Lagt fram erindisbréf æskulýðs- og íþróttanefndar. Íþrótta- og tómstundafulltrúi gerir grein fyrir erindsbréfinu.
Magnús Ingi, íþrótta- og tómstundafulltrúi, fór yfir erindisbréf æskulýðs- og íþróttanefndar.
2.Sturtuklefar í Íþróttamiðstöð Stykkishólms
Málsnúmer 2604001Vakta málsnúmer
Sturtuklefar á neðri hæð Íþróttamiðstöðvar Stykkishólms voru til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.
Bæjarstjórn unga fólksins lagði til að laga vatnsþrýsting og sturtuaðstöðu á neðri hæð íþróttahússins, þar sem vatn dreyfist illa og með litlum þrýstingi.
Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og benti á að í fjárhagsáætlun 2026 er gert ráð fyrir endurbótum á sturtuklefum á neðri hæð. Að öðru leyti vísaði bæjarráð málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.
Ráðist var í endurbætur á sturtuaðstöðunni sl. sumar.

Magnús Ingi, íþrótta- og tómstundafulltrúi, fór yfir sturtuklefa á neðri hæð Íþróttamiðstöðvarinnar. Búið er að laga sturtuaðstöðuna að hluta. Vantar þó enn að laga hirslur og uppsetningu á handklæðarekkum ásamt öðru. Einnig rætt um sturtuklefana uppi þar sem gera þarf breytingar á handklæðahirslum. Nefndin skorar á bæjarstjórn að handklæðahirslur verði settar upp og endurnýjaðar í klefum.
3.Kosning varaformanns og ritara
Málsnúmer 2211039Vakta málsnúmer
Samkvæmt erindisbréfi skal nefndin kjósa varaformann og ritara á fyrsta fundi sínum.
Björg Gunnarsdóttir hefur boðið fram krafta sína sem ritari æskulýðs- og íþróttanefndar. Samþykkt samhljóða. Heiðrún Edda býður sig fram til varaformanns. Samþykkt samhljóða.
4.Nýting á tómstundarhúsnæði við Íþróttamiðstöð (Regnbogaland)
Málsnúmer 2604004Vakta málsnúmer
Á 25. fundi skóla- og fræðslunefndar var tekið til umfjöllunar nýting á tómstundarhúsnæði við Íþróttamiðstöð (Regnbogaland) m.t.t. notkunar fyrir eldri nemendur og X-ið.
Rætt var um nýtingu tómstundarhúsnæðisins við Íþróttamiðstöð. Forskóli Tónlistarskóla Stykkishólms nýtir húsnæðið nú til kennslu. Einnig var rætt um mögulega nýtingu húsnæðisins að lokinni starfsemi Regnbogalands, meðal annars fyrir dagopnun félagsmiðstöðvar og/eða starfsemi píludeildar Snæfells.
Skóla- og fræðslunefnd vísaði áframhaldandi umræðu um notkun húsnæðisins til æskulýðs- og íþróttanefndar.
Bæjarráð staðfesti, á 43. fundi sínum, afgreiðslu skóla- og fræðslunefndar.

Magnús Ingi fór yfir stöðuna á tómstundarhúsnæði við Íþróttamiðstöðina (Regnbogaland). Ýmsar hugmyndir hafa komið upp varðandi nýtingu á húsnæðinu eftir lokun Regnbogalands. Það væri frábær viðbót við annað tómstundastarf sem er í boði ef hægt væri að bjóða upp á dagopnun í X-inu frá 16 - 18 og nýta þar Regnbogaland. Með því væru meiri líkur á því að iðkendur Snæfells komi inn á milli æfinga o.þ.h. Góð mæting hefur verið í félagsmiðstöðina hingað til en alltaf hægt að gera betur.
Nefndin vill vísa hugmyndinni áfram til forsvarsmanna Regnbogalands hvort möguleiki sé á því að samnýta húsið m.t.t. búnaðar sem þarf að forfæra. Möguleiki væri að hafa lágmarksbúnað í Regnbogalandi fyrir félagsmiðstöðina. Ef þetta yrði að veruleika þarf að hafa í huga að Sveitarfélagið þyrfti að ráða tvo starfsmenn í starfið.

5.Knattspyrnuvellir
Málsnúmer 2505002Vakta málsnúmer
Málefni knattspyrnuvallar og stúku voru tekin til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.
Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að auka viðhald á knattspyrnuvelli sveitarfélagsins og einnig að auka viðhald á stúkunni sem stendur við völlinn.
Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og vísaði málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.

Magnús Ingi fór yfir stöðuna á knattspyrnuvellinum við Íþróttamiðstöðina. Starfsmenn bæjarins hafa sinnt vellinum vel í sumar en mikilvægt er að sanda og stinga völlinn til þess að halda honum við. Langstökksgryfjur þarf að passa betur þar sem þær hafa verið nýttar sem sandkassar í sumar. Kaupa þarf læst lok á gryfjurnar til að hlýfa þeim. Þá þyrfti að skoða að setja tartanbraut í fjárhagsáætlun.
Nefndin ræddi um girðinguna sem sett hefur verið í kringum íþróttavöllinn. Mikilvægt er að klára að girða frá stúkunni að Aðalgötunni og finna lausn á girðingarmálum við bókasafnið.
Kominn er tími á að huga að stúkunni, gera hana upp og klæða hana. Stúkan er eitt það fyrsta sem blasir við fólki sem keyrir inn í bæinn. Nefndin vill þrýsta á bæjarstjórn að taka upp samtalið við Veitur á ný í sambandi við lagfæringar á stúkunni.

6.Leikvellir í Stykkishólmi
Málsnúmer 2604003Vakta málsnúmer
Leikvellir og leiktæki í Stykkishólmi voru tekin til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.
Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að fara í úrbætur á leikvöllum í sveitarfélaginu, með það að leiðarljósi að hafa leikvellina fjölbreytta og aðgengilega.
Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og vísaði málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.
Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að fara í úrbætur á leikvöllum í sveitarfélaginu, með það að leiðarljósi að hafa leikvellina fjölbreytta og aðgengilega.
Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og vísaði málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.
Nefndin vill þrýsta á bæjarstjórn að hefja uppbyggingu og viðhalda leikvöllum betur í samræmi við þá grunnvinnu sem hefur átt sér stað varðandi þetta mál. Lagt er til að rýnt verði í skýrslu sem unnin var í samráði við íbúasamráðsverkefnið varðandi leikvelli og æfingastöðvar á Grensásnum.
7.Bekkir í Stykkishólmi
Málsnúmer 2609003Vakta málsnúmer
Lögð fram samantekt sem unnin var af Landmótun varðandi staðsetningu núverandi bekkja og tillögur að nýjum bekkjum í bænum. Mælst er til þess að fínni bekkir verði í miðbænum og með u.þ.b. 150 metra millibili.
Magnús Ingi fór yfir stöðuna á bekkjum í Stykkishólmi. Nefndin fór yfir samantekt Landmótunar. Heiðrún Edda tekur til máls og kynnir hugmyndir sínar um staðsetningar bekkja í bænum. Nefndin tekur vel í hugmyndir Heiðrúnar og vill koma eftirfarandi ábendingum á framfæri til bæjarstjórnar. Sjá viðhengi.
8.Endurskoðun forvarnarstefnu Sveitarfélagsins Stykkishólms
Málsnúmer 1812022Vakta málsnúmer
Lögð fram forvarnarstefna sveitarfélagsins. Samkvæmt stefnunni hefur starfsfólk sem sinnir æskulýðsmálum í sveitarfélaginu ásamt æskulýðs- og íþróttanefnd yfirumsjón og eftirlit með framkvæmd forvarnarstefnunnar. Stefnuna skal endurskoða á fjögra ár fresti.
Magnús Ingi leggur fram forvarnarstefnu Sveitarfélagsins fyrir nefndina. Nefndarmenn vinna að breytingu á stefnunni fyrir næsta fund.
Magnús Ingi Bæringsson víkur af fundi.
9.Ósk um afstöðu sveitarfélagsins vegna aðgengis barns að íþróttastarfi UMF Snæfells
Málsnúmer 2608046Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins vegna aðgengis barns að íþróttastarfi UMF Snæfells.
Bæjarráð óskaði, á 46. fundi sínum, eftir umsögn æskulýðs- og íþróttanefndar og UMF Snæfells vegna málsins og í því sambandi óskaði bæjarráð sérstaklega eftir að í umsögn UMF Snæfells verði gerð grein fyrir því hvort í gildi séu eða fyrirhugaðar almennar reglur um aðgengi iðkenda að æfingum félagsins þegar viðkomandi hefur keppnisrétt með öðru félagi, á hvaða forsendum slíkar reglur byggjast og hvernig þær samræmast markmiðum samstarfssamnings félagsins og sveitarfélagsins um barna-, unglinga- og afreksstarf.
Bæjarráð fól æskulýðs- og íþróttanefnd jafnframt að fjalla um erindið með hliðsjón af framangreindu og markmiðum samstarfssamningsins og skila umsögn til bæjarráðs.
Að fengnum framangreindum umsögnum verður málið tekið að nýju til umfjöllunar í bæjarráði og eftir atvikum boðað til samráðsfundar ef tilefni er til.

Formaður æskulýðs- og íþróttanefndar fór yfir erindisbréf sem sent var á bæjarstjórn og bæjarstjóra þann 23. ágúst 2026 er varðar ósk um afstöðu sveitarfélagsins vegna aðgengis barns að íþróttastarfi UMF. Snæfells. Svo virðist vera að þetta sé viðfangsefni víða á landsbyggðinni og því tími til kominn að sérsamböndin stígi inn í og aðstoði félögin við að vinna að lausn á þessum málum. Nefndin ber fullt traust til Snæfells að vinna málið af heilindum og bendir aðalstjórn Snæfells á að leita til lögfræðings ÍSÍ og KKÍ við vinnuna sem framundan er.
Fundi slitið - kl. 18:40.