Fara í efni

Bæjarráð

16. fundur 23. nóvember 2023 kl. 14:30 - 18:40 í bæjarráðssal
Nefndarmenn
  • Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir formaður
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir aðalmaður
  • Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
  • Þór Örn Jónsson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þór Örn Jónsson bæjarritari
Dagskrá

1.Dreifbýlisráð - 1

Málsnúmer 2310006FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 1. fundar dreifbýlisráðs.
Framlagt til kynningar.

2.Skipulagsnefnd - 15

Málsnúmer 2310004FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 15. fundar skipulagsnefndar.
Framlagt til kynningar.

3.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 31

Málsnúmer 2311001FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 31. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa.
Framlagt til kynningar.

4.Fundargerð - Samband íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 2102003Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 937. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Framlagt til kynningar.

5.Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Vesturlands

Málsnúmer 2006017Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð frá 186. fundi heilbrigðisnefndar Vesturlands.
Framlagt til kynningar.

6.Bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga

Málsnúmer 2310032Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga til sveitarstjórnar vegna ársreiknings 2022.
Framlagt til kynningar.

7.Umsagnarbeiðni vegna kristinfræðikennslu í grunnskólum

Málsnúmer 2310034Vakta málsnúmer

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar um grunnskóla (kristinfræðikennsla), 47. mál.



Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 9. nóvember nk.
Framlagt til kynningar.

8.Bráðabirgða níu mánaða uppgjör 2023

Málsnúmer 2311008Vakta málsnúmer

Lagt fram níu mánaða bráðabirgðauppgjör.
Bæjarritari gerir grein fyrir málinu.

Framlagt til kynningar.

9.Ágóðahlutagreiðsla 2023

Málsnúmer 2310031Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Brunabótafélagi Íslands þar sem fram kemur að á síðasta aðalfundi fulltrúaráðs EBÍ hafi verið samþykkt að áfram muni hluti hagnaðar af starfsemi félagsins vera greiddur út til aðildarsveitarfélaganna í formi ágóðahlutar.
Framlagt til kynningar.
Fylgiskjöl:

10.Gagnaveita Helgafellssveitar

Málsnúmer 2208030Vakta málsnúmer

Lögð fram samþykkt um Gagnaveitu Helgafellssveitar ásamt bókun hluthafa.
Framlagt til kynningar.

11.Umsagnarbeiðni - Gististaður, The Stykkishólmur inn

Málsnúmer 2310035Vakta málsnúmer

Embætti Sýslumannsins á Vesturlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins varðandi umsókn Formáli fasteignir ehf kt.541022-0820, um rekstrarleyfi til reksturs gististaðar í flokki IV, stærra gistiheimili, sem rekinn verður sem The Stykkishólmur Inn, að Aðalgötu 8, Stykkishólmi.

Umsækjandi er nýr rekstraraðili sem mun hefja rekstur þar sem Höfðagata 1 ehf , rak ?Hótel Breiðafjörð?.
Bæjarráð gerir ekki athugsemdir við veitingu rekstarleyfis til Formáli fasteignir ehf.

12.Frumvarp til laga um lagareldi

Málsnúmer 2311002Vakta málsnúmer

Lögð fram til umsagnar áform um frumvarp til laga um lagareldi, ásamt frummati á áhrifum lagasetningar um lagaeldi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að rýna frumvarpið og eftir atvikum senda umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.

13.Frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga

Málsnúmer 2311011Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, 478. mál.



Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 30. nóvember nk.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að rýna frumvarpið og eftir atvikum senda umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.

14.Þjónustustefna í byggðum og byggðarlögum sveitarfélagsins

Málsnúmer 2310038Vakta málsnúmer

Lagðar fram leiðbeiningar um mótun þjónustustefnu sveitarfélaga, en með lögum nr. 96/2021 sem tóku gildi í júní 2021 samþykkti Alþingi nýtt ákvæði við sveitarstjórnarlög sem fjallar um þjónustustefnu í byggðum og byggðarlögum sveitarfélags.
Bæjarráð vísar málinu til frekari vinnslu í bæjarráði.

15.Skógarstrandarvegur

Málsnúmer 1912009Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað frá Vegagerðinni þar sem farið er yfir grófa verk- og tímaáætlun fyrir framkvæmdir á Skógarstrandarvegi.
Bæjarráð fagnar þessum áfanga í vinnu við uppbyggingu Skógarstrandarvegar. Að öðru leyti vísar bæjarráð til fyrri umsgna og ályktana sveitarfélagsins vegna uppbyggingar Skógarstrandarvegar.

16.Dreifbýlisráð - Erindisbréf

Málsnúmer 2311001Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að erindisbréfi fyrir erindisbréfi fyrir dreifbýlisráð
Bæjarráð samþykkir erindisbréf fyrir dreifbýlisrá og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja það.

17.Styrking leikskólastarfs

Málsnúmer 2302012Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá leikskólastjórnendum.
Bæjarráð vísar erindinu til frekari vinnslu í bæjarráði.

18.Dagdvalarrými

Málsnúmer 2206021Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá sjúkratryggingum Íslands þar til tilkynnt er um að heimild til reksturs tveggja almennra dagdvalarrýma hjá sveitarfélaginu falli niður frá og með 1. janúar 2024.
Bæjarráð fer fram á það við Heilbrigðisstofnun Vesturlands að stofnunin sinni dagdvalarþjónustu, sem er skilgreind sem fyrsta stigs heilbrigðisþjónusta, í Systraskjóli, hjúkrunarheimili sem rekið er á vegum stofnunarinnar við Austurgötu 7, frá og með 1. janúar 2024 í samræmi við viðræður sveitarfélagsins við stofnunina þar um, en Heilbrigðisstofnun Vesturlands hefur ekki samþykkt samstarf við sveitarfélagið á grundvelli samnings sveitarfélagsins við Sjúkratryggingar Íslands frá 1. júní 2022 þrátt fyrir umleitanir sveitarfélagsins þar um. Vísar bæjarráð jafnframt til fundar fulltrúa sveitarfélagins við Heilbrigðisráðherra, dags. 12. október 2022, þar sem jákvætt var tekið í umræddar hugmyndir um samstarf við sveitarfélagið og að dagdvöl verði sinnt á vegum hjúkrunarheimilisins. Bæjarráð vísar að öðru leyti til fyrri bókana og samskipta vegna málsins.

19.Skipulagsbreytingar

Málsnúmer 2308015Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga KPMG að breytingum á skipulagi með það að markmiði að skýra stjórnskipulag, ábyrgð og verklag hjá sveitarfélaginu, ásamt drögum að starfslýsingum, en í verkefninu felst að teikna upp núverandi stöðu og útfæra fyrirliggjandi hugmyndir og fyrirhugaðar breytingar með það fyrir augum að nýta sem best núverandi mannauð. Fulltrúar KPMG koma til fundar við bæjarráð og gera grein fyrir tillögunni.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til frekari vinnslu í bæjarráði.

20.Hamraendi 6-8 - Lóðaleigusamningur

Málsnúmer 2202020Vakta málsnúmer

Lagður fram lóðaleigusamningur fyrir Hamraenda 6-8.
Bæjarráð samþykkir lóðaleigusamning fyrir Hamraenda 6-8 og felur bæjarstjóra að undirrita þá fyrir hönd sveitarfélagsins.

21.Styrkumsóknir

Málsnúmer 2303021Vakta málsnúmer

Auglýst var eftir styrkumsóknum frá einstaklingum og fyrirtækjum í samræmi við reglur sveitarfélagsins um styrkveitingar frá 14. september til 9. október sl. Lagðar eru fram þær umsóknir sem bárust ásamt tillögu að úthlutun.



Á 18. fundi sínum vísaði bæjarstjórn málinu til bæjarráðs og veitti jafnframt bæjarráði fullnaðarumboð til afgreiðslu málsins.
Eftirtali hlutu styrk.

Júlíana-hátíð sögu og bóka kr. 150.000
Kór Stykkishólmskirkju kr. 100.000
Skotthúfan- Norska húsið kr. 50.000
Snæfell- Körfuboltahátíð kr. 150.000
FAS- hræðileg helgi kr. 50.000

22.Víkurhverfi dsk br - 12 íbúðir fyrir Brák

Málsnúmer 2311007Vakta málsnúmer

Lögð fram til afgreiðslu tillaga að breytingu á deiliskipulagi Víkurhverfis vegna íbúða fyrir Brák íbúðafélag hses. eftir uppfærslu í samræmi við afgreiðslu á 12. fundi skipulagsnefndar 19. júní sl. sem staðfest var í bæjarráði, í fjarveru bæjarstjórnar vegna sumarleyfa, 22. júní sl.



Á 15. fundi sínum taldi skipulagsnefnd að um verulega skipulagsbreytingu sé að ræða og samþykkti fyrir sitt leyti að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Víkurhverfis í samræmi við 1. mgr. 43. gr. þó án skipulagslýsingar og kynningar vinnslutillögu sbr. 3. og 4. mgr. 40. gr. laganna.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með tveimur atkvæðum Ragnheiður sat hjá og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Víkurhverfis í samræmi við 1. mgr. 43. gr. þó án skipulagslýsingar og kynningar vinnslutillögu sbr. 3. og 4. mgr. 40. gr. laganna.

23.Jónsnes - framkvæmdaleyfi fyrir veg

Málsnúmer 2310004Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Jónsness ehf. um framkvæmdaleyfi fyrir aðkomuvegi í Jónsnes samkvæmt fyrirliggjandi uppdrætti sem sýnir vegstæði frá Vogsbotni á milli Ögursvatns og Hofstaðavatns eftir Hellisási, Arnarási og Skálaholti að Jónsnesi.



Þann 29. september sl. bárust skipulagsfulltrúa ábendingar um að framkvæmdir við veginn væru hafnar án framkvæmdaleyfis og stöðvaði skipulagsfulltrúi framkvæmdirnar samstundis í samræmi við 53. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lið f) í 2. gr. viðauka 3 um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í Samþykkt um stjórn sameinaðs sveitarfélags Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar.



Þar sem vegurinn er ekki á skipulagi og liggur að hluta til um svæði, sem í gildandi Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2024 er skilgreint sem náttúruverndarsvæði (almenn náttúruvernd), vísaði skipulagsfulltrúi afgreiðslu málsins til skipulagsnefndar í samræmi við 4. gr. ofangreindrar samþykktar, en samkvæmt greininni gerir skipulagsnefnd tillögu til bæjarráðs sem tekur ákvörðun um fullnaðarafgreiðslu málsins.



Á 14. fundi sínum taldi skipulagsnefnd framkvæmdina vera framkvæmdaleyfisskylda sbr. 5. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Nefndin óskaði eftir skriflegu samþykki landeigenda Ögurs og Hofstaða og verklýsingu í samræmi við 7. gr. reglugerðarinnar. Þegar þessi gögn hafa borist, fól nefndin skipulagsfulltrúa að óska eftir umsögnum Vegagerðarinnar, Minjastofnunar, Náttúrustofu Vesturlands, Náttúrufræðistofnunar og Umhverfisstofnunar. Þar sem ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag og vegurinn er ekki sýndur á aðalskipulagsuppdrætti, fól nefndin skipulagsfulltrúa að óska eftir áliti Skipulagsstofnunar hvort vegurinn teljist skipulags- og/eða matsskyldur sbr. 9. gr. reglugerðarinnar. Framkvæmdaleyfi verður ekki gefið út fyrr en ofangreind gögn liggja fyrir og sveitarfélagið hefur tekið afstöðu til athugasemda sem kunna að berast. Stöðvun framkvæmda er því í gildi áfram eða þar til framkvæmdaleyfi hefur verið gefið út.



Á 15. fundi sínum staðfesti bæjarráð afgreiðslu skipulagsnefndar.



Í samræmi við afgreiðslu málsins óskaði skipulagsfulltrúi eftir umsögn skipulagsstofnunar hvað varðar mögulega skipulagsskyldu og/eða umhverfismatsskyldu og var lögð fyrir 18. fund bæjarstjórnar tillaga að afgreiðslu í samræmi við álit skipulagsstofnunar og ráðleggingar skipulagsfulltrúa. Þar kemur fram að þegar Aðalskipulag Helgafellssveitar 2012-2024 var unnið, var Jónsnes skráð sem jörð í byggð en enginn vegur sýndur að jörðinni á aðalskipulagsuppdrætti eins og gert var við aðrar jarðir í byggð (skilgreindir sem ?aðrir vegir?). Í samræmi við framangreindar ráðleggingar féllst bæjarstjórn á að vinna þurfi breytingu á aðalskipulagi í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eða óverulega breytingu sé það mögulegt.



Lagt er fram nýtt álit skipulagsfulltrúa, dags. 17. nóvember 2023, þar sem embættið telur ekki að fara þurfi fram breyting á Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2024 vegna umræddrar veglagningar.
Bæjarráð samþykkir með vísan til fyrirliggjandi álits skipulagsfulltrúa að ekki sé talin þörf á breytingu á aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2014 vegna umræddrar veglagningar og vísar afgreiðslu sinni til staðfestingar í bæjarstjórn.

24.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Helgafell - Flokkur 1,

Málsnúmer 2310008Vakta málsnúmer

Jóhanna Kristín Hjartardóttir sækir um leyfi fyrir byggingu þriggja frístundahúsa í landi Helgafells ásamt stofnun nýrra lóða samhliða því.



Þar sem að ekki er til deiliskipulag fyrir svæðið vísaði byggingarfulltrúi málinu til afgreiðslu í skipulagsnefnd.

Samkvæmt Aðalskipuagi Helgafellssveitar 2012-2024 er á landbúnaðarsvæðum heimilt án þess að aðalskipulagi sé breytt að reisa þrjú frístundahús á jörðum eða jarðaspildum sem eru 10 ha eða stærri. Fjöldi þegar byggðra stakra frístundahúsa dregst frá heimildinni. Húsin verða að standa á sérstaklega afmörkuðum lóðum og mælst til þess að þau séu í nágrenni við hvort annað. Framkvæmdir eru deiliskipulagsskyldar. Helgafell er 94 ha jörð. Fyrir eru tvö íbúðarhús og lóðir fyrir þrjú frístundahús.



Á 15. fundi sínum gerði skipulagsnefnd ekki athugasemd við umsókn Jóhönnu Hjartardóttur um byggingu þriggja frístundahúsa í landi Helgafells í samræmi við fyrirliggjandi gögn og að stofnuð verði lóð. Horfir skipulagsnefnd meðal annars til afgreiðslu 1. fundar dreifbýlisráðs og til þess að fyrir liggur undirritað skjal frá öllum hagaðilum á svæðinu sem samþykkja áformin. Horfir skipulagsnefnd einnig til afgreiðslu 15. fundar bæjarstjórnar vegna sambærilegs máls við Lyngholt í landi Helgafells sem var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn. Telur skipulagsnefnd ekki forsendur til þess að fara gegn þeirri stefnumörkun bæjarstjórnar og bókun dreifbýlisráðs.



Á þessum grunni vísar skipulagsnefnd erindinu til afgreiðslu hjá byggingarfulltrúa.



Afgreiðsla 15. fundar skipulagsnefndar er lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og leggur til við bæjarstjórn að staðfesta hana.

25.Byggingaheimildir í dreifbýli

Málsnúmer 2310042Vakta málsnúmer

Á fyrsta fundi dreifbýlisráðs fjallaði skipulagsfulltrúi um heimildir til uppbyggingar í dreifbýlinu samkvæmt aðalskipulagi Helgafellssvetitar.



Drefibýlisráð lagði áherslu á að sveitarfélagið haldi sig við þá stefnumörkun og ákvarðanir sem sveitarstjórn Helgafellssveitar tók fyrir sameiningu hvað varðar túlkun á aðalskipulagi þar til aðalskipulagsbreyting verði gerð sem breyti þeirri stefnumörkun. Dreifbýlisráðið lagði áherslu á heilstætt mat fari fram hverju sinni, sér í lagi á bótaábyrgð sveitafélagsins.



Dreifbýlisráð lagði jafnframt til að málsgrein í kafla 4.1. í aðalskipulagi varðandi kröfu um deiliskipulag verði endurskoðað vegna þeirrar óvissu og óskýrleika sem málsgreinin hefur valdið.



Á 15. fundi skipulagsnefndar lagði skipulagsnefnd jafnframt til að felld verði út eftirfarandi setning í kafla 4.1 í aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2024: "Framkvæmdir skv. liðum eru allar deiliskipulagsskyldar", vegna óskýrleika ákvæðisins eins og dreifbýlisráðið hefur bent á, og á meðan unnið er að því að fella setninguna úr aðalskipulagi verði ný mál ekki tekin til afgreiðslu án deiliskipulags frá og með samþykkt bæjarstjórnar á tillögu þessari.



Eftir að kvöðin verður felld úr aðalskipulagi gefst ráðrúm til að vinna með íbúum í dreifbýli og dreifbýlisráði að endurskoðun byggingarheimilda samkvæmt aðalskipulagi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og leggur til við bæjarstjórn að staðfesta hana.

26.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Vatnsás 18 - Flokkur 2,

Málsnúmer 2310007Vakta málsnúmer

Golfklúbburinn Mostri sækir um vegna breytingu á golfskála og viðbyggingu við hann samkv. uppdráttum frá W7.



Þar sem að ekki er til deiliskipulag fyrir svæðið vísaði byggingarfulltrúi málinu til afgreiðslu í skipulagsnefnd.



Skipulagsnefnd samþykkti á 15. fundi sínum, framlögð byggingaráform en nefndin taldi grenndaráhrif vera lítil sem engin og því ekki þörf á að grenndarkynna áformin sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulaglaga nr. 123/2010.



Afgreiðsla skipulagsnefndar er lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og leggur til við bæjarstjórn að staðfesta hana.
Fylgiskjöl:

27.Sæmundarreitur 8 - óv br deiliskipulag

Málsnúmer 2306044Vakta málsnúmer

Lögð er fram athugasemd sem barst úr grenndarkynningu vegna umsóknar Jóns Ragnars Daðasonar um að byggja 18,2 m2 sólskála við Sæmundarreit 8 (áður Sæmundarreitur 5).



Húsið var reist árið 1906 og stóð áður við Laugaveg 27b í Reykjavík og nýtur friðunar vegna aldurs sbr. lög um menningarminjar nr. 80/2012. Í því felst að óheimilt er að raska húsinu, spilla því eða breyta, rífa eða flytja úr stað, nema með leyfi Minjastofnunar (flutningsleyfi veitt árið 2015). Meðfylgjandi er álit minjavarðar Vesturlands dags. 22.06.2023 þar sem hann heimilar byggingu sólskála skv. teikningum dags. 25.4.2023 og minnir á 24. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012 varðandi viðbrögð komi fornleifar í ljós við framkvæmdir.Við breytinguna stækkar byggingarreiturinn um 3,5m x 5,5m.



Þar sem sólskáli telst vera viðbygging sem staðsetja þurfi innan byggingarreits skv. gildandi deiliskipulagi frá 2016 m.s.br., taldi skipulagsnefnd á 13. fundi sínum þann 16. ágúst 2023 að breytingin kallaði á óv. br. á deiliskipulagi sem grenndarkynna þyrfti fyrir aðliggjandi lóðarhöfum í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarráð staðfesti afgreiðslu skipulagsnefndar á 13. fundi sínum þann 21. ágúst sl.



Grenndarkynningin fór fram 9. október með athugasemdafrest til og með 6. nóvember.



Á 15. fundi sínum taldi skipulagsnefnd innsenda athugasemd réttmæta og að sólskáli skuli ekki hindra útsýni frá nærliggjandi húsum við Sæmundarreit. Á þeirri forsendu hafnaði nefndin framlagðri tillögu.



Afgreiðsla skipulagsnefndar er lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar.

28.Húsnæðisáætlun 2024

Málsnúmer 2311014Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þar sem óskað er eftir endurskoðun húsnæðisáætlunarinnar fyrir Sveitarfélagið Stykkishólm fyrir árið 2024. Þá er lögð fram samþykkt rafræn húsnæðisáætlun sveitarfélagsins 2023 sem samþykkt var á 10 fundi bæjarstjórnar Stykkishólms, en sú áætlun er byggð á samþykktri húsnæðisáætlun Stykkishólmsbæjar 2020-2028, sem samþykkt var á 391. fundi bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar og er jafnframt lögð fram.
Bæjarráð vísar málinu til frekari vinnslu í bæjarráði.

29.Þingskálanes, Hamrar, Gæsatangi - deiliskipulag

Málsnúmer 2310024Vakta málsnúmer

Lögð fram til afgreiðslu tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Þingskálanes, Hamra og Gæsatanga í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Áður hafði sveitarfélagið heimilað landeigendum að hefja vinnu við gerð deiliskipulags Þingskálaness í samræmi við 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Landeigandi telur allar meginforsendur deiliskipulagstillögunnar vera í samræmi við í gildandi Aðalskipulag Helgafellssveitar 2012-2024 og óskar eftir undanþágu frá gerð skipulagsslýsingar sbr. gr. 5.2.2. í skipulagsreglugerð nr 90/2013 m.s.br. Með meginforsendum er átt við stefnu um áherslur og uppbyggingu landnotkunarreita svo sem varðandi nánari notkun á einstökum reitum, þéttleika og byggðamynstur eða umfang auðlindanýtingar.



Skipulagsnefnd samþykkti, á 15. fundi sínum, fyrir sitt leyti að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Þingskálanes, Hamra og Gæsatanga í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin taldi allar meginforsendur tillögunnar vera í samræmi við aðalskipulag og kalli því ekki á skipulagslýsingu sbr. 2. mgr. 5.2.2. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 og kynningu vinnslutillögu sbr.4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Nefndin fól skipulagsfulltrúa að vinna með landeiganda og skipulagsráðgjafa að því að uppfæra tillöguna í samræmi við umræður á fundinum, m.a. varðandi stærð bygginga, og auglýsa tillöguna að því loknu.



Afgreiðsla skipulagsnefndar er lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og í samræmi við afgreiðslu skipulagsnefndar leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Þingskálanes, Hamra og Gæsatanga í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

30.Reglur sveitarfélagsins um stuðningsþjónustu - Miðstöð öldrunarþjónustu

Málsnúmer 2311017Vakta málsnúmer

Lögð drög að reglum sveitarfélagsins um stuðningsþjónustu vegna þjónustu Höfðaborgar.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

31.Akstursþjónusta í Stykkishólmi

Málsnúmer 1909014Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að reglum um akstursþjónustu sveitarfélaga frá félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, ásamt núgildandi reglum um akstursþjónustu aldraðara og gjaldskrá.
Bæjarráð samþykkir að vísa reglunum til frekari vinnslu í bæjarráði.

32.Samþykkt um gatnagerðargjald og þjónustugjaldskrár í skipulags- og byggingarmálum ásamt lóðarreglum

Málsnúmer 2311015Vakta málsnúmer

Lögð fram ný samþykkt um gatnagerðargjöld og þjónustugjaldskrár í skipulags- og byggingarmálum ásamt lóðarreglum og öðrum samanburðargögnum.
Bæjarráð samþykkir gatnagerðagjöld og þjónustugjaldskrár í skipulags- og byggingarmálum ásamt lóðarreglum og vísar þeim til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

33.Samningur við Snæfell

Málsnúmer 1905032Vakta málsnúmer

Lagður fram samstarfssamningur sveitarfélagsins við UMF Snæfell sem bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkti á 392. fundi sínum, en samningurinn rennur sitt skeið um nk. áramót.
Bæjarráð vísar samningnum til frekari vinnslu og felur bæjarstjór að eiga viðræður við fulltrúa Snæfells.

34.Viljayfirlýsing vegna skipta á lóðum

Málsnúmer 2303004Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkti á 10. fundi sínum að veita bæjarráði fullnaðarumboð til þess að ganga frá og samþykkja viljayfirlýsingu vegna skipta á lóðum við Asco Harvester, sbr. fyrirliggjandi drög, þegar minnisblað Landslaga vegna málsins lægi fyrir. Minnisblað Landslaga er lagt fram.
Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum, Ragnheiður greiðir atkvæði á móti, að ganga til samninga við Asco Harvester ehf., kt. 630216-0360, nú Isea ehf., um skipti á lóðum, Nesvegi 22A, L137230, F2116017 og nýrri óbyggð 23800 m2 lóð merkt Nesvegur 25 á deiliskipulagi, með vísan til fyrirliggjandi álit lögmanns. Bæjarstjóra er falið að ganga frá samningi í samræmi við fyrirliggjandi gögn og upplýsingar og undirrita samning um skipti á lóðum.

Bókun.

Undirrituð telur að allar nýjar lóðir þurfi að auglýsa samkvæmt reglum um lóðarúthlutanir hjá Sveitarfélaginu Stykkishólmi. Útaf þeim ástæðum mun ég greiða atkvæði á móti þessum lóðarskiptum.
Íbúalistinn
Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir

35.Viðauki 5 við Fjárhagsáætlun 2023-2026

Málsnúmer 2311012Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki 5 við fjárhagsáætlun 2023-2026.
Bæjarráð samþykkir viðauka 5 við Fjárhagsáætlun 2023-2026 og og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja hann.

36.Gjaldskrár 2024

Málsnúmer 2310019Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að gjaldskrám sveitarfélagsins 2024 sem tekur mið af forsendum fjárhagsáætlunar 2024-2027 sem samþykktar voru á 17. fundi bæjarstjórnar.



Bæjarstjórn samþykkti gjaldskrárnar á 18. fundi sínum og vísaði til umsagnar í fastanefndum og frekari umfjöllunar í bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til frekari vinnslu í bæjarráði.

37.Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms 2024-2027

Málsnúmer 2310016Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun 2024-2027 lögð fram til síðar umræðu í bæjarstjórn.



Bæjarstjórn samþykkti, á 18. fundi sínum, Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms 2024-2027 og vísaði henni til frekari umfjöllunar í bæjarráði, umsagnar í fastanefndum og til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til frekari vinnslu í bæjarráði.

Fundi slitið - kl. 18:40.

Getum við bætt efni síðunnar?