Fréttir
Lóðin Imbuvík 4 laus til úthlutunar
Sveitarfélagið Stykkishólmur auglýsir lóðina Imbuvík 4 í Víkurhverfi lausa til úthlutunar með 30% afslætti af gatnagerðagjöldum, sem miðast við mögulegt byggingarmagn, vegna forsendubrest í tengslum við fyrirliggjandi óhagkvæmni tengt uppbyggingu lóðarinnar. Lóðin er auglýst í samræmi við reglur Stykkishólms um úthlutun á lóða fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði og bætist lóðin þar með á úthlutunarlista yfir lausar lóðir í Stykkishólmi. Umsóknarfrestur er til og með 4. nóvember 2024. Gatnagerð á svæðinu er á lokastigi.
25.10.2024