Fara í efni

Bæjarstjórn

35. fundur 28. apríl 2025 kl. 13:08 - 14:14 í bæjarstjórnarsal
Nefndarmenn
  • Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir aðalmaður
  • Þórhildur Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Ragnar Ingi Sigurðsson aðalmaður
  • Ragnar Már Ragnarsson aðalmaður
  • Kristján Hildibrandsson (KH) varamaður
    Aðalmaður: Haukur Garðarsson (HG)
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir Forseti
  • Heiðrún Höskuldsdóttir (HHÖ) aðalmaður
  • Sæþór Þorbergsson (SÞ) varamaður
Starfsmenn
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
  • Jón Sindri Emilsson starfsmaður tæknisviðs
  • Gyða Steinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Gyða Steinsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá

1.Skipulagsnefnd - 29

Málsnúmer 2504002FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 29. fundar skipulagsnefndar.
Lagt fram til kynningar.

2.Atvinnu- og nýsköpunarnefnd (SH) - 5

Málsnúmer 2504003FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 5. fundar atvinnu- og nýsköpunarnefndar.
Lagt fram til kynningar.

3.Umhverfis- og náttúruverndarnefnd - 5

Málsnúmer 2504006FVakta málsnúmer

Lögð fra 5. fundargerð umhverfis- og náttúruverndarnefndar.
Lagt fram til kynningar.

4.Bæjarráð - 32

Málsnúmer 2504004FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 32. fundar bæjarráðs.
Lagt fram til kynningar.

5.Fundargerð fulltrúaráðsfundar EBÍ

Málsnúmer 2503023Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð fulltrúaráðsfundar EBÍ sem haldinn var 19. mars síðastliðinn.
Lagt fram til kynningar.

6.Fundargerðir stjórnar Hafnarsambands Íslands

Málsnúmer 2003028Vakta málsnúmer

Lagðar fram fundargerðir 470. og 471. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 19. febrúar og 28. mars 2025.
Lagt fram til kynningar.

7.Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 2102003Vakta málsnúmer

Lagðar fram fundargerðir 973., 974.,975. og 976. fundar stjórnar Sambandsins frá 14., 19., 20. mars og 4. apríl 2025.
Lagt fram til kynningar.

8.Rokkhátíð í Stykkishólmi

Málsnúmer 2305023Vakta málsnúmer

Þungarokkhátíðin Sátan fór fram í Stykkishólmi dagana 6.-9. júní 2024. Safna- og menningarmálanefnd hvatti, á 5. fundi sínum, til þess að leitað verði leiða að sanngjarni niðurstöðu milli sveitarfélagsins og forsvarsmanna Sátunnar, m.a. varðandi aðstöðuleigu og að tryggt sé að viðbótarkostnaði sveitarfélagsins vegna hátíðarinnar sé mætt.



Bæjarráð tók samkomulag vegna Sátunnar til umfjöllunar á 30. fundi sínum og fól bæjarstjóra að taka upp samtal við forsvarsmenn sátunnar á grunni fyrirliggjandi samningsdraga.



Bæjarráð samþykkti, á 32. fundi sínum, fyrirliggjandi samningsdrög með þeim breytingum að fallist er á að veita Sátunni 50% afslátt af gjaldskrá á árinu 2025 og 25% afslátt á árinu 2026 vegna afnota af húsnæði sveitarfélagsins vegna hátíðarinnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.
Samþykkt samhljóða.

9.Styrkumsóknir

Málsnúmer 2303021Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms auglýsti þann 14. febrúar, eftir styrkumsóknum frá einstaklingum og fyrirtækjum í samræmi við reglur um styrkveitingar. Umsóknarfrestur var til og með 9. mars. Lagðar eru fram styrkumsóknir sem bárust á auglýstum tíma.



Bæjarráð lagði, á 32. fundi sínum, til við bæjarstjórn að veittir verði eftirtaldir styrkir:



Skotveiðifélag Snæfellsness - kr. 100.000

Listasýning í Norska húsinu - kr 25.000

Fangaðu augnablikið - kr. 25.000

Andvarinn í Himinsfari - kr. 150.000

Júlíana, hátíð sögu- og bóka - kr. 100.000

Eyrbyggjasögufélag, sagnaskemmtanir - kr. 50.000

Heima í Hólmi - kr. 75.000

Fjallkonan, kraftlyftingakeppni - kr. 150.000

Stykkishólmur Cocktail Weekend - kr. 75.000
Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs.
Samþykkt samhljóða.

10.Sala á húsnæði - Skúlagata 9

Málsnúmer 2409019Vakta málsnúmer

Lagt fram óformlegt tilboð í íbúð við Skúlagötu 9, ásamt tengdum gögnum.



Á 31. fundi bæjarráðs fól bæjarráð bæjarstjóra að ganga til samninga með vísan til fyrirliggjandi gagna og leggja samning fyrir bæjarráð. Lögð eru fram drög að samning.



Bæjarráð lagði, á 32. fundi sínum, til við bæjarstjórn að bæjarráði verði veitt fullnaðarumboð til töku ákvörðunar um sölu á íbúðinni.
Bæjarstjórn veitir bæjarráði fullnaðarumboð til töku ákvörðunar um sölu á íbúðinni.

Samþykkt samhljóða.
Ragnar Már Ragnarsson og Sæþór H. Þorbergsson véku af fundi.

11.Erindi vegna byggingarleyfisgjalda

Málsnúmer 2504005Vakta málsnúmer

Lögð fram ósk um styrk sem nemur byggingarleyfisgjöldum frá Frímúrarastúkunni Borg vegna framkvæmda á félagsaðstöðu félagsins við Smiðjustíg 3, en framkvæmdin mun koma til með að bæta aðgengi fatlaðra og hreyfihamlaðra að félagsaðstöðunni.



Bæjarráð samþykkti, á 32. fundi sínum, styrk sem nemur byggingarleyfisgjöldum.
Bæjarstjórn staðfestir aftgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.
Ragnar Már Ragnarsson og Sæþór H. Þorbergsson mæta á fund að lokinni afgreiðslu málsins.

12.Breyting á deiliskipulagi Víkurhverfis

Málsnúmer 2503009Vakta málsnúmer

Lögð fram breyting á deiliskipulagi Víkurhverfis vegna Bauluvíkur 1. Óskað er eftir breytingu skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.



Breytingin felur í ser eftirfarandi:



1. Íbúðum fjölgar úr 4-6 í 10 íbúðir



2. Byggingarreitir breytast þannig að 10 íbúðir passi betur á reitina.



3. Bílastæðum er fjölgað úr 7 í 13.



Að öðru leyti gilda aðrir skilmálar.



Skipulagsnefnd samþykkti á 29. fundi sínum að auglýsa tillögu að breytingu deiliskipulags Víkurhverfis í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Skipulagsnefnd benti þó á að göngustígur að íbúðum þurfi að vera það breiður að sjúkrabíll komist að. Enn fremur að setja þurfi inn mælingar frá byggingarreit að lóðarmörkum við eldra hverfi.



Bæjarráð lagði, á 32. fundi sínum, til við bæjarstjórn að auglýsa tillögu að breytingu deiliskipulags Víkurhverfis í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn vísar málinu til næsta bæjarstjórnarfundar.

Samþykkt samhljóða.

13.Agustsonreitur - skipulagsbreyting

Málsnúmer 2302009Vakta málsnúmer

Lögð fram samantekt umsagna og athugasemda sem bárust við kynningu á vinnslustigi í samræmi við 2. mgr. 30. gr. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga. Vinnslutillagan var í kynningu frá 7. febrúar til og með 7. mars sl. Tillögur bárust frá lögbundnum umsagnaraðilum og frá íbúum í nágrenni skipulagssvæðisins.



Jafnframt er lagt til að auglýsa tillögu að aðalskipulagsbreytingu skv. 31. gr. skipulagslaga og tillögu að deiliskipulagi skv. 41 gr. skipulagslaga.



Skipulagsnefnd samþykki, á 29. fundi sínum, að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólms 2002-2022 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Enn fremur heimilaði skipulagsnefnd að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Bæjarráð lagði, á 32. fundi sínum, til við bæjarstjórn að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólms 2002-2022 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn vísar málinu til næsta bæjarstjórnarfundar.

Samþykkt samhljóða.

14.Kallhamar og Hamraendar - Skipulagsáætlanir (ASK br. og DSK)

Málsnúmer 2206035Vakta málsnúmer

Lögð fram til samþykktar aðalskipulagsbreyting á Aðalskipulags Stykkishólms 2002-2022 og lögð fram samantekt umsagna og athugasemda sem bárust við kynningu á vinnslustigi í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Vinnslutillagan var í kynningu frá 28. febrúar til og með 28. mars sl. Tillögur bárust frá lögbundnum umsagnaraðilum og frá hagsmunaaðilum.



Á 29. fundi skipulagsnefndar var lagt til að tillaga að aðalskipulagsbreytingu verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga.



Skipulagsnefnd samþykkti að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólms 2002-2022 vegna stækkunar athafnarsvæðis við Hamraenda og grænna iðngarða við Kallhamar, ásamt breytingu á flugvelli, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Bæjarráð lagði, á 32. fundi sínum, til við bæjarstjórnar að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólms 2002-2022 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólms 2002-2022 vegna stækkunar athafnarsvæðis við Hamraenda og grænna iðngarða við Kallhamar, ásamt breytingu á flugvelli, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.

15.Kallhamar og Hamraendar - Skipulagsáætlanir (ASK br. og DSK)

Málsnúmer 2206035Vakta málsnúmer

Lagðar fram til samþykktar deiliskipulagsáætlanir fyrir Kallhamar og Hamraenda. Ennfremur er lögð fram samantekt umsagna og athugasemda sem bárust við kynningu á vinnslustigi í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga. Vinnslutillagan var í kynningu frá 28. febrúar til og með 28. mars sl. Tillögur bárust frá lögbundnum umsagnaraðilum og frá hagsmunaaðilum. Jafnframt er lagt til að auglýsa tillögur að deiliskipulagi skv. 41. gr. skipulagslaga.



Skipulagsnefnd samþykkti, á 29. fundi sínum, að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir annars vegar Kallhamar og hins vegar Hamraenda, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Bæjarráð lagði, á 32. fundi sínum, til við bæjarstjórnar að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir annars vegar Kallhamar og hins vegar Hamraenda, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.

16.Berserkjahraun Sjávarhús

Málsnúmer 2503016Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um byggingarheimild fyrir frístundahús "sjávarhús" í landi Berserkjahrauns. Húsið er eitt rými með aflokaðri snyrtingu, byggt inn í landhalla, 50 metrum frá sjávarborði. Aðkoma er frá Helgafellssveitarvegi.



Skipulagsnefnd samþykkti, á 29. fundi sínum, að afla umsagnar frá Minjastofnun og Náttúruverndarstofnun. Enn fremur benti skipulagsnefnd á að þörf er á að sækja um framkvæmdaleyfi fyrir veg að húsinu.

Skipulagsnefnd bendir á að byggingarreitur skal ekki vera nær en 50 metrum frá fjöruborði miðað við stórstraumsflæði.



Bæjarráð staðfesti, á 32. fundi sínum, afgreiðslu skipulagsnefndar.
Bæjarstjórn vísar málinu til næsta bæjarstjórnarfundar.

Samþykkt samhljóða.
Ragnar Már Ragnarsson vék af fundi

17.Hólar 5a - br á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 2310023Vakta málsnúmer

Lögð fram samantekt umsagna og athugasemda sem bárust við kynningu á vinnslutillögu breytingar á Aðalskipulagi Helgafellssveitr 20012-2024 í samræmi við 2. mg. 30 gr. og deiliskipulagstillögu í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga. Vinnslutillagan var í kynningu frá 27. janúar til 24. febrúar 2025. Tillögur bárust frá lögbundnum umsagnaraðilum og frá nágrönnum.



Lagt er til að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2024 skv. 31. gr. skipulagslaga.



Jafnframt er lagt til að auglýsa tillögu að deiliskipulagi skv. 41. gr. skipulagslaga.



Skipulagsnefnd samþykkti, á 29. fundi sínum, að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2024 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Enn fremur samþykkti nefndin að auglýsa deiliskipulagstillögu í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Bæjarráð lagði, á 32. fundi sínum, til við bæjarstjórn að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2024 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2024 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða með 6 atkvæðum.
Ragnar Már Ragnarsson mætti aftur á fund eftir afgreiðslu bæjarstjórnar.

18.Hólar 5a - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2210003Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um stækkun á frístundahúsi í 43 m2, ásamt 30,6 m2 gróðurhúsi. Tillagan er í samræmi við fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu.



Skipulagsnefnd tók,á 29. fundi sínum, fram að aðal- og deiliskipulag Hóla 5a er á leið í auglýsingu skv. 31. og 41. gr. skipulagslaga og hefur meðferð málsins tafist. Því taldi nefndin ekki ástæðu til þess að aftra eiganda að hefja uppbyggingu við núverandi frístundahús og gróðurhús á lóðinni enda séu þau áform í samræmi við fyrirliggjandi skipulagsáform.



Bæjarráð staðfesti, á 32. fundi sínum, afgreiðslu skipulagsnefndar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur bæjarráðs og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða.

19.Stefnumörkun opinna grænna svæða innan bæjarmarka í Stykkishólmi

Málsnúmer 2110019Vakta málsnúmer

Lagt fram erindisbréf starfshóps um stefnumörkun opinna grænna svæða innan bæjarmarka í Stykkishólmi. Umhverfis- og náttúruverndarnefnd lýsti, á 4. fundi sínum, yfir áhuga nefndarinnar á að halda áfram vinnu starfshópsins, sem nú hefur hætt störfum.



Bæjarstjórn samþykkti á 30. fundi sínum að fela umhverfis- og nátturuverndarnefnd að halda áfram vinnu starfshópsins í samræmi við fyrirliggjandi erindisbréf.



Skipulagsnefnd gerði, á 26. fundi sínum, fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við fyrirliggjandi vinnu og lýsti yfir vilja til þess að fá til skoðunar hugmyndir til umsangar á síðari stígum. Skipulagsnend lagði áherslu á að leitað verði umsagnar Rarik áður en farið verði í gróðursetningar á svæðum þar sem finna má lagnaleiðir.



Bæjarráð staðfesti, á 29. fundi sínum, afgreiðslu skipulagsnefndar og vakti athygli umhverfis- og náttúruverndarnefnd á afgreiðslu skipulagsnefndar.



Málefnið var tekið til umfjöllunar á 5. fundi umhverfis- og náttúruverndarnefndar og lagaðar fram tillögur að áningarstöðum.



Umhverfis- og náttúruverndarnefnd samþykkir fyrirliggjandi staðsetningar áningastaða og fangar þeim áformum sem liggja fyrir.



Umhverfis- og náttúruverndarnefnd lagði til að farið verði í vinnu við að móta heilstæða tillögu að staðsetningu bekkja annars vegar í bæjarlandi og hins vegar innan þéttbýlis.



Umhverfis- og náttúruverndarnefnd vísaði að öðru leyti málinu til frekari vinnslu í nefndinni.



Bæjarráð staðfesti, á 32. fundi sínum, afgreiðslu umhverfis- og náttúruverndarnefndar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur umhverfis- og náttúruverndarnefndar og bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

20.Gönguleiðir og forgangsröðun göngustíga

Málsnúmer 1904037Vakta málsnúmer

Lögð fram vinnugögn vegna hönnunar á gönguleiðum í sveitarfélaginu. Við gerð fjárhagsáætlunar lagið umhverfis- og náttúruverndarnefnd árherslu á áframhaldandi uppbyggingu á göngustígum. Nefndin lagði sérstaka áherslu á göngutengingu við strandlengju Kirkjustígs og Daddavíkur áfram að Grensás, tengingu Sundabakka við Reitarveg og áfram holtið og tengingu í enda Hjallatanga niður að reiðveg.



Lagðar fram tillögur að göngustígatengingum innanbæjar og göngustígum í bæjarlandinu í samræmi við fyrri umræður þar um.



Umhverfis- og náttúruverndarnefnd fagnaði, á 5. fundi sínum, þeim tillögum sem liggja fyrir og samþykkti þær.



Bæjarráð staðfesti, á 32. fundi sínum, afgreiðslu umhverfis- og náttúruverndarnefndar og fól skipulagsfulltrúa að vinna að tillögu að mótun stefnu um staðsetningju bekkja í sveitarfélaginu í heild sinni annars vegar og hinsvegar í þéttbýlinu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur umhverfis- og náttúruverndarnefndar og bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

21.Auglýsing lausra lóða

Málsnúmer 2504027Vakta málsnúmer

Lagt er til að Nesvegur 14a verði auglýst laus til umsóknar. Bæjarráð samþykkti, á 32. fundi sínum, að lóðin Nesvegur 14a verði auglýst laus til umsóknar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

22.Tillögur að skipulagsbreytingum hjá sveitarfélaginu - Trúnaðarmál

Málsnúmer 2412005Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um skipulagsbreytingar sem unnið var samkvæmt beiðni oddvita beggja lista, í tengslum við verkefnið Gott að eldast, í framhaldi af umræðu 28. fundar bæjarráðs, minnisblaðs frá Félags- og skólaþjónustunni og öðrum tengdum gögnum.



Bæjarráð samþykki, á 32. fundi sínum, tillögur að skipulagsbreytingum og vísaði þeim til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.
Bókað í trúnaðarmálabók.

Fundi slitið - kl. 14:14.

Getum við bætt efni síðunnar?