Bæjarráð
1.Skipulagsnefnd - 29
Málsnúmer 2504002FVakta málsnúmer
2.Atvinnu- og nýsköpunarnefnd (SH) - 5
Málsnúmer 2504003FVakta málsnúmer
3.Umhverfis- og náttúruverndarnefnd - 5
Málsnúmer 2504006FVakta málsnúmer
4.Umsókn um lóð - Hjallatangi 13
Málsnúmer 2504025Vakta málsnúmer
5.Fundargerð fulltrúaráðsfundar EBÍ
Málsnúmer 2503023Vakta málsnúmer
6.Fundargerðir stjórnar Hafnarsambands Íslands
Málsnúmer 2003028Vakta málsnúmer
7.Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2102003Vakta málsnúmer
8.Bréf til bæjarstjórnar frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga
Málsnúmer 2504013Vakta málsnúmer
9.Rokkhátíð í Stykkishólmi
Málsnúmer 2305023Vakta málsnúmer
Bæjarráð tók samkomulag vegna Sátunnar til umfjöllunar á 30. fundi sínum og fól bæjarstjóra að taka upp samtal við forsvarsmenn sátunnar á grunni fyrirliggjandi samningsdraga.
10.Styrkumsóknir
Málsnúmer 2303021Vakta málsnúmer
Á 31. fundi sínum vísaði bæjarráð málinu til næsta fundar.
Skotveiðifélag Snæfellsness - kr. 100.000
Listasýning í Norska húsinu - kr 25.000
Fangaðu augnablikið - kr. 25.000
Andvarinn í Himinsfari kr. 150.000
Júlíana, hátíð sögu- og bóka - kr. 100.000
Eyrbyggjasögufélag, sagnaskemmtanir - kr. 50.000
Heima í Hólmi - kr. 75.000
Fjallkonan, kraftlyftingakeppni - kr. 150.000
Stykkishólmur Cocktail Weekend - kr. 75.000
11.Sjálfbærnistefna Snæfellsness
Málsnúmer 2402022Vakta málsnúmer
Guðrún Magnea Magnúsdóttir, verkefnastjóri Umhverfisvottunar, kemur til fundar við nefndina og gerir grein fyrir málinu.
12.Sala á húsnæði - Skúlagata 9
Málsnúmer 2409019Vakta málsnúmer
Á 31. fundi bæjarráðs fól bæjarráð bæjarstjóra að ganga til samninga með vísan til fyrirliggjandi gagna og leggja samning fyrir bæjarráð. Lögð er fram drög að samning.
13.Samstarf sveitarfélagsins við Félag atvinnulífs í Stykkishólmi
Málsnúmer 2405005Vakta málsnúmer
Bæjarráð vísaði málinu á síðasta fundi sínum til þess næsta.
14.Úttekt á kennslumagni Grunnskólans í Stykkishólmi
Málsnúmer 2501011Vakta málsnúmer
1. Skóla- og fræðslunefnd samþykti meðfylgjandi viðmið um úthlutun á kennslumagni og að úthlutun á grunnkennslumagni fari framvegis fram samkvæmt þeim. Úthlutun á kennslumagni til grunnskólans skal byggja á áætlun skólastjóra um nemendafjölda frá 1. mars ár hvert.
2. Skóla- og fræðslunefnd samþykkti að stofna starfshóp um fyrirkomulag úthlutunar á stoðþjónustu allra barna í sveitarfélaginu. Starfshópnum er ætlað að skila tillögu til skóla- og fræðslunefndar 1. nóvember 2025. Í hópnum verði deildarstjóri stoðþjónustu grunnskólans og sérkennslustjóri leikskólans auk verkefnastjóra frá skólaráðgjafarþjónustunni Ásgarði. Skólastjórnendur skólanna verði til samráðs.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skóla- og fræðslunefndar á 34. fundi sínum.
Þóra Margrét, skólastjóri, kemur til fundar við bæjarráð og gerir grein fyrir málinu.
15.Erindi vegna byggingarleyfisgjalda - Smiðjustígur 3
Málsnúmer 2504005Vakta málsnúmer
16.Umsagnarbeiðni - Rekstrarleyfi vegna veitingasölu í Baldri
Málsnúmer 2504012Vakta málsnúmer
17.Umsókn um stöðuleyfi við Hólmgarð (pulsuvagninn)
Málsnúmer 2503022Vakta málsnúmer
18.Breyting á deiliskipulagi Víkurhverfis
Málsnúmer 2503009Vakta málsnúmer
Breytingin felur í ser eftirfarandi:
1. Íbúðum fjölgar úr 4-6 í 10 íbúðir
2. Byggingarreitir breytast þannig að 10 íbúðir passi betur á reitina.
3. Bílastæðum er fjölgað úr 7 í 13.
Að öðru leyti gilda aðrir skilmálar.
Skipulagsnefnd samþykkti á 29. fundi sínum að auglýsa tillögu að breytingu deiliskipulags Víkurhverfis í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd benti þó á að göngustígur að íbúðum þurfi að vera það breiður að sjúkrabíll komist að. Enn fremur að setja þurfi inn mælingar frá byggingarreit að lóðarmörkum við eldra hverfi.
19.Austurgata 4
Málsnúmer 2504006Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd tók vel í fyrirhugaðar breytingu en lagði til að skoða aðra möguleika á staðsetningu fyrir rofahús með RARIK. Skipulagsnefnd veitti, á 29. fundi sínum, lóðarhafa heimild til þess að vinna tillögu að deiliskipulagsbreytingu.
20.Hamraendi 1 spennistöð
Málsnúmer 2504004Vakta málsnúmer
Þar sem deiliskipulag er í vinnslu fyrir Hamraenda þá fól skipulagsnefnd, á 29. fundi sínum, skipulagsfulltrúa að kom því áleiðis til skipulagshönnuðar að bæta við byggingarreit fyrir spennistöðina. Fjarlægð milli bygginga skal miðast við byggingarreglugerð.
21.Fyrirspurn til skipulagsnefndar - Aðalgata 8
Málsnúmer 2504001Vakta málsnúmer
Aðalgata 8 er á verslunar- og þjónustusvæði skv. aðalskipulagi og þá liggur fyrir deiliskipulag sem gerir ekki grein fyrir nýtingarhlutfall lóðarinnar. Skipulagsnefnd taldi á 19. fundi sínum best að hlutaðeigandi aðilar fundi með skipulagsfulltrúa.
22.Agustsonreitur - skipulagsbreyting
Málsnúmer 2302009Vakta málsnúmer
Jafnframt er lagt til að auglýsa tillögu að aðalskipulagsbreytingu skv. 31. gr. skipulagslaga og tillögu að deiliskipulagi skv. 41 gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd samþykki, á 29. fundi sínum, að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólms 2002-2022 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Enn fremur heimilaði skipulagsnefnd að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
23.Kallhamar og Hamraendar - Skipulagsáætlanir (ASK br. og DSK)
Málsnúmer 2206035Vakta málsnúmer
Á 29. fundi skipulagsnefndar var lagt til að tillaga að aðalskipulagsbreytingu verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd samþykkti að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólms 2002-2022 vegna stækkunar athafnarsvæðis við Hamraenda og grænna iðngarða við Kallhamar, ásamt breytingu á flugvelli, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
24.Kallhamar og Hamraendar - Skipulagsáætlanir (ASK br. og DSK)
Málsnúmer 2206035Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd samþykkti, á 29. fundi sínum, að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir annars vegar Kallhamar og hins vegar Hamraenda, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
25.Berserkjahraun Sjávarhús
Málsnúmer 2503016Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd samþykkti, á 29. fundi sínum, að afla umsagnar frá Minjastofnun og Náttúruverndarstofnun. Enn fremur benti skipulagsnefnd á að þörf er á að sækja um framkvæmdaleyfi fyrir veg að húsinu.
Skipulagsnefnd bendir á að byggingarreitur skal ekki vera nær en 50 metrum frá fjöruborði miðað við stórstraumsflæði.
26.Hólar 5a - br á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag
Málsnúmer 2310023Vakta málsnúmer
Lagt er til að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2024 skv. 31. gr. skipulagslaga.
Jafnframt er lagt til að auglýsa tillögu að deiliskipulagi skv. 41. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd samþykkti, á 29. fundi sínum, að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2024 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Enn fremur samþykkti nefndin að auglýsa deiliskipulagstillögu í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
27.Hólar 5a - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2210003Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd tók,á 29. fundi sínum, fram að aðal- og deiliskipulag Hóla 5a er á leið í auglýsingu skv. 31. og 41. gr. skipulagslaga og hefur meðferð málsins tafist. Því taldi nefndin ekki ástæðu til þess að aftra eiganda að hefja uppbyggingu við núverandi frístundahús og gróðurhús á lóðinni enda séu þau áform í samræmi við fyrirliggjandi skipulagsáform.
28.Breiðafjarðarferjan Baldur
Málsnúmer 2011013Vakta málsnúmer
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd bauð, á 5. fundi sínum, nýjan rekstraraðila velkominn í Stykkishólms og óskaði honum velfarnaðar við rekstur ferjunnar, enda skiptir það samfélagið hér höfuðmáli að vel takist til við rekstur ferjunnar. Atvinnu- og nýsköpunarnefnd hvatti til þess að rekstur Særúnar haldi áfram í Stykkishólmi, enda verið burðarstoð í ferðaþjónustu í Stykkishólmi um áratugaskeið.
Atvinnu og nýsköpunarnefnd beindi því til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Vegagerðarinnar að nauðsynlegt sé að ríkið fjárfesti í þjónustuaðstöðu í Stykkishólmshöfn í tengslum við starfsemi ferjunnar. Slík aðstaða í Stykkishólmshöfn er nauðsynleg til að tryggja samfellu í þjónustu og myndi hún fylgja með í útboði ríkisins hverju sinni.
29.Frumvarp til laga um sýslumann
Málsnúmer 2504002Vakta málsnúmer
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd lýsti á 5. fundi sínum áhyggjum af því að störf muni með tímanum sogast á höfuðborgarsvæðið eins og sagan hefur margoft sýnt. Í ljósi þess vantraust sem ríkir í þessum efnum treystir atvinnu- og nýsköpunarnefnd sér ekki til þess að styðja við frumvarpið.
30.Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um veiðigjald
Málsnúmer 2504003Vakta málsnúmer
Atvinnumálanefnd staðfesti, á 5. fundi sínum, umsögn sveitarfélagsins.
31.Staða háls- og bakdeildar í Stykkishólmi
Málsnúmer 2504007Vakta málsnúmer
Atvinnumálanefnd lagði til við bæjarráð að haldinn verði sameiginlegur fundur atvinnumálanefndar og bæjarráðs með stjórnendum háls- og bakdeildar í Stykkishólmi þar sem farið verður yfir stöðu deildarinnar í Stykkishólmi og þá framtíðarmöguleika sem deildin hefur til eflingar og vaxtar.
32.Ríkisstörf í Stykkishólmi
Málsnúmer 2411031Vakta málsnúmer
Á 5. fundi atvinnu- og nýsköpunarnefnd komu Páll S. Bryjanrsson og Vífill Karlsson frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi til að ræða þróun starfa á vegum ríkisins í sveitarfélaginu.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd minnti enn og aftur á að meðan að íbúum hefur fjölgað umtalsvert í Stykkishólmi á síðustu 10 árum meðan hefur ríkisstörfum fækkað á sama tíma. Atvinnu- og nýsköpurnarnefnd taldi brýnt að snúa þessari þróun við án tafar. Atvinnu- og nýsköpunarnefnd vísaði að öðru leyti til fyrri ályktana um málið.
33.Stykkishólmur í sókn - Efling atvinnulífs í Stykkishólmi
Málsnúmer 2107012Vakta málsnúmer
Bjarni Jónsson, verkefnastjóri verkefnisins, kom til fundar á 5. fundi atvinnu- og nýsköpunarnefndar og gerði grein fyrir stöðu málsins. Atvinnu- og nýsköpunarnefnd þakkaði verkefnastjóra fyrir greinargóða kynningu og hvatti til þess að þekkingarnetið verði stofnað á þessu ári.
Bjarni Jónsson, verkefnastjóri verkefnisins, kemur jafnfram á fund bæjarráðs og gerir grein fyrir málinu.
34.Efling Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) í Stykkishólmi
Málsnúmer 2208031Vakta málsnúmer
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd lagði, á 5. fundi sínum, til við bæjarráð að óskað verði eftir sameiginlegum fundi atvinnu- og nýsköpunarnefndar, velferðar- og jafnréttismálanefndar og bæjarráðs með forstjóra HVE varðandi stöðu á skipulagi og mönnun heilsugæslu- og bráðaþjónustu svæðinu, þ.m.t. stöðu á ráðningu yfirlæknis til starfa við heilsugæsluna og sjúkrahúsið í Stykkishólmi.
35.Löndunarþjónusta í Stykkishólmshöfn
Málsnúmer 2504011Vakta málsnúmer
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd lagði, á 5. fundi sínum, áherslu á mikilvægi löndunarþjónustu fyrir atvinnulífið í Stykkishólmi og hvatti hlutaaðeigandi til að leita allra leiða til þess að tryggja áfram þá þjónustu í Stykkishólmshöfn.
36.Stefnumörkun opinna grænna svæða innan bæjarmarka í Stykkishólmi
Málsnúmer 2110019Vakta málsnúmer
Bæjarstjórn samþykkti á 30. fundi sínum að fela umhverfis- og nátturuverndarnefnd að halda áfram vinnu starfshópsins í samræmi við fyrirliggjandi erindisbréf.
Skipulagsnefnd gerði, á 26. fundi sínum, fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við fyrirliggjandi vinnu og lýsti yfir vilja til þess að fá til skoðunar hugmyndir til umsangar á síðari stígum. Skipulagsnend lagði áherslu á að leitað verði umsagnar Rarik áður en farið verði í gróðursetningar á svæðum þar sem finna má lagnaleiðir.
Bæjarráð staðfesti, á 29. fundi sínum, afgreiðslu skipulagsnefndar og vakti athygli umhverfis- og náttúruverndarnefnd á afgreiðslu skipulagsnefndar.
Málefnið var tekið til umfjöllunar á 5. fundi umhverfis- og náttúruverndarnefndar og lagaðar fram tillögur að áningarstöðum.
Umhverfis- og náttúruverndarnefnd samþykkir fyrirliggjandi staðsetningar áningastaða og fangar þeim áformum sem liggja fyrir.
Umhverfis- og náttúruverndarnefnd lagði til að farið verði í vinnu við að móta heilstæða tillögu að staðsetningu bekkja annars vegar í bæjarlandi og hins vegar innan þéttbýlis.
Umhverfis- og náttúruverndarnefnd vísaði að öðru leyti málinu til frekari vinnslu í nefndinni.
37.Gönguleiðir og forgangsröðun göngustíga
Málsnúmer 1904037Vakta málsnúmer
Lagðar fram tillögur að göngustígatengingum innanbæjar og göngustígum í bæjarlandinu í samræmi við fyrri umræður þar um.
Umhverfis- og náttúruverndarnefnd fagnaði, á 5. fundi sínum, þeim tillögum sem liggja fyrir og samþykkti þær.
38.Stóri plokkdagurinn 2025
Málsnúmer 2504017Vakta málsnúmer
39.Tillögur að skipulagsbreytingum hjá sveitarfélaginu
Málsnúmer 2412005Vakta málsnúmer
40.Ársreikningur 2024
Málsnúmer 2504019Vakta málsnúmer
41.Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2025-2028
Málsnúmer 2504020Vakta málsnúmer
42.Umsókn um stöðuleyfi
Málsnúmer 2504026Vakta málsnúmer
43.Auglýsing lausra lóða
Málsnúmer 2504027Vakta málsnúmer
Fundi slitið.
Formaður bar upp tillögu um að eftirfarandi mál verði tekið inn á dagskrá fundarins með afbrigðum:
- 2504025 Umsókn um lóð að Hjallatanga 13
- 2504026 Umsókn um stöðuleyfi
- 2504027 Auglýsing lausra lóða
Samþykkt samhljóða.
Er ofangreind mál eru sett inn sem mál nr. 4, 42 og 43 á dagskrá fundarins.