Ungmennaráð
Dagskrá
1.Barnvæn Sveitarfélög
Málsnúmer 2510023Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá UNICEF á Íslandi sem hefur nú opnað fyrir umsóknir um þátttöku í verkefninu Barnvæn sveitarfélög.
Bæjarráð vísaði erindinu, á 37. fundi sínum, til umsagnar í æskulýðs- og íþróttanefnd og ungmennaráði.
Ungmennráð taldi, á 9. fundi sínum, Sveitarfélagið Stykkishólm vera að uppfylla flestar tillögur og hollráð sem UNICEF leggur fyrir. Ráðið vildi þó ekki taka formlega ákvörðun nema fá nánari upplýsingar um hvað felst í því að taka þátt í verkefni UNICEF um barnvæn sveitarfélög og óskaði því eftir betri kynningu á verkefninu.

Íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnti barnvæn sveitarfélög og hvað felst í því. Ungmennaráð óskar eftir að fulltrúi UNICEF komi og kynni fyrir ungmennaráði og bæjarstjórn hvaða felst í umsókn um þátttöku í verkefninu barnvæn sveitarfélög. Ráðið vill ekki taka formlega ákvörðun áður að þau fá betri kynningu hvað varðar skuldbindingu við verkefnið.
2.Ungmennaráðstefna Sveitarfélaga
Málsnúmer 2511013Vakta málsnúmer
Lögð fram dagskrá ungmennaráðs sveitarfélaga 2025 sem haldið er í tilefni 80 ára afmælis Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Ráðstefnan fór fram 5. desember sl. og þar sem fulltrúi Stykkishólms á ráðstefnunni boðaði forföll á síðasta fund ungmennaráðs var ákveðið að fresta þessum lið til næsta fundar. Málið er því tekið upp að nýju.

Katrín Mjöll kynnti fyrir ungmennaráði ungmennaráðsstefnu sveitarfélaga sem hún sótti og var haldin 5. desember 2025.
3.Samvest
Málsnúmer 2602025Vakta málsnúmer
Íþrótta- og tómstundafulltrúi gerir grein fyrir málinu.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnti fyrir ráðinu viðburðinn Samvest, sem verður haldið í íþróttahúsinu í Stykkishólmi 5. mars. Kynnti hann einnig plönin fyrir undirbúning við atburðinn. Óskað er eftir sjálfboðaliðum við uppsetningu, en þar sem nemendur FSN eru í skíðaferð á þessum tíma var lagt til að nemendaráð grunnskólans í ráðinu gangi í bekkina í GSS og tryggi aðstoð við uppsetningu.
Katrín Mjöll benti á að fram hefði komið á ungmennaráðstefnunn Sveitarfélaga að sum ungmennaráð sveitarfélaga hafa það verkefni að koma að uppsetningu viðburða fyrir ungmenni.
Katrín Mjöll benti á að fram hefði komið á ungmennaráðstefnunn Sveitarfélaga að sum ungmennaráð sveitarfélaga hafa það verkefni að koma að uppsetningu viðburða fyrir ungmenni.
4.Stefna í íþróttamálum m.t.t. uppbyggingar íþróttatengdra mannvirkja
Málsnúmer 1905025Vakta málsnúmer
Lögð fram 3. fundargerð starfsóps um íþróttastefnu Stykkishólms. Íþrótta- og æskulýðsfulltri gerir grein fyrir þeirri vinnnu sem innt hefur verið af hendi.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnti markmið og vinnu starfshóps og fór yfir helstu tillögur og forgangsröðun sem hafa komið fram varðandi uppbyggingu íþróttatengdra mannvirkja.
Farð yfir ræddar tillögur til starfshóps af möguleikum varðandi staðsetningu mannvirkja fyrir íþróttatengda starfsemi og möguleika varðandi framkvæmdir fyrir framtíðina. Ungmennaráðinu lýst vel á það sem komið er fram og ræddi sínar skoðanir og áherslur. Ráðið mun í framhaldi íhuga tillögurnar og velta fyrir framtíðarmöguleikum fyrir næsta fund ráðsins.

5.Bæjarstjórn unga fólksins
Málsnúmer 2311010Vakta málsnúmer
Á 9. fundi ungmennaráðs fór fram umræða um bæjarstjórn unga fólksins. Ungmennaráð lagði til við bæjarstjórn að næsti bæjarstjórnarfundur unga fólksins færi fram 7. maí 2026.
Bæjarráð samþykkti, á 40. fundi sínum, að bæjarstjórnarfundur unga fólksins verði haldinn en óskar eftir annarri tillögu að fundartíma sem fellur betur að fyrirliggjandi fundaráætlun bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Ungmennaráð gerir tillögu að bæjarstjórnarfundur unga fólksins verði haldið 9. apríl, 2026. Næsti vinnufundur ráðsins var ákveðinn 10. mars, 2026 klukkan 20:00 til undirbúnings fyrir bæjarstjórnarfund unga fólksins.
Fundi slitið - kl. 21:48.