Fréttir
Tveir ungir Hólmarar skipulögðu taflmót
Vikuna 16.-20. október var hin árlega félagsmiðstöðva- og ungmennahúsavika Samfés hladin víðsvegar um land. Af þessu tilefni skipulögðu tveir ungir skákáhugamenn taflmót fyrir bæði miðstig og efsta stig Grunnskólans og sáum þér alfarið um að safna vinningum og stýra mótinu. Þetta voru þeir Hjalti Jóhann Helgason, nemandi í 10. bekk, og Stefán Karvel Kjartansson, nemandi í 9. bekk. Eru þeim færðar þakkir fyrir þeirra framlag til viðburðahalds fyrir ungmenni sem sækja félagsmiðstöðina. Jafnframt var foreldrum boðið að fylgjast með og buðu ungmennin upp á heitar vöfflur og kakó.
27.10.2023