Fara í efni

Fréttir

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Vinnudagur á leikskólalóðinni - myndir
Fréttir

Vinnudagur á leikskólalóðinni - myndir

Vaskur hópur foreldra og starfsmanna með Siggu Lóu í verkstjórn og Jón Beck aðalreddara réðst í ýmis verkefni á leikskólalóðinni síðdegis í gær, miðvikudaginn 19. júní. Hafist var handa kl. 17 og endað í grilli tveimur tímum síðar. Á meðal verkefna dagsins var þessi pallur við útieldhúsið okkar sem sést hér á meðfylgjandi mynd, en strax í morgun voru börnin komin þar í leik. Þetta var reglulega skemmtilegt og gaman að sjá hvað allir demdu sér í verkin af miklu frumkvæði og fundu góðar lausnir. Myndir eru komnar inn á heimasíðuna.
20.06.2019
Laust starf baðvarðar í Íþróttamiðstöð og sundlaug Stykkishólms
Fréttir

Laust starf baðvarðar í Íþróttamiðstöð og sundlaug Stykkishólms

Starfsmaður óskast til starfa sem baðvörður í Íþróttamiðstöð Stykkishólmsbæjar og sundlaug Stykkishólms. Starfshlutfallið er 50% og er tímabundið frá u.þ.b. 20. ágúst og til skólaloka vorið 2020.
14.06.2019
Íþróttamiðstöð ? Sundlaug Laust starf (farmtíðarstarf)
Fréttir

Íþróttamiðstöð ? Sundlaug Laust starf (farmtíðarstarf)

Starfsmaður (kona) óskast nú þegar, eða sem allra fyrst, til starfa í Íþróttamiðstöð Stykkishólmsbæjar.
14.06.2019
Lekaleit í hitaveitunni í Stykkishólmi
Fréttir

Lekaleit í hitaveitunni í Stykkishólmi

Þriðjudaginn 18. júní munu Veitur gera lekaleit í lokuðu kerfi hitaveitu í Stykkishólmi. Markmiðið er að auka rekstraröryggi kerfisins og tryggja sem besta nýtingu þess, öllum til hagsbóta. Leitin fer þannig fram að skaðlausu litarefni verður dælt inn á kerfið og í framhaldinu reynt að staðsetja leka og rangar tengingar. Bæjarbúar eru beðnir um að láta Veitur vita ef þeir verða varir við gult vatn á heimilum sínum eða umhverfi á veitur.is/hafa-samband eða í síma 516 6000.
13.06.2019
Tónlistaskólinn í Stykkishólmi - Umsóknir fyrir næsta skólaár
Fréttir

Tónlistaskólinn í Stykkishólmi - Umsóknir fyrir næsta skólaár

Opið er fyrir innritun á næsta skólaár Tónlistaskólans í Stykkishólmi. Innritun hefur gengið vel fyrir næsta skólaár og virðist aðsókn ætla að vera með besta móti, en þeir sem sækja um skólavist fyrir 8. júní njóta forgangs þegar raðað er inn í skólann í haust.
07.06.2019
Virðingarvottur við sjómenn lagður við listaverkið
Fréttir

Virðingarvottur við sjómenn lagður við listaverkið "Á heimleið" á sjómannadag

Formaður hafnarstjórnar leggur blóm sem virðingarvott við sjómenn á sjómannadaginn, 2. júní nk., kl. 10:30 við listaverkið "Á heimleið" eftir Grím M. Steindórsson á hafnarsvæðinu.
01.06.2019
Stykkishólmsbær valið eitt þriggja sveitarfélaga til þátttöku í íbúasamráðsverkefni Sambandsins
Fréttir

Stykkishólmsbær valið eitt þriggja sveitarfélaga til þátttöku í íbúasamráðsverkefni Sambandsins

Stykkishólmsbær er eitt þriggja sveitarfélaga sem valið hefur verið til þátttöku í íbúasamráðsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og Akureyrarkaupstaðar.
29.05.2019
9. bekkur í Smørrebrød
Fréttir

9. bekkur í Smørrebrød

Eins og undanfarin ár fór 9. bekkur í Grunnskólanum, í skólaferð til Danmerkur nú í lok maí, þar sem þau heimsóttu vinabæ okkar Kolding
28.05.2019
Skýrsla Ráðgjafanefndar vegna áhuga á rannsóknar-, vinnslu- og afurðamiðstöð þangs í Stykkishólmi
Fréttir

Skýrsla Ráðgjafanefndar vegna áhuga á rannsóknar-, vinnslu- og afurðamiðstöð þangs í Stykkishólmi

Ráðgjafanefnd vegna áhuga á rannsóknar-, vinnslu- og afurðamiðstöð þangs í Stykkishólmi hefur lokið vinnu sinni og liggur skýrsla nefndarinnar fyrir.
28.05.2019
Íbúafundur um skýrslu ráðgjafanefndar um þörungavinnslu
Fréttir

Íbúafundur um skýrslu ráðgjafanefndar um þörungavinnslu

Boðað er til íbúafundar þriðjudaginn 28. maí nk. kl. 18:00 í Amtsbókasafni Stykkishólms um niðurstöðu ráðgjafanefndar vegna áhuga á rannsóknar-, vinnslu- og afurðamiðstöð þangs í Stykkishólmi.
24.05.2019
Getum við bætt efni síðunnar?