Fara í efni

Fréttir

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Fjölmiðlar og landsbyggðir ? málstofa í streymi
Fréttir

Fjölmiðlar og landsbyggðir ? málstofa í streymi

Landshlutasamtök sveitarfélaga standa fyrir málstofu um fjölmiðla og landsbyggðir miðvikudaginn 12. maí kl. 9-10:30. Fjallað verður meðal annars um vægi og birtingarmyndir íbúa á landsbyggðunum í frétta- og dagskrárefni, mikilvægi staðbundinna fjölmiðla, hlutverk og skyldur almannaþjónustumiðla gagnvart dreifðum byggðum og farið yfir dæmi frá Norðurlöndum. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Byggðastofnun, RÚV, Háskólann á Akureyri og mennta- og menningarmálaráðuneytið.
10.05.2021
Stykkishólmsbær auglýsir eftir flokkstjórum við vinnuskóla og laus sumarstörf fyrir námsmenn
Fréttir

Stykkishólmsbær auglýsir eftir flokkstjórum við vinnuskóla og laus sumarstörf fyrir námsmenn

Stykkishólmsbær auglýsir eftir flokkstjórum til að vinna með unga fólkinu okkar í sumar, mikil útivera og gleði! Einnig eru auglýst sumarstörf fyrir námsmenn 18 ára og eldri. Um er að ræða þátttöku Stykkishólmsbæjar í átaksverkefni á vegum vinnumálastofnunar til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn nú í sumar í ljósi aðstæðna af völdum COVID-19. Meðal starfa eru fjölbreytt umhverfisstörf, störf sem snúa að stjórnsýslu og þjónustu við bæjarbúa, störf sem tengjast atvinnumálum og ýmis skráningarvinna.
07.05.2021
Samkeppni um nafn á skrifstofu- og frumkvöðlasetri í Stykkishólmi
Fréttir

Samkeppni um nafn á skrifstofu- og frumkvöðlasetri í Stykkishólmi

Einkahlutafélagið Suðureyjar ehf. mun síðar í þessum mánuði opna skrifstofu- og frumkvöðlasetur að Aðalgötu 10 í Stykkishólmi. Félagið hefur ákveðið að efna til samkeppni meðal bæjarbúa og annarra áhugasamra um nafn á setrinu. Frestur til að senda tillögu að nafni ásamt rökstuðningi er til miðnættis sunnudaginn 23. maí nk. Veitt verða þrenn vegleg verðlaun fyrir bestu tillögurnar að mati dómnefndar.
07.05.2021
Lýsing fyrir gerð deiliskipulagstillögu á Súgandisey
Fréttir

Lýsing fyrir gerð deiliskipulagstillögu á Súgandisey

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt að auglýsa skipulagslýsingu fyrir gerð deiliskipulagstillögu á Súgandiseyju. Markmið skipulagsvinnunnar er tvíþætt, annars vegar að skapa ramma utan um svæði fyrir útivistarfólk til göngu- og náttúruupplifunar og hins vegar að tryggja öryggi sjófarenda með sjótengdum mannvirkjum. Skipulagsverkefnið byggir á núverandi aðstæðum ásamt að leggja línur um framtíð svæðisins.
05.05.2021
Sumarnámskeið fyrir börn
Fréttir

Sumarnámskeið fyrir börn

Stykkishólmsbær býður í sumar upp á leikjanámskeiðið fyrir 1.-3. bekk og ævintýranámskeið fyrir 4.-7. bekk líkt og síðasta sumar.
30.04.2021
Góðar fréttir frá félagsmiðstöðinni X-inu
Fréttir

Góðar fréttir frá félagsmiðstöðinni X-inu

Miðvikudaginn 21. apríl fór fram söngkeppni SamVest, sem er undankeppni 9 félagsmiðstöðva á Vesturlandi, þar sem X-ið tefldi fram einum keppanda. Í kjölfar keppninnar var haldin vökunótt fyrir ungmennin í íþróttamiðstöðinni sem var mjög vel sótt.
29.04.2021
Viðvera atvinnuráðgjafa SSV í Stykkishólmi
Fréttir

Viðvera atvinnuráðgjafa SSV í Stykkishólmi

Helga Guðjónsdóttir atvinnuráðgjafi SSV og Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúi SSV verða til viðtals í ráðhúsinu mánudaginn 3. maíl kl. 13-15. SSV ? þróun og ráðgjöf er hluti af stoðkerfi atvinnulífsins og veitir ráðgjöf á sviði atvinnumála og vinnur að þróun búsetuskilyrða á starfssvæði Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.
29.04.2021
Plokkum í tilefni af Degi umhverfisins
Fréttir

Plokkum í tilefni af Degi umhverfisins

Þann 25. apríl ár hvert er Degi umhverfisins fagnað víða um land, en dagurinn er tileinkaður umhverfinu sem hvatning til að tengjast náttúrunni og efla umhverfisvitund. Meðal þess sem landsmenn munu gera er að leggja leið sína út í náttúruna og tína rusl. Íbúar Stykkishólmsbæjar eru hvattir til að taka þátt og fegra nærumhverfið. Hægt verður að nálgast ruslatínur til láns og poka undir rusl hjá forstöðumanni Íþróttamiðstöðvarinnar um helgina. Fyrir utan Gámastöðina Snoppu verður tunnu komið fyrir þar sem íbúar geta hent rusli eftir plokk.
23.04.2021
Sjósundsskýli reist í Stykkishólmi - Bætt aðstaða til sjósunds í Móvík
Fréttir

Sjósundsskýli reist í Stykkishólmi - Bætt aðstaða til sjósunds í Móvík

Undanfarið hafa starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Stykkishólmsbæjar staðið í ströngu við að bæta aðstöðu til sjósundsiðkunar í Móvík, en þar hefur verið reist tímabundið skýli fyrir sjósundskappa til að hafa fataskipti og lagður hefur verið stigi með handriði niður í fjöruna. Skýlisins hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu frá því að bæjarstarfsmenn hófu vinnuna og mun vonandi nýtast vel.
21.04.2021
Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2021
Fréttir

Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2021

Verkefnið Hjólað í vinnuna fer fram 5. - 25. maí nk. og er fyrir marga vorboðinn ljúfi. Opnað verður fyrir skráningar 21. apríl og hægt er að skrá sig allan tímann á meðan keppni stendur yfir eða fram til 25. maí.
21.04.2021
Getum við bætt efni síðunnar?