Fara í efni

Fréttir

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Á milli staða í náttúru Grænlands - Ljósmyndasýning eftir Jóhönnu Ómarsdóttur
Fréttir Lífið í bænum

Á milli staða í náttúru Grænlands - Ljósmyndasýning eftir Jóhönnu Ómarsdóttur

Á milli staða í nátttúru Grænlands - Ljósmyndasýning eftir Jóhönnu Ómarsdóttur áhugaljósmyndara, opnar laugardaginn 18. apríl kl. 13:00 í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla. Ljósmyndirnar voru teknar við Qooroq ísfjörð á suðurströnd Grænlands 2006. Til að komast á milli þeirra bæja sem eru við fjörðinn þarf að ferðast með bát eða þyrlu. Myndirnar voru teknar í einni slíkri bátsferð á milli stærstu bæja strandarinnar Qaqortoq og Narsaq. Við fjöruborð þeirra og einnig í ferð upp á Grænlandsjökul.
17.04.2026
Höfðaborg
Fréttir Laus störf

Laust starf í eldhúsi í Höfðaborg

Sveitarfélagið Stykkishólmur auglýsir laust til umsóknar starf aðstoðarmanneskju í eldhúsi í Höfðaborg. Starfið felst í aðstoð við matráð eldhússins, þrifum og öðrum tilheyrandi verkefnum sem fylgja rekstri mötuneytis. Umsóknarfrestur er til 4. maí 2026 og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst
17.04.2026
Jakob Björgvin, bæjarstjóri og Sævar Harðarson, framkvæmdastjóri Skipavíkur ehf.
Fréttir

Samningur um frekari uppbyggingu í Víkurhverfi undirritaður

Mánudaginn 13. apríl sl. var ritað undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu í Víkurhverfi. Samkvæmt fyrirliggjandi áformum er gert er ráð fyrir að Skipavík ehf. komi til með að byggja upp 14-28 íbúðareiningar í nýjum hluta hverfisins vestur af Borgarbraut, en í gildandi deiliskipulagi er heimild til að byggja 21-32 íbúðir. Í áformum Skipavíkur er lagt til að byggja parhús, einbýli og raðhús. Gert er ráð fyrir að uppbyggingu ljúki innan átta ára fá gildistöku deiliskipulags en deiliskipulag skal hafa tekið gildi fyrir apríl 2027.
16.04.2026
Samkomuhúsið í Stykkishólmi
Fréttir Lífið í bænum

Aftanskin heldur opið hús í Samkomuhúsinu

Aftanskin býður í opið hús í Samkomuhúsinu í Stykkishólmi fimmtudaginn 16. apríl á milli klukkan 15:00 og 17:00. Eins og greint hefur verið frá í fréttum frá sveitarfélaginu hafa Sveitarfélagið Stykkishólmur og Aftanskin, félag eldri borgara í Stykkishólmi, gert með sér samkomulag um afnot af Samkomuhúsinu við Aðalgötu 6.
15.04.2026
Stykkishólmur
Fréttir Laus störf

Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir eftir starfsmanni

Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir eftir starfsmanni við félagslega heimaþjónustu (þrif+innlit+leiðsögn) í 50 % stöðu. Um er að ræða þjónustu við heimili í Stykkishólmi.
15.04.2026
Tvö framboð skiluðu framboðslistum til kjörstjórnar
Fréttir

Tvö framboð skiluðu framboðslistum til kjörstjórnar

Tvö framboð í Sveitarfélaginu Stykkishólmi skiluðu framboðslistum til kjörstjórnar vegna sveitarstjórnarkosninga þann 16.maí n.k. H listinn - listi framfarasinna, notar listabókstafinn H. Íbúalistinn, notar listabókstafinn Í.
15.04.2026
Starf í íþróttamiðstöð Stykkishólms
Fréttir Laus störf

Starf í íþróttamiðstöð Stykkishólms

Sveitarfélagið Stykkishólmur óskar eftir að ráða í starf í íþróttamiðstöð og við sundlaugavörslu, (konu) í íþróttamiðstöð Stykkishólms. Um er að ræða framtíðarstarf í 100% vaktavinnu. Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf í byrjun júlí, síðasta lagi byrjun ágúst 2026. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
10.04.2026
Óskað eftir sjónarmiðum íbúa vegna aðalskipulagsgerðar
Fréttir

Óskað eftir sjónarmiðum íbúa vegna aðalskipulagsgerðar

Samhliða skipulagslýsingu nýtt aðalskipulags var birt vefkönnun til íbúa annarsvegar og landeigenda/ábúenda hinsvegar í tenglum við vinnuna. Könnununum er ætlað að draga fram upplýsingar og sjónarmið um helstu viðfangsefni aðalskipulags. Áður var óskað eftir að svörum fyrir 7. apríl 2026 en svarfrestur hefur nú verið framlengdur til 20. apríl. Íbúar sveitarfélagsins, landeigendur og ábúendur er hvattir til að svara könnununum. Ábendingar og svör verða tekin til umfjöllunar skipulagsnefndar í næstu áföngum skipulagsverkefnisins.
10.04.2026
Stykkishólmur
Fréttir Laus störf

Laus staða aðstoðarskólastjóra við Tónlistarskóla Stykkishólms

Laus er til umsóknar staða aðstoðarskólastjóra við Tónlistarskóla Stykkishólms. Um er að ræða 100% starf sem felur í sér bæði stjórnun (50%) og kennslu (50%). Hlutfall stjórnunar og kennslu getur verið sveigjanlegt og tekið mið af hæfni og reynslu þess sem ráðinn verður, sem og þörfum skólans.
08.04.2026
Amtsbókasafnið í Stykkishólmi
Fréttir

Framboðsfrestur rennur út 10. apríl

Framboðsfresti til sveitarstjórnarkosninga þann 16.maí 2026 lýkur 10.apríl kl.12 á hádegi. Tekið verður á móti framboðum á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi föstudaginn 10. apríl n.k. milli kl 11 og 12. Kjörstjórn
07.04.2026
Getum við bætt efni síðunnar?