Fara í efni

Knattspyrnuvellir

Málsnúmer 2505002

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn unga fólksins - 2. fundur - 07.05.2025

Fulltrúar bæjarstjórnar unga fólksins taka ástand og stöðu knattspyrnuvalla til umræðu.
Bæjarstjórn unga fólksins leggur til að nýtt gervigras verði sett á sparkvöllinn og að hafinn verði undirbúningur að lagningu tartans á hlaupabraut á íþróttavelli, en tartan mun koma til með að auka nýtingu allra bæjarbúa til heilsueflingar.

Bæjarráð - 33. fundur - 12.05.2025

Fulltrúar bæjarstjórnar unga fólksins tóku, á 2. fundi sínum, ástand og stöðu knattspyrnuvalla til umræðu.



Bæjarstjórn unga fólksins lagði til að nýtt gervigras verði sett á sparkvöllinn og að hafinn verði undirbúningur að lagningu tartans á hlaupabraut á íþróttavelli, en tartan mun koma til með að auka nýtingu allra bæjarbúa til heilsueflingar.
Bæjarráð tekur undir með bæjarstjórn unga fólksins að mikilvægt sé að nýtt gervigras verði sett á sparkvöllinn enda er verkefnið í undirbúningi hjá sveitarfélaginu og stefnt að því að það verði sett á völlinn. Bæjarráð tekur undir með bæjarstjórn unga fólksins að lagning tartans á hlaupabraut á íþróttavelli komi til með að auka nýtingu allra bæjarbúa til heilsueflingar og óskar eftir kostnaðarmati á þeirri framkvæmd. Að öðru leyti er málinu vísað til umfjöllunar í æskulýðs- og íþóttanefnd.

Bæjarstjórn - 37. fundur - 15.05.2025

Fulltrúar bæjarstjórnar unga fólksins tóku, á 2. fundi sínum, ástand og stöðu knattspyrnuvalla til umræðu.



Bæjarstjórn unga fólksins lagði til að nýtt gervigras verði sett á sparkvöllinn og að hafinn verði undirbúningur að lagningu tartans á hlaupabraut á íþróttavelli, en tartan mun koma til með að auka nýtingu allra bæjarbúa til heilsueflingar.



Bæjarráð tók, 33. fundi sínum, undir með bæjarstjórn unga fólksins að mikilvægt sé að nýtt gervigras verði sett á sparkvöllinn enda er verkefnið í undirbúningi hjá sveitarfélaginu og stefnt að því að það verði sett á völlinn. Bæjarráð tók undir með bæjarstjórn unga fólksins að lagning tartans á hlaupabraut á íþróttavelli komi til með að auka nýtingu allra bæjarbúa til heilsueflingar og óskaði eftir kostnaðarmati á þeirri framkvæmd. Að öðru leyti var málinu vísað til umfjöllunar í æskulýðs- og íþóttanefnd.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarstjórn unga fólksins - 3. fundur - 09.04.2026

Málefni knattspyrnuvallar og stúku tekin til umræðu. Fulltrúi bæjarstjórnar unga fólksins gerir grein fyrir málinu.
Bæjarstjórn unga fólksins vill hvetja bæjaryfirvöld til þess að auka viðhald á knattspyrnuvelli sveitarfélagsins og einnig að auka viðhald á stúkunni sem stendur við völlinn.

Bæjarráð - 43. fundur - 27.04.2026

Málefni knattspyrnuvallar og stúku voru tekin til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að auka viðhald á knattspyrnuvelli sveitarfélagsins og einnig að auka viðhald á stúkunni sem stendur við völlinn.
Bæjarráð tekur undir afgreiðslu 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins og vísar málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.

Bæjarstjórn - 47. fundur - 30.04.2026

Málefni knattspyrnuvallar og stúku voru tekin til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að auka viðhald á knattspyrnuvelli sveitarfélagsins og einnig að auka viðhald á stúkunni sem stendur við völlinn.



Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og vísaði málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.



Aðgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tók RMR

Æskulýðs- og íþróttanefnd (SH) - 6. fundur - 29.09.2026

Málefni knattspyrnuvallar og stúku voru tekin til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að auka viðhald á knattspyrnuvelli sveitarfélagsins og einnig að auka viðhald á stúkunni sem stendur við völlinn.



Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og vísaði málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.
Magnús Ingi fór yfir stöðuna á knattspyrnuvellinum við Íþróttamiðstöðina. Starfsmenn bæjarins hafa sinnt vellinum vel í sumar en mikilvægt er að sanda og stinga völlinn til þess að halda honum við. Langstökksgryfjur þarf að passa betur þar sem þær hafa verið nýttar sem sandkassar í sumar. Kaupa þarf læst lok á gryfjurnar til að hlýfa þeim. Þá þyrfti að skoða að setja tartanbraut í fjárhagsáætlun.

Nefndin ræddi um girðinguna sem sett hefur verið í kringum íþróttavöllinn. Mikilvægt er að klára að girða frá stúkunni að Aðalgötunni og finna lausn á girðingarmálum við bókasafnið.

Kominn er tími á að huga að stúkunni, gera hana upp og klæða hana. Stúkan er eitt það fyrsta sem blasir við fólki sem keyrir inn í bæinn. Nefndin vill þrýsta á bæjarstjórn að taka upp samtalið við Veitur á ný í sambandi við lagfæringar á stúkunni.

Bæjarráð - 47. fundur - 22.10.2026

Málefni knattspyrnuvallar og stúku voru tekin til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að auka viðhald á knattspyrnuvelli sveitarfélagsins og einnig að auka viðhald á stúkunni sem stendur við völlinn.



Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og vísaði málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.



Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fór yfir stöðuna á knattspyrnuvellinum á 6. fundi æskulýðs- og íþróttanefndar. Starfsmenn bæjarins hafa sinnt vellinum vel í sumar en mikilvægt er að sanda og stinga völlinn til þess að halda honum við. Langstökksgryfjur þarf að passa betur þar sem þær hafa verið nýttar sem sandkassar í sumar. Kaupa þarf læst lok á gryfjurnar til að hlýfa þeim. Þá þyrfti að skoða að setja tartanbraut í fjárhagsáætlun.



Nefndin ræddi um girðinguna sem sett hefur verið í kringum íþróttavöllinn. Að mati nefndar er mikilvægt er að klára að girða frá stúkunni að Aðalgötunni og finna lausn á girðingarmálum við bókasafnið.



Kominn er tími á að huga að stúkunni, gera hana upp og klæða hana. Stúkan er eitt það fyrsta sem blasir við fólki sem keyrir inn í bæinn. Nefndin vill þrýsta á bæjarstjórn að taka upp samtalið við Veitur á ný í sambandi við lagfæringar á stúkunni.
Bæjarráð vísar til fyrri vinnu í þessu sambandi og þeim undirbúningi sem fram hefur farið nú þegar og beinir því til Veitna að hraða þeirri undirbúningsvinnu og að ráðast í endurbætur á mannvirkinu á árinu 2027 í samstarfi við sveitarfélagið.
Getum við bætt efni síðunnar?