Fara í efni

Fréttir

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Kynningarfundir vegna umsókna í uppbyggingarsjóð
Fréttir

Kynningarfundir vegna umsókna í uppbyggingarsjóð

Opið er nú fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands. Hægt er að kynna sér umsóknarferlið og fá frekari upplýsingar í Ráðhúsinu 4. desember, kl. 10-12.
29.11.2019
Jólin koma
Fréttir

Jólin koma

Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar vinna nú í óða önn að því að skreyta bæinn fyrir jólin. Á meðfylgjandi mynd má sjá nafnana Jón Beck og Jón Pál vinna hörðum höndum að því að festa jólaskreytingarnar á ljósastaura bæjarins, með dyggri aðstoð Stefáns Björgvinssonar.
27.11.2019
Jólaljós tendruð á miðvikudag
Fréttir

Jólaljós tendruð á miðvikudag

Ákveðið hefur verið að fresta tendrun jólaljósa í Hólmgarðinum til miðvikudags, 4.desember kl. 18:00, en þá er útlit fyrir betra veður.
25.11.2019
Aðventutónleikar Karlakórs Reykjavíkur í Stykkishólmskirkju
Fréttir

Aðventutónleikar Karlakórs Reykjavíkur í Stykkishólmskirkju

Karlakór Reykjavíkur mun heimsækja Hólminn og flytja aðventudagskrá sína í Stykkishólmskirkju laugardaginn 30. nóvember kl. 16.00. Einsöngvari á tónleikunum verður Sigrún Pálmadóttir sópransöngkona. Stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur er Hólmarinn Friðrik S. Kristinsson sem í ár fagnar 30 ára starfsafmæli með kórnum. Hólmarar og Snæfellingar allir eru boðnir velkomnir á tónleikana, aðgangur ókeypis.
22.11.2019
Endurvinnsla í Ásbyrgi
Fréttir

Endurvinnsla í Ásbyrgi

Eflaust hafa einhverjir orðið þess varir að við breytingar á skólalóð er ekki lengur þar að finna ruslagáma undir gler og annað til endurvinnslu, en glerkrukkur má nú losa sig við hjá Ásbyrgi. Starfsfólk Ásbyrgis tekur á móti ýmsum varningi sem þau ýmist flokka til endurvinnlsu eða nýta sjálf.
15.11.2019
Sjúkraliðar/hópstjórar óskast á Dvalarheimili aldraðra
Fréttir

Sjúkraliðar/hópstjórar óskast á Dvalarheimili aldraðra

Dvalarheimili aldraðra Stykkishólmi óskar eftir að ráða sjúkraliða eða sjúkraliðanema við aðhlynningu frá og með 15 janúar 2020. Unnið á tvískiptum vöktum og aðra hvora helgi. Starfshlutfall samkomulag.
13.11.2019
Hundahreinsun í Stykkishólmi
Fréttir

Hundahreinsun í Stykkishólmi

Hin árlega hundahreinsun fer fram þriðjudaginn 19. nóvember og fimmtudaginn 21. nóvember nk. hjá dýralækninum að Höfðagötu 18, milli kl. 16 ? 18.
12.11.2019
Auglýsing um skipulag
Fréttir

Auglýsing um skipulag

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkti þann 31. október 2019, að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Stykkishólms, Skúlagata 26a samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
12.11.2019
Blóðsykurs- og blóðþrýstingsmælingar í Bónus
Fréttir

Blóðsykurs- og blóðþrýstingsmælingar í Bónus

Næstkomandi fimmtudag, þann 14. nóvember, er alþjóðlegi sykursýkisdagurinn. Af því tilefni helga lionsklúbbar sig sykursýkisvörnum í nóvember. Á fimmtudaginn verða lionsfélagar við blóðsykurs- og blóðþrýstingsmælingar í verslun Bónus í Stykkishólmi á milli kl. 16 og 18 fólki að kostnaðarlausu.
12.11.2019
Hólmurinn hefur margt að bjóða
Fréttir

Hólmurinn hefur margt að bjóða

Stykkishólmur er títtnefndur í bloggi á vefsíðu ferðaþjónustufyrirtækisins Travel Iceland. Fyrirtækið er rótgróið í ferðaþjónustu og hefur starfað frá árinu 1937 hér á landi.
11.11.2019
Getum við bætt efni síðunnar?