Fara í efni

Forsendur fjárhagsáætlunar 2027-2030

Málsnúmer 2609021

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 46. fundur - 17.09.2026

Lagðar fram forsendur fjárhagsáætlunar 2027 og til þriggja ára 2028-20230
Bæjarráð vísar forsendum til samþykktar í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn - 52. fundur - 01.10.2026

Lagðar fram forsendur fjárhagsáætlunar 2027 og til þriggja ára 2028-2030.



Bæjarráð vísaði, á 43. fundi sínum, forsendum til samþykktar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi forsendur fjárhagsáætlunar 2027 og til þriggja ára 2028-2030.

Samþykkt með 4 atkvæðum fulltrúa H- lista. Fulltrúar Í- lista sitja hjá.

Til máls tóku JBSJ, SBS, SIM, KH.

Bæjarráð - 47. fundur - 22.10.2026

Lögð fram fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2027 og til þriggja ára 2028-2030.



Bæjarráð vísaði, á 43. fundi sínum, forsendum til samþykktar í bæjarstjórn. Bæjarstjórn samþykkti, á 51. fundi sínum, fyrirliggjandi forsendur fjárhagsáætlunar 2027 og til þriggja ára 2028-2030.
Bæjarráð samþykkir fyrliggjandi grunn að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2027 og til þriggja ára 2028-2030 og vísar fjárhagsáætlun til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn - 53. fundur - 29.10.2026

Varaforseti bæjarstjórnar tók við fundarstjórn
Lögð fram fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2027 og til þriggja ára 2028-2030.



Bæjarráð vísaði, á 43. fundi sínum, forsendum til samþykktar í bæjarstjórn. Bæjarstjórn samþykkti, á 51. fundi sínum, fyrirliggjandi forsendur fjárhagsáætlunar 2027 og til þriggja ára 2028-2030.



Bæjarráð samþykkti, á 47. fundi sínum, fyrliggjandi grunn að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2027 og til þriggja ára 2028-2030 og vísaði fjárhagsáætlun til fyrri umræðu í bæjarstjórn.



Þá er lögð fram tillaga forseta bæjarstjórnar um tímabundna lækkun launa bæjarfulltrúa og aðhald og stefnumörkun í fjármálum sveitarfélagsins fyrir árin 2027 og 2028 til afgreiðslu.
Lögð er fram, til fyrri umræðu, tillaga að fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms, stofnana og fyrirtækja, fyrir árið 2027 auk þriggja ára áætlunar fyrir árin 2028-2030, auk fyrirliggjandi tillögu forseta bæjarstjórnar.

Bæjarstjóri gerir grein fyrir helstu forsendum og áherslum í áætluninni.

Í kölfar ávarps bæjarstjóra gerir forseti grein fyrir tillögu sinni um tímabundna lækkun launa bæjarfulltrúa og aðhald og stefnumörkun í fjármálum sveitarfélagsins fyrir árin 2027 og 2028, ásamt fyrirliggjandi greinargerð.

Orðið er í kjölfarið gefið laust og í framhaldi af því gengið til afgreiðslu.

---

Bæjarstjórn samþykkir að útsvar hjá Sveitarfélaginu Stykkishólmi verði 14,97% á árinu 2027.

Samþykkt samhljóða.

---

Þá er tekin til afgreiðslu fyrirliggjandi tillaga forseta bæjarstjórnar, sem skiptist í tvo liði, samtengda, annars vegar um tímabundna lækkun launa bæjarfulltrúa og bæjarstjóra og hins vegar um aðhald og stefnumörkun í fjármálum sveitarfélagsins fyrir árin 2027 og 2028. Tillagan er tekin til afgreiðslu í tvennu lagi.

---

Fyrst er tekin til afgreiðslu fyrri hluti tillögu forseta: "1. Lækkun launa bæjarfulltrúa og bæjarstjóra"

1. Lækkun launa bæjarfulltrúa og bæjarstjóra

-A. Laun bæjarfulltrúa vegna starfa í bæjarstjórn og bæjarráði lækki um 50% frá 1. janúar til 31. desember 2027. Lækkun greiðslna vegna hlutverks forseta bæjarstjórnar lækki þó umfram aðra og lækki um 80%. Lækkunin taki til fastra mánaðargreiðslna og fundargreiðslna miðað við þær greiðslur sem annars hefðu gilt. Hvert hlutverk reiknist sérstaklega og sömu viðmið gildi um varamenn þegar þeir taka sæti.

-B. Forseta bæjarstjórnar verði falið að undirbúa og ganga frá skriflegu samkomulag við bæjarstjóra um launalækkun á sama tímabili. Lækkunin nemi í krónum meðaltalslækkunar (brúttó) til bæjarfulltrúa í bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

---

Næst er tekin til afgreiðslu seinni hluti tillögu forseta: "2. Eftirfarndi markmið og tillögur um aukið aðhald og afkomubata 2027-2028"

2. Eftirfarandi markmið og tillögur um aukið aðhald og afkomubata 2027-2028

-A. Stefnt verði að varanlegum árlegum afkomubata í A-hluta að fjárhæð 80?100 millj. kr., sem komi að fullu fram árið 2028. Megináhersla verði á lækkun rekstrarkostnaðar, einkum með endurskoðun mönnunar/stöðugilda og skipulagi þjónustu (þjónustustig).

-B. Við stefnumörkun og ákvörðunartöku verði miðað við að engin ný lán verði tekin árin 2027 og 2028. Fjárfestingar miðist við svigrúm rekstrar eftir afborganir, aðrar skuldbindingar og nauðsynlegt lausafé. Sala eigna, þar sem við á, geti aukið þetta svigrúm, ef þurfa þykir.

-C. Unnið verði áfram með fyrirliggjandi tillögur og aðrar mögulegar aðgerðar við fjárhagsáætlanir 2027 og 2028 sem styðji framangreind markmið í lið 2 i. Lagt er upp með að horfa til tillagna og hugmynda að stefnumörkun og áherslum í fjárhagsáætlun 2027 sem bæjarstjóri hefur tekið saman. ii. Bæjarráði verði falið að halda áfram greiningu, vinnu við frekari tillögugerð og kostnaðarmati aðhaldsaðgerða með bæjarstjóra og forstöðumönnum.

Samþykkt samhljóða

---

Forseti óskar eftir að það verði fært til bókar, svo að ekki gæti misskilnings, að tillaga 1a á ekki við um laun hjá nefndarmönnum í fastanefndum, öðrum en bæjarráði, nema athugsemdir komi fram um það frá bæjarfulltrúm. Þá óskar forseti jafnframt eftir því að það verði fært til bókar að það hafi verið sameiginleg niðurstaða bæjarfulltrúa H-lista og Í-lista í fundarhléi að fulltrúa Í-listans dragi til baka breytingartillögur sínar, en þeim verður bætt við undir gögn málsins.

---

Bæjarstjórn samþykkir að vísa fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms 2027-2030, með áorðnum breytingum, til síðari umræðu í bæjarstjórn og vísar henni jafnframt til frekari umfjöllunar í bæjarráði og til umsagnar í öðrum fastanefndum sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.


Til máls tóku: JBSJ, BÁS, MAÞ, KH, RTE, SIM, ÞE.

---

Bókun Í-lista:
Íbúalistinn fagnar því að samstaða hafi náðst um að afgreiða sérstaklega tillögur um tímabundna lækkun launa bæjarfulltrúa og bæjarstjóra annars vegar og markmið um bættan rekstur sveitarfélagsins hins vegar.

Við styðjum markmið um aukið aðhald og varanlegan afkomubata. Fulltrúar Íbúalistans hafa um nokkurt skeið bent á mikilvægi þess að bregðast við þróun fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og þeirri áhættu sem fylgir vaxandi skuldsetningu. Það er því ánægjulegt að nú sé samstaða um að horfa til nauðsynlegra aðgerða og skapa traustan og sjálfbæran fjárhagslegan grundvöll fyrir starfsemi sveitarfélagsins til framtíðar.

Við leggjum áherslu á að þær aðgerðir sem ráðist verður í byggist á vandaðri greiningu, raunhæfu kostnaðarmati og skýru mati á áhrifum þeirra á þjónustu, starfsfólk og íbúa sveitarfélagsins. Fjárhagsleg ábyrgð snýst ekki eingöngu um að draga úr útgjöldum, heldur einnig um skynsamlega nýtingu fjármuna, góða forgangsröðun og að tryggja að ákvarðanir skili raunverulegum og varanlegum árangri.

Íbúalistinn er tilbúinn til málefnalegs og uppbyggilegs samstarfs um þær ákvarðanir sem fram undan eru. Við leggjum áherslu á að allir bæjarfulltrúar hafi raunverulegt tækifæri til þátttöku í þeirri vinnu, með vandaðan undirbúning, gagnsæi og langtímahagsmuni samfélagsins að leiðarljósi.

Bæjarfulltrúa Í-lista.
Forseti bæjarstjórnar tók aftur við fundarstjórn.

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd (SH) - 7. fundur - 04.11.2026

Lögð fram til umsagnar fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2027?2030 að lokinni fyrri umræðu í bæjarstjórn 29. október. Óskað er umsagnar nefndarinnar um þá liði áætlunarinnar sem varða atvinnu-, nýsköpunar- og ferðamál.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd gerir ekki athugasemd við fyrirliggajndi fjárhagsáætlun.
Hún leggur þó áherslu á að innan fyrirliggjandi fjárheimilda verði í forgangi að fylgja eftir samningi um þekkingarsetrið, kynna atvinnulóðir við Kallhamar og vinna með atvinnurekendum að verkefnum í ferðaþjónustu, þ.m.t. fyrirhugað auglýsingaskilti.

Skóla- og fræðslunefnd - 29. fundur - 09.11.2026

Lögð fram fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2027 og til þriggja ára 2028-2030.



Bæjarstjórn samþykkti, á 53. fundi sínum, að vísa fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms 2027-2030, með áorðnum breytingum, til síðari umræðu í bæjarstjórn og vísar henni jafnframt til frekari umfjöllunar í bæjarráði og til umsagnar í öðrum fastanefndum sveitarfélagsins.
Skóla- og fræðslunefnd þakkar Kristrúnu frá Ásgarði og Jakobi Björgvini bæjarstjóra fyrir sína yfirferð.

Skóla- og fræðslunefnd hvetur bæjarstjórn til að kanna möguleika á að bjóða nemendum 3. og 4. bekkjar upp á frístundastarf, að öðru leyti gerir nefndin ekki athugasemdir við fjárhagsáætlun 2027-2030.

Safna- og menningarmálanefnd - 8. fundur - 11.11.2026

Lögð fram fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2027 og til þriggja ára 2028-2030.



Bæjarstjórn samþykkti, á 53. fundi sínum, að vísa fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms 2027-2030, með áorðnum breytingum, til síðari umræðu í bæjarstjórn og vísar henni jafnframt til frekari umfjöllunar í bæjarráði og til umsagnar í öðrum fastanefndum sveitarfélagsins.
Safna- og menningarmálanefnd gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi fjárhagsáætlun.

Ungmennaráð - 12. fundur - 11.11.2026

Lögð fram fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2027 og til þriggja ára 2028-2030.



Bæjarstjórn samþykkti, á 53. fundi sínum, að vísa fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms 2027-2030, með áorðnum breytingum, til síðari umræðu í bæjarstjórn og vísar henni jafnframt til frekari umfjöllunar í bæjarráði og til umsagnar í öðrum fastanefndum sveitarfélagsins.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnti fyrir ráðinu fjárhagsáætlun og komu engar athugasemdir fram eða ábendingar.

Skipulagsnefnd - 46. fundur - 12.11.2026

Lögð fram til umsagnar fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2027-2030 að lokinni fyrri umræðu í bæjarstjórn 29. október. Óskað er umsagnar nefndarinnar um þá liði áætlunarinnar sem varða málefnasvið nefndarinnar.
Skipulagsnefnd hefur ekki athugasemd við fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
SBS situr hjá við afgreiðslu málsins.
Getum við bætt efni síðunnar?