Fara í efni

Skóla- og fræðslunefnd

26. fundur 10. júní 2026 kl. 17:00 - 18:30 í Grunnskóla Stykkishólms
Nefndarmenn
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir (HH) formaður
  • Jón Sindri Emilsson aðalmaður
  • Guðbjörg Arna Evudóttir aðalmaður
  • Eva Rut Ellertsdóttir aðalmaður
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir formaður
  • Rannveig Tenchi Ernudóttir varamaður
Starfsmenn
  • Elísabet Lára Björgvinsdóttir - (ELB) skólastjóri leikskóla
  • Berglind Eva Ólafsdóttir fulltrúi starfsmanna leikskóla
  • Þóra Margrét Birgisdóttir skólastjóri grunnskóla
  • Steinunn María Þórsdóttir
Fundargerð ritaði: Jón Sindri Emilsson ritari
Dagskrá

1.Erindisbréf skóla- og fræðslunefndar

Málsnúmer 1902031Vakta málsnúmer

Lagt fram erindisbréf skóla- og fræðslunefndar. Gyða Steinsdóttir, fjármála- og skirfstofustjóri, kemur til fundar og gerir grein fyrir erindisbréfinu.
Skóla- og fræðslunefnd þakkar Gyðu fyrir greinargóða yfirferð.

2.Starfsemi Leikskólans í Stykkishólmi - Greinargerð stjórnenda

Málsnúmer 1910039Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla Leikskólans í Stykkishólmi, stjórnendur fara yfir starfsemi skólans.
Aðstoðarleikskólastjóri gerir grein fyrir skýrlsu stjórnenda.

3.Starfsemi Grunnskólans í Stykkishólmi - Greinargerð stjórnenda

Málsnúmer 1910040Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla Grunnskólans í Stykkishólmi, skólastjóri fer yfir starfsemi skólans.
Skólastjóri gerir grein fyrir skýslu sinni. Í skýrslunni er m.a. greint frá fyrirhuguðum endurbótum á stoðþjónustu sem unnið er í samstarfi við Ásgarð skólaþjónustu og umbótum í lesfimi nemenda.

4.Starfsemi Tónlistaskóla Stykkishólms - Greinargerð stjórnanda

Málsnúmer 1910043Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla Tónlistarskóla Stykkishólms, skólastjóri fer yfir starfsemi skólans.
Skólastjóri gerir grein fyrir skýslu sinni. Í skýrslunni er m.a. greint frá nýjum söngkennara sem hefur störf í haust, Friðriki Kristinssyni, stjórnanda Karlakórs Reykjavíkur.

5.Starfsemi Regnbogalands - skýrsla og yfirferð

Málsnúmer 1910041Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla Regnbogalands, umsjónarmaður fer yfir starfsemina.
Umsjónarmaður Regnbogalands gerir grein fyrir skýrslu sinni.

6.Kosning varaformanns og ritara

Málsnúmer 2211039Vakta málsnúmer

Samkvæmt erindisbréfi skal nefndin kjósa varaformann og ritara á fyrsta fundi sínum.
Jón Sindri Emilsson kjörinn ritari skóla- og fræðslunefndar. Nefndin frestar kjöri varaformanns til næsta fundar.

7.Viðverustefna Grunnskólinn í Stykkishólmi

Málsnúmer 2606031Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að viðverustefnu Grunnskólans í Stykkishólmi.
Skóla- og fræðslunefnd er hlynnt fyrirliggjandi viðverustefnu og óskar eftir að hún verið lögð fyrir nefndina á ný þegar vinnu við hana er lokið.

Fundi slitið - kl. 18:30.

Getum við bætt efni síðunnar?