Fara í efni

Bæjarstjórn

37. fundur 15. maí 2025 kl. 17:00 í bæjarstjórnarsal
Nefndarmenn
  • Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir aðalmaður
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir (HH) aðalmaður
  • Þórhildur Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Ragnar Ingi Sigurðsson aðalmaður
  • Ragnar Már Ragnarsson aðalmaður
  • Haukur Garðarsson (HG) aðalmaður
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir Forseti
  • Heiðrún Höskuldsdóttir (HHÖ) aðalmaður
Starfsmenn
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
  • Jón Sindri Emilsson
  • Hrefna Gissurardóttir
  • Gyða Steinsdóttir
Fundargerð ritaði: Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Bæjarráð - 33

Málsnúmer 2505003FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 33. fundar bæjarráðs.
Lagt fram til kynningar.

2.Hafnarstjórn (SH) - 8

Málsnúmer 2505002FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 8. fundar hafnarstjórnar.
Lagt fram til kynningar.

3.Skóla- og fræðslunefnd - 20

Málsnúmer 2504005FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 20. fundar skóla- og fræðslunefndar.
Lagt fram til kynningar.

4.Ungmennaráð - 8

Málsnúmer 2504007FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 8. fundar ungmennaráðs.
Lagt fram til kynningar.

5.Bæjarstjórn unga fólksins - 2

Málsnúmer 2505001FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 2. fundar bæjarstjórnar unga fólksins.
Lagt fram til kynningar.

6.Bréf til bæjarstjórnar frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga

Málsnúmer 2504013Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga til bæjarstjórnar vegna yfirferðar fjárhagsáætlunar 2025.
Lagt fram til kynningar.

7.Fundargerð stjórnarfundar Jeratúns ehf. og ársreikningur 2024

Málsnúmer 2505011Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð stjórnarfundar Jeratúns ehf. frá 25. apríl 2025 ásamt ársreikningi fyrir árið 2024.
Lagt fram til kynningar.

8.Umsókn um stöðuleyfi - Skrifstofa Ferjuleiða

Málsnúmer 2504026Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Ferjuleiða ehf. um 20 ft. skrifstofugám við ekjubrú á hafnarsvæði.



Bæjarráð fól, á 32. fundi sínum, hafnarstjórn fullnaðarumboð til ákvörðunar á staðsetningu. Bæjarráð fól jafnframt byggingarfulltrúa afgreiðslu málsins í kjölfarið. Þá hvatti bæjarráð Ferjuleiðir ehf. að finna framtíðarlausn sem fellur betur að umhverfinu.



Hafnarstjórn tók, á 5. fundi, undir með bæjarráði varðandi mikilvægi þess að finna viðunandi framtíðarlausn.



Hafnarstjórn hafði efasemdir um að sú staðsetning sem lögð er til í erindinu sé heppileg út frá umferðaröryggi og öðrum þáttum miðað við umfang starfsemi hafnarinnar á þessu svæði á sumrin. Hafnarstjórn gat því ekki samþykkt þá staðsetningu.



Hafnarstjórn taldi fara best á því að staðsetja skrifstofugám á bílastæðum norðanmegin við Smiðjustíg 3, gegn því að fundið verði sanngjarnt verð fyrir leigu á aðstöðu til viðbótar stöðuleyfisgjald þar sem það liggur fyrir að sveitarfélagið verður af tekjum af þeim bílastæðum sem fara undir skrifstofuhúsnæðið. Einnig þarf fyrirtækið að standa undir þeim kostnaði sem þarf til að nýta megi svæðið. Að öðrum kosti taldi hafnarstjórn að nýta þurfi núverandi skilgreint þjónustusvæði undir skrifstofugám. Á þessum forsendum samþykkti hafnarstjórn staðsetningu fyrir stöðuleyfi á hafnarsvæðinu út september 2025.



Hafnarstjórn fól formanni að taka samtal við ferjuleiðir og byggingarfulltrúa varðandi niðurstöðu hafnarstjórnar og eftir atvikum heimild til færslu á skrifstofugám innan svæðanna ef framangreindar staðsetningar eru með öllu óásættanleg með tilliti til ytri þátta.
Lagt fram til kynningar.

9.Úttekt á kennslumagni Grunnskólans í Stykkishólmi

Málsnúmer 2501011Vakta málsnúmer

Á 19. fundi skóla- og fræðslunefndar var lögð fram skýrsla Ásgarðs skólaráðgjafaþjónustu vegna úttektar á úthlutun á kennslumagni og sérkennslu/stuðningi við Grunnskólanum í Stykkishólmi í samræmi við tillögur og hugmyndir í stefnumörkun og áherslum sveitarfélagsins í fjárhagsáætlun 2025. Samþykktar voru tvær aðgerðir á fundinum sem bæjarstjórn staðfesti á 34. fundi sínum.



Á 20. fundi nefndarinnar voru lagðar fram tillögur að kennslukvóta og úrbótum fyrir skólaárið 2025-2026.

Skóla- og fræðslunefnd samþykkti, fyrir sitt leyti, tillögur að kennslukvóta og úrbætur fyrir skólaárið 2025-2026.



Bæjarráð samþykkti, á 33. fundi sínum, fyrirliggjandi tillögur að kennslukvóta og úrbætur fyrir skólaárið 2025-2026 og vísaði málinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir tillögur að kennslukvóta og úrbætur fyrir skólaárið 2025-2026.

10.Húsnæðisáætlun sveitarfélagsins

Málsnúmer 2311014Vakta málsnúmer

Lögð fram húsnæðisáætlun sveitarfélagsins í tengslum við vinnu við gerð áætlunar fyrir árið 2025.



Bæjarráð samþykkti fyrirliggjandi húsnæðisáætlun á 33. fundi sínum.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi húsnæðisáætlun sveitarfélagsins.

11.Framkvæmdaleyfi vegna ljósleiðaralagna

Málsnúmer 2302026Vakta málsnúmer

Lögð fram ósk Mílu eftir framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara í Stykkishólmi.



Áætlaður verktími eru 15-20 vinnudagar og gert ráð fyrir að hefja framkvæmdir um mánaðarmót júlí/ágúst 2025.



Bæjarráð samþykkti, á 33. fundi sínum, fyrirliggjandi framkvæmdir.
Bæjarstjórn staðfestir ákvörðun bæjarráðs.

12.Sameiginlegar reglur um stuðningsþjónustu á Snæfellsnesi

Málsnúmer 2412005Vakta málsnúmer

Á 36. fundi bæjarstjórnar var lögð fram til fyrri umræðu tillaga Félags- og skólaþjónusu Snæfellinga að sameiginlegum reglum sveitarfélaga á Snæfellsnesi um stuðningsþjónustu.



Bæjarstjórn vísarði reglunum til síðari umræðu í bæjarstjórn.



Á 33. fundi sínum vísaði bæjarráð reglunum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir sameiginlegar reglur sveitarfélaga á Snæfellsnesi um stuðningsþjónustu, en núverandi reglur um stuðningsþjónustu munu gilda þar til nýjar sameiginlegar reglur taka gildi.

13.Skólamál

Málsnúmer 2405008Vakta málsnúmer

Fulltrúar bæjarstjórnar unga fólksins tóku, á 2. fundi sínum, mötuneytismál í Fjölbrautaskóla Snæfellinga til umræðu.



Bæjarstjórn unga fólksins taldi matarverð í mötuneyti Fjölbrautaskóla Snæfellinga of hátt og að maturinn skorti fjölbreytileika. Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjarstjórn til þess að beita sér fyrir lækkun á verði máltíða til nemenda í Fjölbrautaskóla Snæfellinga og auknum fjölbreytileika í matarvali.



Bæjarráð vísaði, á 33. fundi sínum, tillögum og áherslum bæjarstjórnar unga fólksins í tengslum við mötuneyti Fjölbrautaskóla Snæfellinga til vinnslu til skólanefndar Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

14.Samgöngumál

Málsnúmer 2505001Vakta málsnúmer

Fulltrúar bæjarstjórnar unga fólksins tóku, á 2. fundi sínum, samgöngumál til umræðu.



Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjarstjórn Stykkishólms til að beita sér fyrir því að ferðum í skólaakstri Fjölbrautarskóla Snæfellinga verði fjölgað, m.a. til að auka valmöguleika nemenda til þess að komast heim, og að verð rútumiða verði lækkað.



Bæjarráð vísaði, á 33. fundi sínum, tillögum um lækkun á gjaldi fyrir rútumiða og aukna þjónustu skólaaksturs Fjölbrautaskóla Snæfellinga til skólanefndar Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

15.Knattspyrnuvellir

Málsnúmer 2505002Vakta málsnúmer

Fulltrúar bæjarstjórnar unga fólksins tóku, á 2. fundi sínum, ástand og stöðu knattspyrnuvalla til umræðu.



Bæjarstjórn unga fólksins lagði til að nýtt gervigras verði sett á sparkvöllinn og að hafinn verði undirbúningur að lagningu tartans á hlaupabraut á íþróttavelli, en tartan mun koma til með að auka nýtingu allra bæjarbúa til heilsueflingar.



Bæjarráð tók, 33. fundi sínum, undir með bæjarstjórn unga fólksins að mikilvægt sé að nýtt gervigras verði sett á sparkvöllinn enda er verkefnið í undirbúningi hjá sveitarfélaginu og stefnt að því að það verði sett á völlinn. Bæjarráð tók undir með bæjarstjórn unga fólksins að lagning tartans á hlaupabraut á íþróttavelli komi til með að auka nýtingu allra bæjarbúa til heilsueflingar og óskaði eftir kostnaðarmati á þeirri framkvæmd. Að öðru leyti var málinu vísað til umfjöllunar í æskulýðs- og íþóttanefnd.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

16.Gangstéttir

Málsnúmer 2505003Vakta málsnúmer

Fulltrúar bæjarstjórnar unga fólksins tóku, á 2. fundi sínum, gangstéttamál í sveitarfélaginu til umræðu.



Bæjarstjórn unga fólksins vakti athygli á að gangstéttar í sveitarfélaginu geta skapað víða hættu og torveldað eldra fólki og fötluðum einstaklingum að nýta gangstéttar í sveitarfélaginu. Bæjarstjórn unga fólksins taldi brýnt, sérstaklega í því ljósi, að flýta endurnýjun gangstétta í sveitarfélaginu.



Bæjarráð tók, á 33. fundi sínum, undir með bæjarstjórn unga fólksins að víða sé þörf á endurnýjun gangstétta, en árið 2019 var unnin sérstök forgangsröðun endurnýjunar gangstétta í sveitarfélaginu sem unnið hefur verið eftir. Bæjarráð óskaði eftir kostnaðarmati á nauðsynlegri uppbyggingu gangstétta í sveitarfélaginu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

17.Ástand gatnakerfis

Málsnúmer 2505004Vakta málsnúmer

Fulltrúar bæjarstjórnar unga fólksins tóku, á 2. fundi sínum, ástand gatnakerfis í sveitarfélaginu til umræðu.



Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjarstjórn til þess að herða á uppbyggingu á þeim götum sveitarfélagsins sem eru holóttar og að þrýst verði á Vegagerðina að malbika Aðalgötu frá Bónus og út úr bænum sem fyrst.



Bæjarráð tók, á 33. fundi sínum, undir með bæjarstjórn unga fólksins um mikilvægi þess að herða þurfi á því að fara í gatnaframkvæmdir á þeim götum sem þarfnast endurnýjunar. Þá tók bæjarráð undir mikilvægi þess að Aðalgata verði malbikuð sem fyrst og fól bæjarstjóra að fylgja málinu eftir gagnvart Vegagerðinni.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

18.Ársreikningur 2024

Málsnúmer 2504019Vakta málsnúmer

Lagður fram ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2024.



Bæjarstjórn samþykkti á 36. fundi sínum að vísa ársreikningi sveitarfélagsins til síðari umræðu í bæjarstjórn.



Á 33. fundi sínum vísaði bæjarráð ársreikningi sveitarfélagsins 2024 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarstjóri grein fyrir helstu lykiltölum ársreiknings Sveitarfélagsins Stykkishólms fyrir árið 2024:

Rekstrartekjur samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta námu 2.540 millj. kr. á árinu en þar af námu rekstrartekjur A hluta 2.305 millj. kr. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði var jákvæð um 286 millj. kr. og rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var jákvæð um 180 millj. kr. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 22 millj. kr. en fjárhagsáætlun með viðaukum hafði gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 11 millj. kr.

Rekstrarniðurstaða A hluta var hinsvegar neikvæð um 62 milljónir en fjárhagsáætlun með viðaukum hafði gert ráð fyrir neikvæðri rekstrarniðurstöðu um 89 milljónir. Skýrist jákvæðari niðurstaða í A hluta einna helst af lægri gjaldfærslu í lífeyrisskuldbindingu en gert var ráð fyrir til LSR.Rekstrartekjur A og B hluta jukust um 4,6% milli ára. Rekstrargjöld jukust um 5% milli ára og eru einnig 5% hærri en áætlun með viðaukum hafði gert ráð fyrir.

Veltufé frá rekstri nam á árinu 2024 206 millj. kr. samanborið við 307 millj. kr. árið áður. Handbært fé í árslok nam 73 millj. kr. og lækkaði um 24 millj. kr. á árinu.

Fjárfestingahreyfingar A og B hluta á árinu 2024 námu 307 millj. kr. Lántökur á árinu námu 280 millj. kr. og afborganir langtímalána voru 219 millj. kr.

Skuldaviðmið A og B hluta Sveitarfélagsins Stykkishólmur í árslok 2024 var 109% en rekstrarjöfnuður A og B hluta síðastliðinna þriggja ára er neikvæður um 98 millj. kr. Fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins gera ráð fyrir því að rekstrarjöfnuður nái jafnvægi í árslok 2025.

Áherslur bæjarstjórnar á árinu 2024 og á yfirstandandi ári eru áfram þær sömu. Það er að skapa áfram eftirsóknarvert umhverfi fyrir fólk og fyrirtæki, standa vörð um grunnþjónustu sveitarfélagsins, sérstaklega um hag barna og fjölskyldna þeirra og eldra fólks, og sækja af ábyrgð fram með samfélagslega mikilvægum fjárfestingum innviða sem komi til með að skapa svigrúm til eflingar samfélagsins á svæðinu á sama tíma og stefnt er að því að tryggja að skuldaviðmið og skuldahlutföll séu að lækka markvisst á tímabilinu. Þessar áherslur og markmið bæjarstjórnar endurspeglast í fyrirliggjandi ársreikningi og samþykktum áætlunum, en það er alltaf áskorun frá degi til dags að tryggja að þessi markmið nái fram að ganga.


Samkvæmt 1. mgr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga ber bæjarstjórn að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum. Samkvæmt niðurstöðu ársreiknings og áætlana sveitarfélagsins er ekkert bendir til þess að sú skylda bæjarstjórnar sé ekki uppfyllt.

Áfram þarf að leggja áherslu á ábyrga fjármálastjórnun þar sem gætt er aðhalds og ábyrgðar í rekstri sveitarfélagsins á sama tíma og þjónusta við íbúa verði eins og best verður á kosið. Það þarf að huga að því og vinna markvisst að því að ná enn meira upp veltufé frá rekstri, sem þarf að standa undir afborgunum skulda og skuldbindinga. Bæjarstjórn og stjórnendur sveitarfélagsins þurfa áfram að vera og eru vakandi fyrir ákveðnum þáttum í rekstri sem endurspeglast í þessum ársreikningi.

Helstu fjárfestingar 2024:
-Gatnagerð 165 milljónir
-Fráveituframkvæmdir 63 milljónir
-Sundlaug og íþróttahús 32 milljónir
-Endurbætur á Höfðaborg 28 milljónir
-Endurbætur á Skildi 11 milljónir
-Skólahúsnæði við Grensás 5 milljónir

Bæjarstjóri vísar að öðru leyti til kynningar bæjarstjóra með ársreikningi 2024 og yfirferðar bæjarstjóra og KPMG við fyrri umræðu ársreiknings, en einu breytingar frá fyrri umræðu eru þær að búið er að setja hlutdeild sveitarfélagsins í ársverkum, stöðugildum og starfsmannafjölda Félags og skólaþjónustunnar inn og einnig hlutdeild í fasteignamati og brunabótamati FSS.

---

Ársreikningur 2024 var borinn undir atkvæði og staðfstur með atkvæðum bæjarfulltrúa H-listans. Bæjarfulltrúar Í-lista sitja hjá.

Meirihluti bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Stykkishólms hefur á fundi sínum í dag 15. maí 2025 afgreitt ársreikning fyrir aðalsjóð og B-hluta fyrirtæki bæjarins vegna ársins 2024 að loknum tveimur umræðum í bæjarstjórn og umfjöllun í bæjarráði. Löggiltur endurskoðandi bæjarins hefur kynnt athugun sína á fjárreiðum bæjarins og sett fram ábendingar og lagt mat á reikninginn í endurskoðunarskýrslu sem liggur fyrir sem fylgiskjal með ársreikningnum. Um einstaka liði í ársreikningi er vísað til skýrslu endurskoðanda og skýringar við ársreikninginn sem verður birtur á heimasíðu bæjarins.

Bæjarfulltrúar H-listans og bæjarstjóri árituðu síðan ársreikninginn.


Bókun bæjarfulltrúa Í-listans:
Undirrituð vilja vekja athygli á því að þrátt fyrir að ársreikningur 2024 sýni 22 milljóna króna hagnað er staða rekstursins veik. Það er ljóst að án sérstakra framlaga frá Jöfnunarsjóði upp á 96 milljónir vegna sameiningar við Helgafellssveit og vegna sölu eigna upp á 31 milljón hefði niðurstaðan verið verulega neikvæð eða tæplega 110 milljónir í tap.

Það vekur einnig sérstaka athygli að sveitarfélagið þarf að taka lán til að standa undir afborgunum lána og daglegum rekstri, sem er óásættanlegt til lengri tíma. Þetta sýnir svart á hvítu að reksturinn gengur ekki án utanaðkomandi aðstoðar og sölu eigna.

Það er brýnt að bæjarstjórn taki þessa stöðu föstum tökum og hefji þegar í stað vinnu við að endurskoða rekstur sveitarfélagsins með það að markmiði að ná fram sjálfbærni án þess að reiða sig á tímabundin framlög eða sölu eigna.

Undirrituð vísa í fyrri bókanir og umfjöllun vegna fjármála sveitarfélagsins og telja enn að standa verði betur að gerð fjárhagsáætlunar fyrir sveitarfélagið sem og eftirfylgni með stöðu rekstrar.

Undirrituð sitja því hjá við afgreiðslu ársreiknings 2024.

Að lokum vilja undirrituð koma fram þökkum til starfsfólks, bæjarfulltrúa og endurskoðenda sveitarfélagsins fyrir þeirra framlag við gerð ársreiknings.



Bókun bæjarfulltrúa H-lista:
Bæjarfulltrúar H-listans fagna fyrirliggjandi niðurstöðu ársreiknings sem sýnir fram á jákvæða rekstrarniðurstöðu sveitarfélagsins eftir krefjandi rekstrarumhverfi síðustu ár og mikla verðbólgu. Þetta sýnir svart á hvítu að við búum við ábyrga fjármálastjórn og erum að ná þeim árangri í rekstri og þeim markmiðum sem við höfum sett okkur til lengri tíma í rekstri sveitarfélagsins. Ársreikningurinn sýnir fram á stöðugleika í rekstri og sterka fjárhagslega stöðu til skemmri og lengri tíma, en enn reynir á að sýna aðhald í rekstri til að tryggja áframhaldandi jafnvægi.

Samkvæmt ársreikningi 2024 er skuldaviðmið sveitarfélagsins einungis um 109% en það má hæst vera 150% samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Það er ánægjulegt að þessi mikilvægi mælikvarði um fjárhagslegt heilbrigði sveitarfélaga sé á þessum stað þrátt fyrir umfangsmiklar gatnaframkvæmdir á síðasta ári, en áður hafði viðmiðið lækkað markvisst á síðustu árum og hraðar en væntingar stóðu til og var 104% á árinu 2023 og væntingar eru um að það lækki áfram á næstu árum og verði komin í um 80-90% í lok núverandi áætlunartímabils.

Árið 2024 var ár ýmissa mikilvægra framkvæmda sem ekki var hægt að fresta og bera gatnaframkvæmdir þar hæst. Fulltrúar H-listans lýsa yfir ánægju yfir því hversu vel hefur tekist til og þeim áhuga sem ljóst er að sé á uppbygging í Víkurhverfinu sem hefur farið fram úr björtustu vonum og ljóst að þörfin var mikil enda ljóst að lóðarframboð var ekki til staðar í Stykkishólmi til að mæta þeirri þörf sem fulltrúar H-listans vissu að væri til staðar. Víkurhverfið er því gríðarlega mikilvæg framkvæmd fyrir samfélagið að mati H-listans og arðbær fjárfesting til lengri tíma hvort sem litið er til fjárhagslegra eða félagslegra mælikvarða.

Árið 2024 var mjög gott og jákvætt ár fyrir samfélagið, en árið 2025 fer enn betur af stað. Það er ljóst að það hefur margt áunnist á síðustu árum og enn fleiri verkefni og áskoranir framundan sem gaman verður að takast á við. Áfram þarf hins vegar að sýna útsjónarsemi við að ná fram hagræðingu í rekstri og taka mið af langtíma markmiðum í fjárfestingum og fjármögnun þeirra.

Bæjarfulltrúar H-listans:
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir
Ragnar Ingi Sigurðsson
Þórhildur Eyþórsdóttir
Steinunn Magnúsdóttir

19.Minnispunktar bæjarstjóra

Málsnúmer 1808022Vakta málsnúmer

Lagðir fram minnispunktar bæjarstjóra.
Bæjarstjóri gerir grein fyrir minnispunktum sínum.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?