Bæjarstjórn
1.Bæjarráð - 41
Málsnúmer 2602003FVakta málsnúmer
2.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 46
Málsnúmer 2601003FVakta málsnúmer
3.Skipulagsnefnd - 39
Málsnúmer 2602002FVakta málsnúmer
4.Skóla- og fræðslunefnd - 24
Málsnúmer 2602001FVakta málsnúmer
5.Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2102003Vakta málsnúmer
6.Farsímasamband í kjölfar lokunar 2G og 3G
Málsnúmer 2602003Vakta málsnúmer
7.Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030
Málsnúmer 2601015Vakta málsnúmer
Jafnframt eru lögð fram bréf sem sveitarfélagið sendi forsætisráðherra og innviðaráðherra þar sem áherslur sveitarfélagsins, einkum varðandi Breiðafjarðarferjuna Baldur, eru áréttaðar.
8.Erindi Breiðafjarðarnefndar vegna jarðvinnu við Búðanes
Málsnúmer 2502003Vakta málsnúmer
Til máls tók RMR og JBSJ.
9.Merkjalýsing - Daddavík 6
Málsnúmer 2501003Vakta málsnúmer
Bæjarráð samþykkti, á 41. fundi sínum, merkjalýsingu og vísaði henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
10.Þjóðhátíðarnefnd
Málsnúmer 2211003Vakta málsnúmer
Bæjarráð samþykkti tillöguna á 41. fundi sínum og vísaði skipuninni til bæjarstjórnar.
1. Ellen Alfa Högnadóttir
2. Sveinn Davíðsson
3. Bæring Magnússon
4. Andri Þór Hinriksson
5. Dagný Rún Þorgrímsdóttir
6. Harpa Björk Eiríksdóttir
7. Helga Hjördis Björgvinsdóttir
8. Kristinn Már Pálsson
9. Kjartan Jóhannes Karvelsson
10. Mariusz Piotr Maszota
11. Lára Björg Björgvinsdóttir
12. Bence Pető
Samþykkt samhljóða
11.Gjaldtaka bílastæða á hafnarsvæði
Málsnúmer 1909018Vakta málsnúmer
Bæjarráð samþykkti heimildina, á 35. fundi sínum, og vísaði áframhaldandi fyrirkomulagi gjaldtöku til umfjöllunar hjá atvinnu- og nýsköpunarnefnd. Atvinnu- og nýsköpunarnefnd tók, á 6. fundi sínum, undir að gjaldtakan á hafnarsvæðinu sé mikilvægur þáttur í uppbyggingu og viðhaldi þeirra innviða sem þjónusta ferðamenn. Nefndin samþykkti fyrirliggjandi tillögu um að styðja við heimild rekstraraðila til að veita viðskiptavinum sínum gjaldfrjáls bílastæði, enda sé slíkt úrræði skynsamleg leið til að styðja við ferðaþjónustu á hafnarsvæðinu í ljósi gjaldtökunnar.
Í kjölfarið voru haldnir fundir með ferðaþjónustuaðilum og öðrum hagsmunaaðilum, og bæjarstjóra falið að endurskoða gjaldtöku. Lögð var fram tillaga að breyttri gjaldskrá sem bæjarráð samþykkti með fyrirvara um samráð við hafnarstjórn og atvinnu- og nýsköpunarnefnd.
Bæjarstjóri gerði, á 41. fundi bæjarráðs, grein fyrir fundum sínum með ferðaþjónustuaðilum á hafnarsvæði í samræmi við umræðu á síðasta fundi bæjarráðs með það að markmiði að aðlaga gjaldtöku á svæðinu þannig að hún hafi sem minnst áhrif á ferðaþjónustuaðila á hafnarsvæðinu. Á grunni framangreindra samtala var lögð fram fram tillaga að breyttri gjaldtöku á hafnarsvæði. Bæjarráð samþykkti fyrirliggjandi tillögu að endurskoðun á gjaldskrám með fyrirvara um samráð við hafnarstjórn og atvinnu- og nýsköpunarnefnd. Lögð er nú fram fundargerð frá samráðsfundi með hafnarstjórn og atvinnu- og nýsköpunarnefnd, sem fram fór föstudaginn 20. febrúar.
Lagt fram uppfært minnisblað bæjarstjóra í kjölfar fundar bæjarráðs og samráðsfundar.
Samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: KH, JBSJ
Bókun bæjarfulltrúa Í-lista:
Íbúalistinn fagnar því að við séum að bakka aðeins til baka með gjaldtökuna á bílastæðunum við höfnina og að við getum litið á útfærslu síðasta sumars sem mistök sem hægt er að læra af. Við samþykkjum núverandi tillögu.
Undir þetta rita
Kristján Hildibrandsson
Ragnar Már Ragnarsson
Heiðrún Höskuldsdóttir
12.Ný spennistöð við Austurgöt 4c
Málsnúmer 2602007Vakta málsnúmer
Bæjarráð samþykkti, á 41. fundi sínum, áform Rarik og vísaði þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
13.Styrkumsóknir
Málsnúmer 2303021Vakta málsnúmer
Bæjarráð samþykkti, á 41. fundi sínum, fyrirliggjandi tillögu og vísaði henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
1. Leikfélagið Grímnir - kr. 100.000 til smærri viðburða.
2. Eyrbyggjusögufélagið - kr. 100.000 til viðburða.
3. Yoga/vellíðunarstúdíó - kr. 150.000 í aðstöðustyrk.
4. Kerlingarskarðshlaup - kr. 50.000 ásamt frítt í sund.
5. Júlíana - hátíð 2026 - kr. 100.000 til hátíðarinnar.
6. Heima í Hólmi 2026 - kr. 100.000 til hátíðarinnar.
7. Píludeild Mostra - kr. 100.000 til kaupa á píluspjöldum og rafeindabúnaði.
Samþykkt samhljóða.
14.Málefni félags- og skólaþjónustu Snæfellsnes
Málsnúmer 2102011Vakta málsnúmer
Bæjarráð vísaði, á 41. fundi sínum, tillögu skóla- og fræðslunefndar til bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
15.Endurskoðun aðalskipulags
Málsnúmer 2206040Vakta málsnúmer
Skipulagsráðgjafi kynnir lýsinguna á 39. fundi skipulagsnefndar. Skipulagsnefnd samþykkti að kynna verkefnislýsinguna sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð samþykkti, á 41. fundi sínum, afgreiðslu skipulagsnefndar og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja verkefnislýsinguna til kynningar skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða.
16.Hraðhleðslustöðvar
Málsnúmer 2405055Vakta málsnúmer
Skipulagsfulltrúi lagði, á 39. fundi skipulagsnefndar, fram tvær tillögur að breytingu á deiliskipulagi Klapparás, verslunar- og þjónustusvæði, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd fór yfir tillögurnar að breytingu á deiliskipulagi. Nefndin valdi tillögu nr. 1 og lagði til að áfangaskipta eftir eftirspurn. Nefndin fól skipulagsfulltrúa að fullvinna þá tillögu og leggja aftur fyrir skipulagsnefnd.
Bæjarráð samþykkti, á 41. fundi sínum, afgreiðslu skipulagsnefndar og vísaði henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
17.Úlfarsfell, byggingarleyfisumsókn
Málsnúmer 2601005Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd heimilaði, á 39. fundi sínum, byggingu ný íbúðarhúss og bílskúrs/gestarými í landi Úlfarsfells, þar sem heimild er fyrir því í Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022, en heimilt er að byggja fjögur stök íbúðarhús á jörðinni og þrjú frístundahús án þess að gera þurfi deiliskipulag. Á jörðinni er nú þegar staðsett eitt frístundahús og geymsluhús.
Bæjarráð samþykkti, á 41. fundi sínum, afgreiðslu skipulagsnefndar og vísaði henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
Til máls tók: RMR
18.Ægisgata 1, fyrirspurn um sólskála
Málsnúmer 2601009Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd heimilaði, á 39. fundi sínum, byggingu sólskála og taldi ekki þörf á grenndarkynningu þar sem um er að ræða glerþak ofan á núverandi staðsteypta veggi framan við húsið. Staðsteypti veggurinn er 1,54 m á hæð og verður hækkunin 0,5 m eða 2,04 m þar sem hún er lægst og fer upp í 2,81 m þar sem hæðin er mest og er það fyrir miðju svæðisins.
Bæjarráð samþykkti, á 41. fundi sínum, að grenndarkynna málið fyrir eigendum Tangagötu 1 og 2 og Ægisgötu 3, 5, 7 og 9 og vísaði afgreiðslu bæjarráðs til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
19.Jónsnes, fuglaskoðunarhús
Málsnúmer 2602009Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefnar.
Ennremur er sótt um framkvæmdaleyfi fyrir vegstæði að húsi.
Skipulagsnefnd heimilaði, á 39. fundi sínum, byggingu húnsæðis á grunni framanlagðra ganga, þar sem heimild er fyrir því í Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022, en heimilt er að byggja fjögur stök íbúðarhús og þrjú frístundahús án þess að gera þurfi deiliskipulag. Á jörðinni er nú þegar eitt íbúðarhús, tvær geymslur og hjallur, skv. fasteignaskrá.
Skipulagsnefnd gat ekki fallist á að um fuglaskoðunarbirgi sé að ræða sbr. upptalningu í kafla 4.1 í aðalskipulagi Helgafellssveitar.
Í ljósi þess að ekki hefur verið fallist á að um fuglaskoðnarbirgi sé að ræða áréttaði nefndin að formlega þarf að ganga frá skilgreiningu húsnæðisins, frístundahús/íbúðarhús, áður en áformin verða endanlega samþykkt af hálfu byggingarfulltrúa.
Skipulagsnefnd lagði áherslu á að húsið verði staðsett 50 m. frá sjó og að yfirlitsmynd sé í réttum kvarða.
Ekki er hægt að veita framkvæmdaleyfi fyrir vegstæði, þar sem gögn vantar s.s. hönnun vegarins og fl. gögn sbr. 7.gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Umsagnir Skipulagsstofnunar, Vegagerðarinnar, Minjastofnunar og Náttúruverndarstofnunar liggja fyrir. Skipulagsnefnd frestaði afgreiðslu um framkvæmdaleyfi þar til fullnægjandi gögn berast.
Bæjarráð samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar,á 41. fundi sínum, og vísaði henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
Til máls tók RMR.
20.Berserkjahraun Sjávarhús
Málsnúmer 2503016Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 29. fundi sínum þann 10. apríl 2025 og var samþykkt að afla umsagna frá Minjastofnun og Náttúruverndarstofnun og að sækja þurfi framkvæmdaleyfi fyrir vegi að húsinu. Einnig benti skipulagsnefnd að byggingarreitur skuli ekki vera nær en 50 metrum frá fjöruborði miðað við stórstraumsflæði. Bæjarráð og bæjarstjórn staðfestu afgreiðslu skipulagsnefndar á 32. fundi bæjarráðs og 36. fundi bæjarstjórnar.
Skipulagsnefnd heimilaði, á 39. fundi sínum, byggingu sjávarhúss/frístundahús í landi Berserkjahrauns þar sem heimild er fyrir því í Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022, en heimilt er að byggja fjögur stök íbúðarhús á jörðinni og þrjú frístundahús án þess að gera þurfi deiliskipulag. Á jörðinni er nú þegar eyðibygging og heimild er til að vinna deiliskipulag vegna frístundahúss.
Bæjarráð samþykkti, á 41. fundi sínum, afgreiðslu skipulagsnefndar og vísaði henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
21.Samstarf um uppbyggingu í Víkurhverfi
Málsnúmer 2401022Vakta málsnúmer
Bæjarstjórn vísaði samningaviðræðum við Skipavík ehf. til vinnslu í bæjarráði og lagði til samráð við skipulagsnefnd um skipulagshluta samningsins. Þá óskaði bæjarstjórn þess að fulltrúar Skipavíkur ehf. fengju sem fyrst tækifæri til þess að kynna áform sín og hugmyndir nánar á sameiginlegum fundi bæjarráðs og skipulagsnefndar. Á 36. fundi bæjarráðs mættu fulltrúar Skipavíkur ehf. til fundar við bæjarráð og gerðu grein fyrir áætlunum sínum. Bæjarráð fól bæjarstjóra að leggja grunn að drögum að samkomulagi í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir bæjarráð.
Í samræmi við ofangreint voru lögð fram drög að samkomulagi milli sveitarfélagsins og Skipavíkur ehf. á 40. fundi bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkti, á 40. fundi sínum, að haldinn yrði sameiginlegur vinnufundur með fulltrúum skipulagsnefndar og bæjarstjórnar þar sem línur sveitarfélagsins yrðu lagðar og í framhaldi af þeim fundi muni bæjarráð funda ásamt formanni skipulagsnefndar með fulltrúum Skipavíkur ehf.
Bæjarráð fól bæjarstjóra, á 40. fundi sínum, að óska eftir fundi með Skipavík ehf. til að fjalla um samkomulag milli sveitarfélagsins og Skipavíkur ehf.
Á 39. fundi skipulagsnefndar mættu bæjarfulltrúar og fulltrúar Skipavíkur til fundar og gerðu grein fyrir málinu. Skipulagsnefnd tók jákvætt í frekari uppbyggingaráform í Víkurhverfi og lagði til að bæjarráð gangi frá viljayfirlýsingu við Skipavík.
Bæjarráð samþykkti á 41. fundi sínum viljayfirlýsingu við Skipavík ehf. og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja hana.
Til máls tóku RMR, JBSJ
22.Samkomuhúsið í Stykkishólmi við Aðalgötu 6
Málsnúmer 2006020Vakta málsnúmer
Bæjarráð tók, á 40. fundi sínum, jákvætt í fyrirliggjandi hugmyndir og fól bæjarstjóra að halda áfram viðræðum við Aftanskin um fyrirliggjandi samningsdrög og lagði til að málið yrði kynnt safna- og menningarmálanefnd.
Bæjarráð vísaði, á 41. fundi sínum, samningnum til samþykktar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir drög að samningi um afnot Samkomuhússins, með þeim viðbótum sem gerðar hafa verið, með því skilyrði að óháð og fagleg úttekt fari fram áður en starfsemi hefst og að staðfest verði að loftgæði séu ekki heilsuspillandi. Starfsemi skal ekki hefjast nema fyrir liggi staðfesting um að notkun húsnæðisins valdi ekki heilsutjóni. Þá skal gerð úttekt að nýju innan skamms tíma frá opnun og tryggt reglulegt eftirlit í framhaldinu. Fyrirliggjandi skýrslur um ástand húsnæðisins skulu fylgja samningnum.
Samþykkt með 4 atkvæðum bæjarfulltrúa H-lista gegn 3 atkvæðum bæjarfulltrúa Í-lista.
Til máls tóku RMR, HH, JBSJ, SIM, KH, ÞE
Bókun bæjarfulltrúa Í-listans:
Árið 2021 vann Verkfræðistofan Verksýn úttektarskýrslu á ástandi Aðalgötu 6 gamla samkomuhúsinu. Á sama tíma voru tekin sýni úr húsinu sem send voru til rannsóknar og kom í ljós að mikil mygla er í húsinu sem getur verið mjög skaðleg fyrir heilsu fólks, og jafnvel krabbameinsvaldandi.
Það er engan veginn boðlegt að meirihluti bæjarstjórnar ætli að líta framhjá alvarleika þeirra úttekta og rannsókna sem gerðar hafa verið á húsinu og ætla að afhenda það undir félagsstarf eldri borgara og golfhermi.
Undirrituð harma þessa niðurstöðu meirihlutans en með henni er meirihlutinn að taka áhættu með heilsu fólks.
Undirrituð
Ragnar Már Ragnarsson
Heiðrún Höskuldsdótti
Kristján Hildibrandsson
Bókun bæjarfulltrúa H- lista:
Fulltrúar H-lista telja mikilvægt að finna Samkomuhúsinu við Aðalgötu 6 hlutverk við hæfi og vinna markvisst að því að koma húsnæðinu aftur í samfélagslega notkun. Húsið er hluti af sögu samfélagsins og hefur um áratugaskeið verið vettvangur samkomu og menningarstarfs.
Fulltrúar H-lista telja rétt að bregðast við áhuga og frumkvæði sjálfboðaliða í sveitarfélaginu, sem kom að þeirra frumkvæði og láta reyna á verkefnið í áföngum, þar sem unnið er að úrbótum í smærri skrefum á meðan unnið er að undirbúningi og skipulagi á umfangsmeiri framkvæmdum á húsnæðinu.
Heilsa og öryggi íbúa skulu ávallt vera í forgangi. Því er það áréttað að gert er skilyrði af hálfu H-lista að óháð og fagleg úttekt fari fram áður en nokkur starfsemi hefst og að staðfest verði að loftgæði séu í lagi. Ekki er verið að líta fram hjá skýrslum um ástand hússins, heldur er einmitt brugðist við þeim með ábyrgum hætti með því að gera ráð fyrir úttekt áður en notkun hefst og reglulegri eftirfylgni í framhaldinu. Í þessu samhengi viljum við benda á framlagða breytingatillögu við 3. gr. samningsins við Aftanskin en þar stendur: Starfsemi á grundvelli samnings þessa skal ekki hefjast nema fyrir liggi óháð og fagleg úttekt sem staðfesti að loftgæði í húsnæðinu séu fullnægjandi og að notkun þess valdi ekki heilsutjóni. Við mat á því skal meðal annars byggt á fyrirliggjandi skýrslum og gögnum um ástand húsnæðisins, sem fylgja samningi þessum sem fylgiskjöl, og skal úttekt taka mið af þeim athugasemdum og ráðleggingum sem þar koma fram.
Jafnframt skal gerð úttekt að nýju innan hæfilegs tíma frá því að starfsemi hefst og tryggt reglulegt eftirlit í framhaldinu í samræmi við ráðleggingar sérfræðinga og ákvörðun sveitarfélagsins hverju sinni. Sveitarfélaginu er heimilt að fresta eða stöðva starfsemi tímabundið ef niðurstöður úttektar eða eftirlits gefa tilefni til, þar til fullnægjandi úrbætur hafa farið fram.
Það liggur fyrir að vilji er til staðar af hálfu H-lista til að nýta kraft samfélagsins til góðra verka og ef tekst að koma húsnæðinu í nothæft og öruggt ástand er það mjög jákvætt skref. Verkefnið er samfélagsverkefni og byggir á samstarfi og samvinnu innan sveitarfélagsins. Fulltrúar H-lista líta á þetta jafnframt sem mögulegt fyrsta skref í endurbyggingu húsnæðisins sem lengi hefur staðið til, þó slík ákvörðun hafi ekki verið tekin formlega.
Við áréttum að lokum að ætlun okkar er að ekki verði tekin nein áhætta þegar kemur að heilsu fólks og að tryggð verði góð upplýsingagjöf um stöðu húsnæðisins.
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir
Steinunn Magnúsdóttir
Ragnar Ingi Sigurðsson
Þórhildur Eyþórsdóttir
23.Framkvæmdaleyfisumsókn - Endurbygging Stykkishólmsvegar (58) Þingvallavegur - Stykkishólmur - Endurbætur
Málsnúmer 2602010Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd lagði til, á 39. fundi sínum, að skipulagsfulltrúi afgreiði framkvæmdaleyfisumsóknina.
Bæjarráð samþykkti, á 41. fundi sínum, afgreiðslu skipulagsnefndar og vísaði henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Til máls tók RMR, JBSJ, HH.
Samþykkt samhljóða.
24.Minnispunktar bæjarstjóra
Málsnúmer 1808022Vakta málsnúmer
Fundi slitið - kl. 18:56.