Ungmennaráð
Dagskrá
1.Ungmennaráð
Málsnúmer 2209013Vakta málsnúmer
Lagt fram erindisbréf ungmennaráðs.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnti erindisbréf ungmennaráðs og þá sérstaklega fyrir nýjum meðlimum.
2.Kosning varaformanns og ritara
Málsnúmer 2211039Vakta málsnúmer
Samkvæmt erindisbréfi skal ungmennaráð kjósa sér ritara og varaformann á fyrsta fundi auk þess að leggja til formannsefni ráðsins við bæjarstjórn.
Kosning fór fram og niðurstaða var sú að Hera var tilnefnd sem formaður, Katrín kosin sem varaformaður og Adda kosin sem ritari.
3.Tilnefning áheyrnafulltrúa í nefndir og ráð Stykkishólmbæjar
Málsnúmer 2011004Vakta málsnúmer
Ungmennaráð tilnefnir áheyrnarfulltrúa í eftirfarandi nefndir:
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd
Safna- og menningamálanefnd
Skipulagsnefnd
Skóla- og fræðslunefnd
Umhverfis- og náttúruverndarnefnd
Velferðar- og jafnréttisnefnd
Æskulýðs- og íþróttanefnd
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd
Safna- og menningamálanefnd
Skipulagsnefnd
Skóla- og fræðslunefnd
Umhverfis- og náttúruverndarnefnd
Velferðar- og jafnréttisnefnd
Æskulýðs- og íþróttanefnd
Ungmennaráð tilnefnir eftirfarandi sem áheyrnarfulltrúa í fastanefndir:
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd : Jón Dagur
Safna- og menningamálanefnd : Katrín Mjöll
Skipulagsnefnd : Igor
Skóla- og fræðslunefnd : Adda
Umhverfis- og náttúruverndarnefnd : Hákon
Velferðar- og jafnréttisnefnd : Hera
Æskulýðs- og íþróttanefnd : Ragnheiður

4.Ungmennaráð Vesturlands
Málsnúmer 2009052Vakta málsnúmer
Íþrótta- og tómstundafulltrúi gerir grein fyrir verkefnum ungmennaráðs Vesturlands. Ungmennaráð kýs sinn fulltrúa í ungmennaráð Vesturlands.
Staðfest var kjör á fulltrúa ungmennaráðs Stykkishólms í ungmennaráð vesturland en Hera var kjörin. Katrín Var valin sem varaformaður. Einnig var farið yfir erindisbréf Ungmennaráðs Vesturlands.
5.Fundaráætlun ungmennaráðs
Málsnúmer 2011003Vakta málsnúmer
Samkvæmt erindisbréfi skal ráðið samþykkja fastákveðin fundartíma.
Miðvikudagar henta best en nánari tímasetningar ekki ákveðnar.
6.Bæjarstjórn unga fólksins
Málsnúmer 2311010Vakta málsnúmer
Lögð fram fundargerðir bæjarstjórnar unga fólksins. Bæjarstjórn unga fólksins tekin til umræðu í ungmennaráði.
Farið var yfir fyrirkomulag bæjarstjórnafunda unga fólksins og kynnt sérstaklega fyrir nýjum meðlimum ungmennaráðs. Einnig var farið yfir fundargerðir síðustu þriggja funda og hvaða málefni hafa verið tekin fyrir.
Bókuð var tillaga til bæjarstjórnar um að hafa fundinn fyrstu vikuna í maí 2027.
Bókuð var tillaga til bæjarstjórnar um að hafa fundinn fyrstu vikuna í maí 2027.
7.Bekkir í Stykkishólmi
Málsnúmer 2609003Vakta málsnúmer
Lögð fram samantekt sem unnin var af Landmótun varðandi staðsetningu núverandi bekkja og tillögur að nýjum bekkjum í bænum.
Farið var yfir bekki samantekt Landmótunar þar sem m.a. komu fram staðsetning bekkja í einkaeigu í Stykkisólmi. Einnig var tekin umræðan um staðsetningu bekkja í bænum. Ungmennaráði leist vel á tillögur á staðsetningu bekkjanna en voru þó gerðar athugasemdir um stutta fjarlægð milli sumra bekkja.
8.Leiklist í Stykkishólmi
Málsnúmer 2611007Vakta málsnúmer
Lögð fram umsókn í Uppbyggingarsjóð Vesturlands vegna verkefnisins Raddir framtíðar. Íþrótta- og tómstundafulltrúi gerir grein fyrir málinu.
Farið var yfir hvort Sveitarfélagið Stykkishólmur ætti að taka þátt í samstarfi um fyrirliggjandi styrk í uppbyggingasjóð Vesturlands varðandi leiklistaverkefnið „Raddir framtíðarinnar“. Þetta væri samstarf milli leikfélagsins Grímnis, vinnuskóla og félagsmiðstöðvar.
Tekin var umræða um aðkomu Fjölbrautaskóla Snæfellinga að þessu verkefni. Ráðið sá tækifæri í verkefninu til eflingar listsköpunar við skólann og gæti orðið til þess að halda ungt fólk sem hefur farið í skóla annað til að fá útrás fyrir meiri listsköpun.

9.Opnunartími sundlaugar
Málsnúmer 2611009Vakta málsnúmer
Opnunartími sundlaugar tekin til umræðu m.a. m.t.t. forvarnargildis. Lögð fram gögn tengd málinu
Farið var yfir hvernig hægt væri að hagræða. Einnig var farið yfir skráningar og útreikninga um hvernig skynsamlegast væri að breyta opnunartímum út frá því hvenær fæstir hafa verið að mæta í sundlaugina. Skoðuð var hugmynd um að stytta opnunartíma um klukkustund á dag.
Ungmennaráð styður tillögur um sparnaðarráð út frá styttri opnunartíma sundlaugar en hefur ekki mótað sér skoðun hvaða útfærslu ætti að fara.
Ungmennaráð styður tillögur um sparnaðarráð út frá styttri opnunartíma sundlaugar en hefur ekki mótað sér skoðun hvaða útfærslu ætti að fara.
10.Gjaldskrár 2027
Málsnúmer 2610027Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að gjaldskrám sveitarfélagsins fyrir árið 2027.
Bæjarstjórn samþykkti, á 53. fundi sínum, gjaldskrár fyrir Sveitarfélagið Stykkishólms fyrir árið 2027 og vísaði þeim til frekari umfjöllunar í bæjarráði, umsagnar í fastanefndum og til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Samþykkt var fyrirliggjandi tillaga um að hækka gjaldskránna 2027 um 2,5%. Farið var yfir gjaldskrár. Ungmennaráð kom með tillögu um að skoðuð verði hækkun á leigu á hljóðfærum í Tónlistarskólanum.
11.Fjárhagsáætlun 2027 og til þriggja ára 2028-2030
Málsnúmer 2609021Vakta málsnúmer
Lögð fram fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2027 og til þriggja ára 2028-2030.
Bæjarstjórn samþykkti, á 53. fundi sínum, að vísa fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms 2027-2030, með áorðnum breytingum, til síðari umræðu í bæjarstjórn og vísar henni jafnframt til frekari umfjöllunar í bæjarráði og til umsagnar í öðrum fastanefndum sveitarfélagsins.

Íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnti fyrir ráðinu fjárhagsáætlun og komu engar athugasemdir fram eða ábendingar.
Fundi slitið - kl. 20:45.