Fara í efni

Fréttir

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Smit í Stykkishólmi er ekki innanlandssmit
Fréttir

Smit í Stykkishólmi er ekki innanlandssmit

Tveir einstaklingar hafa nú greinst með COVID-19 veiruna á Vesturlandi og er annað tilfellið í Stykkishólmi. Einstaklingurinn sem greindist hér í Stykkishólmi kom nýverið erlendis frá og fylgdi tilmælum yfirvalda um að fara beint í sóttkví við heimkomu, en hann greindist með veiruna á meðan á sóttkví stóð. Hann er nú í einangrun í samræmi við verklag þar að lútandi, en einangrun er fyrir þá sem eru með staðfest COVID-19 sýkingu en þurfa ekki á sjúkrahúsdvöl að halda. Þar sem viðkomandi fylgdi fyrirmælum sóttvarnarlæknis um að fara í tveggja vikna sóttkví við heimkomu, án tillits til hvaðan hann kom, mun hann ekki hafa átt í samskiptum við aðra í návígi frá því sóttkví hófst, þ.m.t. hér í Stykkishólmi.
22.03.2020
Í útikennslu á óvissutímum
Fréttir

Í útikennslu á óvissutímum

Á þessum undarlegu tímum sem við nú upplifum hefur aldeilis komið sér vel sú ákvörðun leikskólans að hefja útikennslu og nýta þannig svæðið okkar og mannauðinn í leikskólanum. Þarna höfum við auka kennslustofa sem tveir elstu árgangar leikskólans nýta sér í smáum hópum, hver hópur einn dag í viku. Í maí síðast liðnum hófust tilraunir með þessa kennslu sem hefur verið í sífelldri þróun síðan. Þessi mynd var tekin í hádeginu í dag þegar börnin fengu matarsendinguna sína, sjóðheita íslenska kjötsúpu og svo er auðvitað vel við hæfi að fá sér heitt kakó líka. Það er skemmst frá því að segja að börnin kunna vel að meta skógarferðirnar og þá dásemdar upplifanir sem Nýræktin okkar hefur upp á að bjóða.
18.03.2020
Skertur aðgangur að leikskólanum - áríðandi !
Fréttir

Skertur aðgangur að leikskólanum - áríðandi !

Leikskólinn vekur athygli á eftirfarandi: Allar heimsóknir og koma annarra en starfsmanna, foreldra/aðstandenda sem koma með og sækja börnin eru bannaðar og fleiri hömlur þar á sem foreldrar hafa fengið leiðbeiningar með. Þeir sem eiga brýnt erindi við leikskólann, s.s. þeir sem koma með aðföng, komi ekki lengra en inn í ganginn starfsmannamegin og láti vita af sér þar. Ef erindið er ekki býnt, bendum við á tölvupóstinn leikskoli@stykkisholmur.is eða símann 433-8128. Þeir sem hafa grun um að hafa orðið fyrir smiti eru vinsamlegast beðnir um að halda sig frá leikskólanum.
17.03.2020
Zawiadomienie urz?du miasta Stykkishólmur dotycz?ce ograniczenia edukacji z powodu epidemii COVID-1…
Fréttir

Zawiadomienie urz?du miasta Stykkishólmur dotycz?ce ograniczenia edukacji z powodu epidemii COVID-19.

Jak stwierdzono w mediach Minister Zdrowia postanowi? uruchomi? ?ród?a prawa dotycz?cych chorób zaka?nych które obejmuj? mi?dzy innymi ograniczenie edukacji przez cztery nast?pne tygodnie. W?adze miejskie i szkolne w Stykkishólmur pracuj? obecnie nad organizacj? zaj?? szkolnych itp.w tej niespotykanej sytuacji. Podj?to decyzj? ?e szko?a podstawowa jak i Regnbogaland b?d? zamkni?te 16 marca przez ca?y dzie? ale przedszkole b?dzie otwarte od godz.10:00.Szko?a muzyczna b?dzie otwarta ale prosi si? uczniów o przychodzenie pojedynczo na lekcje a po jej zako?czeniu natychmiast opu?ci? szko??. Prosimy ?ledzi? poczt? internetow? (email) jak równie? inne powiadomienia poniewa? informacje szybko si? zmieniaj?.
14.03.2020
Announcement from the town of Stykkishólmur because of reduction in school activities because of the…
Fréttir

Announcement from the town of Stykkishólmur because of reduction in school activities because of the outbreak (COVID-19).

As you have seen in the media, the minister for health has decided to activate laws that allow for measures against infectious diseases to be taken. This includes among other things, the possible reduction of school activities over the next four weeks. The town and school authorities in Stykkishólmur are now working on organising the schooling, considering these unprecedented circumstances. It has been decided, if the situation remains the same on Monday morning, that the elementary school and Regnbogaland will be closed the whole day of Monday the 16th of March to give staff time to prepare and organise, but the preschool will open at 10:00. The music school will be open, but students are asked to arrive to their lessons alone and leave the school immediately after the lesson. Please pay close attention to emails and other announcements, as things change very quickly these days.
14.03.2020
Tilkynning frá Stykkishólmsbæ vegna skerðingar á skólastarfi vegna farsóttar (COVID-19)
Fréttir

Tilkynning frá Stykkishólmsbæ vegna skerðingar á skólastarfi vegna farsóttar (COVID-19)

Tilkynning frá Stykkishólmsbæ vegna skerðingar á skólastarfi vegna farsóttar (COVID-19). Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald kunni að skerðast næstu fjórar vikur.
14.03.2020
Upplýsingasíða Stykkishólmsbæjar vegna COVID-19 (kórónaveirunnar)
Fréttir

Upplýsingasíða Stykkishólmsbæjar vegna COVID-19 (kórónaveirunnar)

Stykkishólmsbær hefur sett upp sérstaka upplýsingasíðu á heimasíðu bæjarins vegna COVID-19 (kórónaveirunnar). Á síðunni má finna samantekt tilkynninga Stykkishólmsbæjar í tengslum við COVID-19 veirunnar ásamt Viðbragðsáætlun Stykkishólmsbæjar við heimsfaraldri af völdum COVID-19, sem hefur þegar tekið gild og verið virkjuð. Á upplýsingarsíðunni er jafnframt safnað saman upplýsingum sem snúa að starfsemi sveitarfélaga almennt sem og upplýsingar sem margar hverjar eru aðgengilegar eru á vef Landlæknisembættisins eða Almannavarna.
13.03.2020
Skilaboð frá landlækni
Fréttir

Skilaboð frá landlækni

Vegna neyðarstigs vegna COVID-19 er mikið álag á síma heilsugæslunnar og 1700. Hér má finna góðar síður þar sem er mikið af upplýsingum og fræðslu, í þeirri von að þeir sem eru að leita eftir upplýsingum fái svör hér
12.03.2020
Íbúakönnun um skipulag leikvalla í Stykkishólmsbæ
Fréttir

Íbúakönnun um skipulag leikvalla í Stykkishólmsbæ

Eins og fram kom í grein í síðasta tölublaði Jökuls gefst íbúum nú tækifæri til að láta skoðun sína í ljós hvað varðar skipulag leikvalla í Stykkishólmsbæ. Sett hefur verið upp netkönnun til að kanna vilja fólks í þeim efnum. Þessi könnun er hluti af íbúasamráðsverkefni Stykkishólmsbæjar. Verkefnið snýr að því að fá íbúa til samráðs um skipulag og útfærslu leikvalla/útisvæða í bænum.
12.03.2020
UPPFÆRT: VERKFALLI AFLÝST - Verkfallsaðgerðir og áhrif á þjónustu stofnana Stykkishólmsbæjar
Fréttir

UPPFÆRT: VERKFALLI AFLÝST - Verkfallsaðgerðir og áhrif á þjónustu stofnana Stykkishólmsbæjar

Boðaðar hafa verið verkfallsaðgerðir aðildarfélaga BSRB (SDS) og munu aðgerðirnar ná til fjölda starfa hjá Stykkishólmsbæ. Munu verkfallsaðgerðir hafa töluverð áhrif á þjónustu sveitarfélagsins þá daga sem aðgerðir standa yfir. Misjafnt er á milli stofnana sveitarfélagsins hver áhrif verkfallsins verða og í flestum tilvikum er um skerta þjónustu að ræða og/eða styttri opnunartíma. Ákveðnar stofnanir/deildir þurfa þó að loka alveg á meðan verkfallsaðgerðum stendur.
09.03.2020
Getum við bætt efni síðunnar?