Fara í efni

Fréttasafn

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Gróður á lóðamörkum
Fréttir

Gróður á lóðamörkum

Trjágróður sem vex út fyrir lóðarmörk getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Sveitarfélagið hvetur garðeigendur til að klippa tré sín svo þau hvorki hindri vegfarendur, hylji umferðarskilti, götumerkingar né dragi úr götulýsingu. Einnig þarf að hugsa fyrir aðgengi vegna snjóhreinsunar.
14.10.2026
Vonskuveðri spáð á miðvikudag
Fréttir

Vonskuveðri spáð á miðvikudag

Veðurstofa Íslands spáir vonskuveðri um land allt á morgun, miðvikudaginn 14. október. Í athugasemd veðurfræðings segir að mjög djúp og kröpp lægð nálgast landið úr suðri í nótt og skil frá henni gangi inn á landið í fyrramálið með austan stormi og talsverðri úrkomu. Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Breiðafjörð frá kl. 09:00 til 20:00 á morgun, 14. október.
13.10.2026
Grundarfjörður
Fréttir

Krakka Rökkur Rokk í Grundarfirði

Rokkviðburðavika fyrir krakka á öllum aldri stendur nú yfir í Grundarfirði. Um helgina verða tónleikar í Samkomuhúsi Grundarfjarðar og því tilvalið fyrir Hólmara að gera sé ferð út á nes og heilsa upp á nágrannana. Dagskráin er hluti af barnamenningarhátíðinni Barnó Best Mest Vest á Vesturlandi og Rökkurdögum Grundarfjarðarbæjar.
09.10.2026
Stykkishólmur
Fréttir

Sveitarfélagið Stykkishólmur takmarkar hækkanir almennra gjaldskráa við 2,5% árið 2027

Bæjarstjórn Stykkishólms samþykkti á fundi sínum 1. október að hækkanir almennra gjaldskráa sveitarfélagsins verði að hámarki 2,5% árið 2027. Verður það lagt til grundvallar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 í samræmi við forsendur fjárhagsáætlunar sem lágu til afgreiðslu á fundinum.
05.10.2026
Auglýsing um skipulag
Fréttir Skipulagsmál

Auglýsing um skipulag

Á 47. fundi bæjarstjórnar þann 30. apríl 2026 var samþykkt að auglýsa eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vatnsás í Víkurhverfi. Breytingin nær til svæðis syðst í Víkurhverfi. Skipulagssvæðið minnkar þar sem stór hluti svæðisins er illbyggilegur, göturnar Móvík og Sundvík falla út, fjöldi íbúða fer úr 21-32 í 14-28 og heimilt er að byggja parhús og einbýli. Lóðin R1 helst óbreytt í stærð en fer úr 2-4 íbúðir í 3-6. (Mál nr. 1120/2026 í Skipulagsgátt).
01.10.2026
Getum við bætt efni síðunnar?