Fara í efni

Leikvellir í Stykkishólmi

Málsnúmer 2604003

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn unga fólksins - 3. fundur - 09.04.2026

Leikvellir og leiktæki í Stykkishólmi tekin til umræðu. Fulltrúi bæjarstjórnar unga fólksins gerir grein fyrir málinu.
Bæjarstjórn unga fólksins hvetur bæjaryfirvöld til þess að fara í úrbætur á leikvöllum í sveitarfélaginu, með það að leiðarljósi að hafa leikvellina fjölbreytta og aðgengilega.

Bæjarráð - 43. fundur - 27.04.2026

Leikvellir og leiktæki í Stykkishólmi voru tekin til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að fara í úrbætur á leikvöllum í sveitarfélaginu, með það að leiðarljósi að hafa leikvellina fjölbreytta og aðgengilega.
Bæjarráð tekur undir afgreiðslu 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins og vísar málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.

Bæjarstjórn - 47. fundur - 30.04.2026

Leikvellir og leiktæki í Stykkishólmi voru tekin til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að fara í úrbætur á leikvöllum í sveitarfélaginu, með það að leiðarljósi að hafa leikvellina fjölbreytta og aðgengilega.



Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og vísaði málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

Æskulýðs- og íþróttanefnd (SH) - 6. fundur - 29.09.2026

Leikvellir og leiktæki í Stykkishólmi voru tekin til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að fara í úrbætur á leikvöllum í sveitarfélaginu, með það að leiðarljósi að hafa leikvellina fjölbreytta og aðgengilega.



Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og vísaði málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.
Nefndin vill þrýsta á bæjarstjórn að hefja uppbyggingu og viðhalda leikvöllum betur í samræmi við þá grunnvinnu sem hefur átt sér stað varðandi þetta mál. Lagt er til að rýnt verði í skýrslu sem unnin var í samráði við íbúasamráðsverkefnið varðandi leikvelli og æfingastöðvar á Grensásnum.

Bæjarráð - 47. fundur - 22.10.2026

Leikvellir og leiktæki í Stykkishólmi voru tekin til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að fara í úrbætur á leikvöllum í sveitarfélaginu, með það að leiðarljósi að hafa leikvellina fjölbreytta og aðgengilega.



Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og vísaði málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.



Æskulýðs- og íþróttanefnda vildi, á 6. fundi sínum, þrýsta á bæjarstjórn að hefja uppbyggingu og viðhalda leikvöllum betur í samræmi við þá grunnvinnu sem hefur átt sér stað varðandi þetta mál. Lagt er til að rýnt verði í skýrslu sem unnin var í samráði við íbúasamráðsverkefnið varðandi leikvelli og æfingastöðvar á Grensásnum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma því á framfæri við þjónustumiðstöð að viðhalda leikvöllum til samræmis við fyrirliggjandi skýrslu en lýsir að sama skapi ánægju með þá vinnu sem fram hefur farið á leikvöllum sveitarfélagsins. Varðandi viðhalds- og fjárfestingarverkefnum er þeim vísað til umfjöllunar í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
Getum við bætt efni síðunnar?