Fara í efni

Fréttasafn

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Starf í íþróttamiðstöð Stykkishólms
Fréttir Laus störf

Starf í íþróttamiðstöð Stykkishólms

Sveitarfélagið Stykkishólmur óskar eftir að ráða konu í starf í Íþróttamiðstöð Stykkishólms. Um er að ræða framtíðarstarf í 100% vaktavinnu, unnið er á morgun, kvöld og helgarvöktum í samræmi við opnunartíma. Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf í byrjun desember 2026.
02.09.2026
Átak vegna skráninga fasteigna í sveitarfélaginu
Fréttir

Átak vegna skráninga fasteigna í sveitarfélaginu

Skipulagsfulltrúa hefur, í samstarfi við byggingarfulltrúa, verið falið að skoða nánar skráningarmál eigna í sveitarfélaginu og setja á laggir átak vegna óskráða fasteigna. Unnið verður að yfirferð og samanburði upplýsinga og haft samband við eigendur eftir því sem tilefni er til. Eigendur sem telja að upplýsingar um eignir þeirra séu ekki réttar eru jafnframt hvattir til að kynna sér skráningu eignarinnar og koma leiðréttingum á framfæri eftir því sem við á. Hægt er að hafa samband við skipulagsfulltrúa í síma 433-8100 á opnunartíma Ráðhússins eða með tölvupósti: skipulag@stykkisholmur.is
02.09.2026
Starf í Höfðaborg
Fréttir Laus störf

Starf í Höfðaborg

Sveitarfélagið Stykkishólmur auglýsir laust til umsóknar starf við þrif í Höfðaborg. Starfshlutfall er 25% og um framtíðarstarf er að ræða. Starfsstöðin er í Höfðaborg, Skólastíg 14, í Stykkishólmi. Starfið felst í almennum þrifum í húsnæði Höfðaborgar, að eldhúshluta þess undanskildu, skv. fyrirliggjandi þrifaáætlun. Umsækjendur þurfa hafa reynslu af störfum við ræstingar, búa yfir sjálfstæði í vinnubrögðum og lipurð og færni í mannlegum samskiptum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
01.09.2026
Tölum saman um líðan og tengsl
Fréttir

Tölum saman um líðan og tengsl

Barnaheill og Geðhjálp taka höndum saman og ferðast um landið í haust. Þar verður fundað með efstu bekkjum grunnskóla um líðan og veruleika ungmenna á hverjum stað. Lögð verður áhersla á samskipti, tengsl og líðan. Fundurinn fer fram á skólatíma og tekur um 2,5 klst. og lýkur með því að nemendum er boðið í pizzaveislu.
01.09.2026
Getum við bætt efni síðunnar?