Fara í efni

Bæjarráð

39. fundur 04. desember 2025 kl. 14:30 - 18:43 í bæjarráðssal
Nefndarmenn
  • Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir formaður
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir aðalmaður
  • Haukur Garðarsson (HG) aðalmaður
Starfsmenn
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
  • Gyða Steinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Gyða Steinsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá

1.Umhverfis- og náttúruverndarnefnd - 6

Málsnúmer 2511012FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 6. fundar umhverfis- og náttúruverndarnefndar.
Lagt fram til kynningar.

2.Atvinnu- og nýsköpunarnefnd (SH) - 6

Málsnúmer 2511009FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 6. fundar atvinnu- og nýsköpunarnefndar.
Lagt fram til kynningar.

3.Safna- og menningarmálanefnd - 6

Málsnúmer 2511008FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 6. fundar safna- og menningarmálanefndar.
Lagt fram til kynningar.

4.Æskulýðs- og íþróttanefnd (SH) - 5

Málsnúmer 2511007FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 5. fundar æskulýðs- og íþróttanefndar.
Lagt fram til kynningar.

5.Skóla- og fræðslunefnd - 23

Málsnúmer 2511004FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 23. fundar skóla- og fræðslunefndar.
Lagt fram til kynningar.

6.Ungmennaráð - 9

Málsnúmer 2511011FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 9. fundar ungmennaráðs.
Lagt fram til kynningar.

7.Skipulagsnefnd - 37

Málsnúmer 2511014FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 37. fundar skipulagsnefndar.
Lagt fram til kynningar.

8.Reglubundið eftirlit Umhverfis- og orkustofnunar

Málsnúmer 2511011Vakta málsnúmer

Lögð fram bréf og skýrsla úr reglubundnu eftirliti Umhverfis- og orkustofnunar á urðunarstað sveitarfélags Stykkishólms við Ögur, sem fram fór þann 29. ágúst 2025.
Lagt fram til kynningar.

9.Norska húsið - Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla

Málsnúmer 2511014Vakta málsnúmer

Lögð fram ársskýrsla 2024 fyrir Norska húsið - Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla.
Lagt fram til kynningar.

10.Ársskýrsla Amtsbókasafnsins í Stykkishólmi 2023

Málsnúmer 2411012Vakta málsnúmer

Ársskýrsla Amtsbókasafnsins lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Íris Huld Sigurbjörnsdóttir, Högni Högnason og Kristján Gunnlaugsson mættu á fundinn fyrir hönd Hesteigendafélags Stykkishólms.

11.Bygging á félagsaðstöðu við Fákaborg 1

Málsnúmer 2511010Vakta málsnúmer

Lagt fram á ný erindi frá Hesteigendafélagi Stykkishólms. Bæjarráð óskaði á 38. fundi sínum eftir að fá fulltrúa HEFST á fund ráðsins til að ræða fyrirliggjandi hugmyndir.



Fulltrúar HEFST koma til fundar við bæjarráð.
Bæjarráð þakkar fulltrúum Hesteigendafélags Stykkishólms fyrir upplýsandi og góða kynningu á fyrirhugaðri uppbyggingu félagsaðstöðu við Fákaborg 1. Bæjarráð tekur jákvætt í framtíðarsýn félagsins og undir þær metnaðarfullu hugmyndir sem fram komu um eflingu aðstöðu fyrir hestaíþróttir í sveitarfélaginu.

Bæjarráð vill hrósa félaginu fyrir vandaðan undirbúning málsins, en fyrir liggja ítarleg gögn sem meðal annars fela í sér greinargerð um starfsemi og fjárhag félagsins, kostnaðaráætlun verkefnisins og drög að teikningum. Gögnin gefa greinargóða mynd af verkefninu, markmiðum þess og mögulegum samfélagsávinningi.

Bæjarráð lýsir yfir vilja til að eiga áframhaldandi samtal við félagið um mögulegt samstarf og felur bæjarstjóra að funda með félaginu um næstu skref. Bæjarstjóra er jafnframt falið að leggja fram drög að mögulegu samkomulagi og/eða valkostum í framhaldi af þeim viðræðum, til frekari umfjöllunar í bæjarráði.

Bæjarráð vísar málinu jafnframt til vinnu við fjárhagsáætlun 2026 eða til vinnu við fyrsta viðauka á næsta ári, eftir því sem við á.
Gestirnir véku af fundi.

12.Húsnæðisáætlun sveitarfélagsins

Málsnúmer 2311014Vakta málsnúmer

Lögð fram húsnæðisáætlun sveitarfélagsins í tengslum við vinnu við gerð áætlunar fyrir árið 2026. Á 38. fundi vísaði bæjarráð málinu til frekari vinnslu í bæjarráði.
Bæjarráð vísar málinu til frekari vinnslu í bæjarráði.

13.Sjálfbærnistefna Snæfellsness

Málsnúmer 2402022Vakta málsnúmer

Lögð fram til samþykktar sjálfbærnistefna Snæfellsness ásamt aðgerðaráætlun og tengdum gögnum.



Umhverfis- og náttúruverndarnefnd tók framlagða sjálfbærnistefnu Snæfellsness og aðgerðaráætlun til umfjöllunar á 6. fundi sínum og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja sjálfbærnistefnuna og eðli aðgerðanna.
Bæjarráð samþykkir sjálfbærnistefnuna og eðli aðgerðanna og vísar málinu til staðfestingar í bæjarstjórn.

14.Ágangur búfjár - Kljá

Málsnúmer 2408009Vakta málsnúmer

Málefni ágangsbúfjár í sveitarfélaginu tekin til umræðu á ný.



Bæjarráð staðfesti, á 25. fundi sínum, málsmeðferð og viðbrögð sveitarfélagsins vegna málsins og frestaði afgreiðslu þar sem umbeðnar upplýsingar láu ekki fyrir.
Bæjarráð samþykkir tillögu að svari og vísar afgreiðslu sinni til staðfestingar í bæjarstjórn.

15.Ágangur búfjár - Hrísakot og Hrísafell

Málsnúmer 2408007Vakta málsnúmer

Málefni ágangsbúfjár í sveitarfélaginu tekin til umræðu á ný.



Bæjarráð staðfesti, á 25. fundi sínum, málsmeðferð og viðbrögð sveitarfélagsins vegna málsins og frestaði afgreiðslu þar sem umbeðnar upplýsingar láu ekki fyrir.
Bæjarráð samþykkir tillögu að svari og vísar afgreiðslu sinni til staðfestingar í bæjarstjórn.

16.Daddavík 3

Málsnúmer 2502026Vakta málsnúmer

Lagður fram lóðarleigusamningur, ásamt lóðarblaði, fyrir Daddavík 3.
Bæjarráð samþykkir samninginn og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

17.Bauluvík 1

Málsnúmer 2511012Vakta málsnúmer

Lagður fram lóðarleigusamningur, ásamt lóðarblaði, fyrir Bauluvík 1.
Bæjarráð samþykkir samninginn með fyrirvara um að skilyrði fyrir undirritun séu uppfyllt og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

18.Sjávarútvegsstefna og skelbætur

Málsnúmer 2312008Vakta málsnúmer

Á 6. fundi atvinnu- og nýsköpunarnefndar ítrekaði nefndin fyrri afstöðu sína og bæjarstjórnar um að skelbætur séu ein af grunnstoðum atvinnulífs og byggðafestu í Stykkishólmi og verði áfram veittar fyrirtækjum við Breiðafjörð og að handhafar skelbóta fái í stað bótanna varanlegan nýtingarrétt í aflahlutdeild sem verði án framsalsréttar og krafa um veiðar og vinnslu bundin við þá staði við Breiðafjörð þar sem veiðarnar fóru fram á sínum tíma. Nefndin hafnaði alfarið öllum áformum um að skelbætur verði skertar eða lagðar niður, enda væri slíkt verulega skaðlegt fyrir atvinnulíf sveitarfélagsins, tekjur þess og samfélagið í heild.



Nefndin lýsti alvarlegum áhyggjum af því að reglugerð um skelbætur hafði enn ekki verið gefin út og taldi óásættanlegt að málið hafi dregist svo lengi. Þá benti nefndin á að ráðherra hafi ekki átt samráð við sveitarfélagið þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um, þótt um sé að ræða eitt mikilvægasta byggðamál sem snertir sveitarfélagið, þar sem tugir starfa eru í húfi.



Nefndin áréttaði að þingmenn kjördæmisins, og sérstaklega ráðherra sem jafnframt er þingmaður Norðvesturkjördæmis, verði að standa vörð um hagsmuni samfélagsins í Stykkishólmi og láta sig málið varða. Ef ætlunin er, eins og framganga ríkisins gefur sterklega til kynna, að fella skelbæturnar niður, verður ráðherra að horfast í augu við alvarleika þeirrar ákvörðunar. Það er óhugsandi og í raun algjörlega óásættanlegt að slík aðgerð yrði framkvæmd á ráðherravakt þingmanns kjördæmisins.



Nefndin skoraði á innviðaráðherra, sem fer með málaflokkinn, og þingmenn kjördæmisins að bregðast tafarlaust við, tryggja útgáfu reglugerðar án frekari tafa og vinna að farsælli og sanngjarnri niðurstöðu sem tryggir að skelbætur haldist áfram í Stykkishólmi og rekstraröryggi fyrirtækja og samfélags verði ekki stefnt í hættu.



Bæjarstjórn tók á 42. fundi sínum undir með atvinnu- og nýsköpunarnefnd.



Lögð er nú fram ný reglugerð sem gefin var út 28. nóvember sl. ásamt tengdum gögnum.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi ályktun varðandi skelbætur og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.

19.Viti í Víkurhverfi

Málsnúmer 2401036Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga Gunnlaugs Lárussonar um endurbyggingu vita sem stóð ofan við Daddavík til þess að varðveita sögu hans og fólksins sem annaðist hann.



Safna- og menningarmálanefnd þakkaði á 6. fundi sínum fyrir ítarlegt og áhugavert erindi og tók undir mikilvægi þess að varðveita sögu vitans og þeirra sem sinntu honum.



Umhverfis- og náttúruverndarnefnd þakkaði einnig á 6. fundi sínum fyrir framlagða tillögu og tók undir með safna- og menningarmálanefnd. Nefndin lýsti yfir áhuga á að verkefnið verði tekið til frekari skoðunar, meðal annars með tilliti til menningarsögulegs gildis, mögulegra



Æskulýðs- og íþróttanefnd lýsti, á 5. fundi sínum, yfir jákvæðni í garð verkefnisins og hvatti til þess að sett verði upp fræðsluskilti við gönguleiðir þar sem umræddir vitar voru staðsettir.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslur umhverfis- og náttúruverndarnefndar, safna- og menningarmálanefndar og æskulýðs- og íþróttanefndar.

20.Stefnumörkun opinna grænna svæða innan bæjarmarka í Stykkishólmi

Málsnúmer 2110019Vakta málsnúmer

Lagt fram erindisbréf starfshóps um stefnumörkun opinna grænna svæða innan bæjarmarka í Stykkishólmi.



Bæjarstjórn samþykkti á 30. fundi sínum að fela umhverfis- og nátturuverndarnefnd að halda áfram vinnu starfshópsins í samræmi við fyrirliggjandi erindisbréf.



Skipulagsnefnd gerði, á 26. fundi sínum, fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við fyrirliggjandi vinnu og lýsti yfir vilja til þess að fá til skoðunar hugmyndir til umsangar á síðari stígum. Skipulagsnend lagði áherslu á að leitað verði umsagnar Rarik áður en farið verði í gróðursetningar á svæðum þar sem finna má lagnaleiðir.



Bæjarráð staðfesti, á 29. fundi sínum, afgreiðslu skipulagsnefndar og vakti athygli umhverfis- og náttúruverndarnefnd á afgreiðslu skipulagsnefndar.



Málefnið var tekið til umfjöllunar á 5. fundi umhverfis- og náttúruverndarnefndar, og lagaðar fram tillögur að áningarstöðum.



Umhverfis- og náttúruverndarnefnd samþykkti á 5. fundi sínum fyrirliggjandi staðsetningar áningastaða og fangar þeim áformum sem liggja fyrir. Umhverfis- og náttúruverndarnefnd lagði jafnframt til á 5. fundi sínum að farið verði í vinnu við að móta heilstæða tillögu að staðsetningu bekkja annars vegar í bæjarlandi og hins vegar innan þéttbýlis. Umhverfis- og náttúruverndarnefnd vísar að öðru leyti málinu til frekari vinnslu í nefndinni.



Bæjarráð staðfesti á 32. fundi sínum afgreiðslu umhverfis- og náttúruverndarnefndar.



Bæjarstjórn staðfesti á 35. undi sínum jafnframt afgreiðslur umhverfis- og náttúruverndarnefndar og bæjarráðs.



Málið var tekið fyrir að nýju í umhverfis- og náttúruverndarnefnd á 6. fundi nefndarinnar.



Umhverfis- og náttúruverndarnefnd ítrekaði þá fyrri ákvarðanir sínar og samþykktir varðandi staðsetningu áningastaða og vinnu við heildstæða tillögu um staðsetningu bekkja í sveitarfélaginu.



Nefndin fagnaði þeim gróðursetningum sem farið hafa fram á undanförnum árum í Stykkishólmi og taldi þær mikilvægt framlag til að styrkja græn svæði sveitarfélagsins. Gróðursetningin mun til framtíðar hafa jákvæð áhrif, meðal annars mun hún koma til með að skapa skjólgott og vistvænt umhverfi, sem eykur gæði útivistar og samveru í Stykkishólmi.



Umhverfis- og náttúruverndarnefnd lagði jafnframt ríka áherslu á að verkefni er lúta að gróðursetningu og umhirðu trjábeða verði skýrlega skilgreind í verkefnum áhaldahúss yfir sumartímann. Er það mat nefndarinnar að mikilvægt sé að ábyrgð á þessari vinnu verði sett á einn tilgreindan starfsmann til að tryggja samræmda framkvæmd og góða umhirðu þeirrar verulegu fjárfestingar sem sveitarfélagið hefur lagt í síðustu ár.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis- og náttúruverndarnefndar og tekur mikilvægi þess að vinna áfram að stefnumörkun opinna grænna svæða, þar með talið staðsetningu áningastaða og mótun tillögu um staðsetningu bekkja. Bæjarráð tekur jafnframt undir áherslur nefndarinnar um að skilgreina ábyrgð á gróðursetningu og umhirðu innan áhaldahúss og felur bæjarstjóra að vinna að því verkefni í samvinnu við verkstjóra áhaldahúss.

21.Gönguleiðir og forgangsröðun göngustíga

Málsnúmer 1904037Vakta málsnúmer

Lagðar fram tillögur að göngustígatengingum innanbæjar og göngustígum í bæjarlandinu í samræmi við fyrri umræður þar um ásamt vinnugögnum vegna hönnunar á gönguleiðum í sveitarfélaginu.



Við gerð fjárhagsáætlunar haustið 2024 vegna áætlunar 2025 lagði umhverfis- og náttúruverndarnefnd árherslu á áframhaldandi uppbyggingu á göngustígum. Nefndin lagði sérstaka áherslu á göngutengingu við strandlengju Kirkjustígs og Daddavíkur áfram að Grensás, tengingu Sundabakka við Reitarveg og áfram holtið og tengingu í enda Hjallatanga niður að reiðveg.



Umhverfis- og náttúruverndarnefnd fagnaði, á 5. fundi sínum, þeim tillögum sem liggja fyrir og samþykkti þær.



Bæjarráð staðfesti, á 32. fundi sínum, afgreiðslu umhverfis- og náttúruverndarnefndar og fól skipulagsfulltrúa að vinna að tillögu að mótun stefnu um staðsetningu bekkja í sveitarfélaginu í heild sinni annars vegar og hinsvegar í þéttbýlinu.



Bæjarstjórn staðfesti á 35. fundi sínum afgreiðslur umhverfis- og náttúruverndarnefndar og bæjarráðs.



Málið tekið fyrir að nýju á 6. fundi umhverfis- og náttúruverndarnefndar. Á fundinum ítrekaði nefndin fyrri afgreiðslur sínar um forgangsröðun og uppbyggingu göngustíga og fagnaði þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað í sveitarfélaginu á síðustu árum. Nefndin styður áframhaldandi uppbyggingu göngustíga í þéttbýli og í bæjarlandinu.



Umhverfis- og náttúrverndarnefnd benti jafnframt á mikilvægi þess að koma upp góðri lýsingu frá Stykkishólmsvegi að skógræktinni í Grensás.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis- og náttúruverndarnefndar um forgangsröðun og áframhaldandi uppbyggingu göngustíga í sveitarfélaginu. Bæjarráð tekur undir mikilvægi helstu tenginga og áréttar sérstaklega þörf fyrir bætta lýsingu við skógræktina í Grensás.

22.Sögu og menningararfur í Stykkishólmi - Menningartengd ferðaþjónusta

Málsnúmer 1905057Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn um forsögu verkefnisins og hugmyndir um eflingu átthagafræðslu, sýnileika sögunnar og menningartengdrar ferðaþjónustu í Stykkishólmi, sem hafa verið til umfjöllunar í safna- og menningarmálanefnd frá árinu 2019. Á þeim tíma hefur verið lögð áhersla á merkingar, fræðsluefni, söguskilti, gönguleiðir og samstarf við Minjastofnun, auk þess að virkja íbúa, félagasamtök og fyrirtæki til þátttöku.



Í kjölfarið hlaut sveitarfélagið styrk á árunum 2021-2023 til heildarhönnunar gönguleiða og áningastaða á Búðanesi og Hjalltanga, þar sem unnið er með menningarminjar svæðisins og sögu upphafs verslunar í Stykkishólmi. Verkefnið hefur verið þróað í nánu samstarfi við Minjastofnun Íslands.



Fyrir 6. fund safna- og menningarmálanefndar voru lögð fram endanleg gögn varðandi hönnun söguleiðar og áningastaða á Búðanesi og Hjalltanga, auk hugmynda um frekari fræðslu, skiltagerð og uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu í sveitarfélaginu.



Safna- og menningarmálanefnd þakkaði á 6. fundi sínum fyrir framlagðar upplýsingar og kynningu á hönnun söguleiðar og áningastaða á Búðanesi og Hjalltanga. Nefndin tók jákvætt í framvindu verkefnisins og telur það mikilvægt framlag til eflingar átthagafræðslu, sýnileika sögunnar og menningartengdrar ferðaþjónustu í sveitarfélaginu. Nefndin óskaði eftir að unnið verði áfram að verkefninu í samræmi við framlagðar hugmyndir í nánu samstarfi við Minjastofnun. Þá óskaði nefndin eftir að lagðar verði fram frekari upplýsingar um áætlaðan kostnað og framkvæmdaáætlun við áframhaldandi uppbyggingu.



Í ljósi mikilvægi verkefnisins fyrir menningarsögulegar minjar taldi nefndin jafnframt mikilvægt að næsti áfangi, þ.e. uppbygging söguleiðar og áningastaða, verði settur á verkefnaáætlun Landsáætlunar um vernd og uppbyggingu innviða fyrir náttúru og menningarsögulegar minjar.



Umhverfis- og náttúruverndarnefnd tók, á 6. fundi sínum, undir með safna- og menningarmálanefnd. Umhverfis- og náttúruverndarnefnd þakkaði jafnframt fyrir framlagða kynningu á hönnun söguleiðar og áningastaða á Búðanesi og Hjalltanga. Nefndin tók jákvætt í framvindu verkefnisins og taldi það mikilvægt framlag til eflingar átthagafræðslu og sýnileika sögunnar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslur safna- og menningarmálanefndar og umhverfis- og náttúruverndarnefndar og tekur undir mikilvægi verkefnisins um söguleið og áningastaði á Búðanesi og Hjallatanga.

23.Innleiðing á skráningu á grunnfærni nemenda

Málsnúmer 2509027Vakta málsnúmer

Tillögur starfshóps um fyrirkomulag úthlutunar stoðþjónustulagðar lagðar fram til formlegrar afgreiðslu.



Skóla- og fræðslunefnd samþykkir, á 23. fundi sínum, áframhaldandi vinnu og tillögur um fyrirkomulag úthlutunar á stoðþjónustu til barna í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir tillögur Ásgarðs og starfshópsins um fyrirkomulag úthlutunar stoðþjónustu, þ.m.t. verklag og öll fylgigögn, og vísar málinu til staðfestingar í bæjarstjórn.

24.Laxártorg við Aðalgötu

Málsnúmer 2509009Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að hönnun Laxártorgs við Aðalgötu í Stykkishólmi. Bæjarráð tók jákvætt í framlagða hugmynd á 26. fundi sínum og vísaði málinu til umsagnar skipulagsnefndar.



Skipulagsnefnd fjallaði um tillöguna á 34. fundi sínum, tók jákvætt í hana og lagði áherslu á að frágangi torgsins yrði sinnt á vandaðan og snyrtilegan hátt.



Safna- og menningarmálanefnd tók, á 6. fundi sínum, jákvætt í fyrirliggjandi hugmyndir um Laxártorg við Aðalgötu. Nefndin lagði áherslu á að frágangur torgsins endurspegli sögulegt yfirbragð miðbæjar Stykkishólms. Í því samhengi taldi nefndin æskilegt að gert verði ráð fyrir grjóthleðslu í hefðbundnum stíl með grasi á toppnum, líkt og einkennt hefur manngerðar hleðslur í elsta hluta bæjarins. Slík nálgun stuðlar að því að torgið verði bæði snyrtilega útfært og í sátt við menningararf og sögu Stykkishólms.



Bæjarráð vísaði málinu á 37. fundi sínum til frekari vinnslu í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins.
Bæjarráð tekur undir áherslur nefnda um að frágangur svæðisins endurspegli sögulegt yfirbragð miðbæjar Stykkishólms.

Bæjarráð felur bæjarstjóra í samvinnu við skipulagsfulltrúa að vinna áfram að málinu í samræmi við fyrirliggjandi tillögur og þær ábendingar sem fram komu á fundum nefndanna, þar á meðal varðandi grjóthleðslu í hefðbundnum stíl. Tímasetningu á framkvæmdum er vísað til við vinnu við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.

25.Samkomuhúsið í Stykkishólmi við Aðalgötu 6

Málsnúmer 2006020Vakta málsnúmer

Málefni samkomuhússins við Aðalgötu 6 tekin voru tekin til umræðu á 6. fundi safna- og menningarmálanefndar.



Safna- og menningarmálanefnd þakkaði fyrir framlagðar upplýsingar, þar á meðal endurgerðaráætlun Glámu-Kím frá 2014 og minnisblað bæjarstjóra um stöðu, ástand og mögulegar leiðir varðandi framtíð Samkomuhússins við Aðalgötu 6.



Nefndin tók undir þau sjónarmið sem fram koma í báðum gögnum um að húsnæðið sé mikilvægar menningarminjar, lykilhluti bæjarmyndarinnar og hafi ríka sögulega og félagslega þýðingu fyrir Hólmara. Nefndin taldi jafnframt ljóst af framlögðum gögnum að húsið þarfnist gagngerra endurbóta á næstu árum til að tryggja varðveislu þess og möguleika á áframhaldandi notkun.



Nefndin lagði áherslu á að unnið verði áfram að undirbúningi styrkumsókna til húsafriðunarsjóðs og annarra viðeigandi sjóða, í samræmi við hvatningu Minjastofnunar, og að uppfærðar kostnaðaráætlanir og fjármögnunarleiðir verði unnin á grundvelli fyrirliggjandi teikninga og ástandsgreininga.



Með vísan til þeirra valkosta sem raktir eru í fyrirliggjandi gögnum taldi nefndin jafnframt mikilvægt að opnað verði á þann möguleika að selja eða framselja húsið, verði ekki unnt að tryggja fullnægjandi fjármögnun til endurbóta á næstu árum. Slíkur valkostur kæmi þó einungis til greina með þeim skilyrðum og/eða kvöðum að endurgerð fari fram í samræmi við fyrirliggjandi hönnunargögn og að allar helstu breytingar verði háðar samþykki sveitarfélagsins. Þá taldi nefndin jafnframt mikilvægt að framtíðarnotkun hússins verði höfð að leiðarljósi við sölu húsnæðisins þannig að tryggt verði, eftir atvikum með kvöðum, að húsnæðið geti áfram nýst að einhverju marki undir menningarstarfsemi. Í þessu sambandi er mikilvægt að horfa til annarra sambærilegra fordæma sem liggja fyrir annars staðar á landinu þar sem tekist hefur vel til.



Safna- og menningarmálanefnd felur formanni nefndarinnar umboð að afla framangreindra gagna, kostnaðaráætlana, sambærilegra fordæma og mat á valkostum fyrir áframhaldandi umræðu nefndarinnar um málið. Í framhaldinu væri mikilvægt að ræða mögulega valkosti á opnum íbúafundi. Stefnt verði að fundi í nefndinni fyrir lok febrúar til þess að ræða næstu skref.
Bæjarráð þakkar safna- og menningarmálanefnd fyrir yfirgripsmikla umfjöllun um framtíð Samkomuhússins við Aðalgötu 6. Bæjarráð tekur undir að húsið sé mikilvægar menningarminjar og hluti af bæjarmynd og sögu Stykkishólms og að fyrirliggjandi gögn sýni að endurbætur á húsinæðinu séu nauðsynlegar á næstu árum.

Bæjarráð staðfstir að öðru leyti afgreiðslu nefndarinnar.

26.Framtíðaráform Vatnasafns

Málsnúmer 2010035Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn varðandi framtíðarform og þróun Vatnasafns. Jafnframt er lagt fram minnisblað bæjarstjóra, unnið að beiðni formanns nefndarinnar, um fund bæjarstjóra og forsætisráðherra vegna málsins, ásamt öðrum minnisblöðum og gögnum sem tengjast málinu.



Safna- og menningarmálanefnd lýsti, á 4. fundi sínum, skýrum vilja til að ná samningi um framtíð Vatnasafns í Stykkishólmi. Í því samhengi lagði nefndin ríka áherslu á mikilvægi þess að sveitarfélagið fái viðeigandi stuðning til uppbyggingar menningarinnviða í samræmi við fyrirliggjandi gögn, enda sé slíkur stuðningur lykilatriði í ljósi umfangsmikilla og langtímasamninga sem nú liggja fyrir um rekstur safnsins.



Nefndin tók jafnframt undir efni minnisblaðs bæjarstjóra, minnisblað verkefnastjóra menningarmála á Vesturlandi og fundargerð vinnuhóps um framtíðarfyrirkomulag safnsins.



Bæjarráð samþykkti á 24. fundi sínum afgreiðslu nefndarinnar og vísaði málinu áfram til frekari vinnu í vinnuhópi um framtíð Vatnasafns.



Safna- og menningarmálanefnd þakkaði, á 6. fundi sínum, fyrir framlagðar upplýsingar, þar á meðal minnisblað bæjarstjóra, drög að nýjum samningi um Vatnasafnið og minnisblað verkefnastjóra menningarmála á Vesturlandi. Nefndin taldi að framangreind gögn varpi skýru ljósi á bæði menningarlegt gildi Vatnasafnsins og þau umfangsmiklu fjárhagslegu og rekstrarlegu verkefni sem tengjast framtíð safnsins.



Nefndin ítrekaði fyrri afstöðu sína, líkt og fram kom á 4. fundi nefndarinnar, um að mikilvægt sé að ná samningi um framtíð Vatnasafnsins í Stykkishólmi. Í því samhengi lagði nefndin þunga áherslu á að sveitarfélagið fái viðeigandi stuðning til uppbyggingar menningarinnviða og til að mæta þeim langtímasamningsskuldbindingum sem fram koma í nýjum samningsdrögum.



Nefndin tók undir þau sjónarmið sem fram koma í minnisblaði bæjarstjóra um að utanaðkomandi fjármögnun sé nauðsynleg forsenda þess að unnt sé að gera bindandi samning til lengri tíma. Nefndin tók jafnframt undir að tækifæri til að efla menningartengda ferðaþjónustu og samfélagslega virkni safnsins séu veruleg og vægi þess innan samtímalistar er ómetanlegt, en að viðhaldsþörf húseignarinnar og listaverksins kalli á aðkomu ríkisins, líkt og rakið er í framlögðum gögnum.



Safna- og menningarmálanefnd hvatti til þess að vinnuhópur um framtíð Vatnasafns fundi með annars vegar fulltrúum ríkisins og hins vegar fulltrúum listamannsins til að fara yfir stöðu málsins. Með vísan til framangreinds samþykkir nefndin að vísa málinu áfram til frekari vinnu í vinnuhópi um framtíð Vatnasafns og óskaði eftir að næstu skref í samningsgerð verði lögð fyrir nefndina þegar þau liggja fyrir.
Bæjarráð þakkar fyrir framlagðar upplýsingar og ítarlega umfjöllun safna- og menningarmálanefndar um framtíðaráform Vatnasafnsins. Bæjarráð tekur undir afstöðu nefndarinnar um að utanaðkomandi fjármögnun sé lykilforsenda þess að unnt sé að gera langtímasamning um rekstur safnsins. Bæjarráð staðfestir að öðru leyti afgreiðslu nefndarinnar.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu áfram til áframhaldandi vinnu starfshóps um framtíð Vatnasafnsins og felur bæjarstjóra jafnframt að fylgja málinu eftir gagnvart ríkinu. Bæjarráð óskar einnig eftir að starfshópurinn leggi fram tillögur um næstu skref í samningsgerð og aðkomu ríkisins þegar þær liggja fyrir.

27.Samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038

Málsnúmer 2306027Vakta málsnúmer

Í drögum að samgönguáætlun 2024-2038 og fimm ára aðgerðaáætlun 2024-2028 var gert ráð fyrir lagfæringum á tilteknum köflum Snæfellsnesvegar 54 um Skógarströnd. Uppfærð drög að samgönguáætlun eru væntanleg á haustþingi 2025 og brýnt að áætlunin endurspegli raunverulegan forgang vegarins.



Skógarstrandarvegur er stofnvegur samkvæmt skilgreiningu samgönguáætlunar og hluti grunnnets samgöngukerfis landsins. Vegurinn tengir Snæfellsnes við Dalabyggð og áfram við Vestfirði og Norðurland og skiptir lykilmáli fyrir búsetu, atvinnulíf, þjónustu og ferðaþjónustu á svæðinu. Núverandi ástand vegarins, sem er enn að stórum hluta malarvegur á láglendi, hamlar verulega framþróun og samræmist ekki markmiðum samgönguáætlunar um forgang grunnnetsins.



Bæjarstjórn Stykkishólms, ásamt fastanefndum sveitarfélagsins, hefur ítrekað áréttað mikilvægi Skógarstrandarvegar, líkt og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og nágrannasveitarfélög. Sveitarfélagið fagnar því að formlegur undirbúningur að þverun Álftafjarðar hafi hafist á árinu 2023 og leggur áherslu á faglegar rannsóknir á umhverfisáhrifum valkosta. Jafnframt hefur verið kallað eftir umferðarteljurum á svæðinu til að styðja við þjónustu- og forgangsröðun á grunni raunumferðar.



Með hliðsjón af framangreindu er brýnt að ný samgönguáætlun endurspegli mikilvægi vegarins: að færa skuli framkvæmdir á vegi 54 um Skógarströnd framar í áætlun, tryggja fullfjármögnun, þar á meðal fyrir þverun Álftafjarðar, og hraða framkvæmdum í samræmi við markmið um uppbyggingu grunnnets samgangna.



Lagðar er fram hugmyndir að veglínu og þverun Álftafjarðar, dags. 5. febrúar 2024, ásamt öðrum gögnum.



Skipulagsnefnd tók á 34. fundi sínum undir fyrri ályktanir sveitarfélagsins, bæjarstjórnar og bæjarráðs um mikilvægi áframhaldandi uppbyggingar Snæfellsnesvegar 54 um Skógarströnd og lagði áherslu á að vegurinn sé í forgangi við ráðstöfun fjármuna á samgönguáætlun. Skipulagsnefnd lagði áherslu á að umferðaröryggi verði haft að leiðarljósi við endanlega ákvörðun um legu vegarins, ný veglína verði samþætt aðalskipulagi sveitarfélaganna og unnin í nánu samráði við Vegagerðina og nærliggjandi sveitarfélög og að verkefninu verði tryggt fjármagn til undirbúnings og framkvæmdar. Skipulagsnefnd hvatti Dalabyggð og Vegagerðina til þess að skoða færslu á veglínu austan Álftafjarðar þannig að hún fari með ströndinni og þveri ósa Langadalsár og Setbergsár, en með því væri vegurinn með beinni veglínu, snjóléttari og einungis þyrfti að byggja eina brú í stað tveggja ef halda ætti núverandi veglínu.



Bæjarráð óskaði, á 37. fundi sínum, eftir upplýsingum frá Vegagerðinni um þær tillögur sem liggja nú fyrir varðandi þverun Álftafjarðar. Bæjarráð staðfesti að öðru leyti afgreiðslu skipulagsnefndar og lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi ályktun varðandi Skógarstrandarveg.



Bæjarstjórn Stykkishólms ítrekaði, á 41. fundi sínum, mikilvægi þess að uppbygging Snæfellsnesvegar 54 um Skógarströnd verði sett í forgang í nýrri samgönguáætlun. Skógarstrandarvegur er stofnvegur samkvæmt skilgreiningu samgönguáætlunar og hluti grunnnets samgöngukerfis landsins. Vegurinn tengir Snæfellsnes við Dalabyggð og áfram við Vestfirði og Norðurland og er lykilþáttur í samgöngum, búsetu, þjónustu, atvinnulífi og ferðaþjónustu á svæðinu. Núverandi ástand vegarins, sem er enn að stórum hluta malarvegur á láglendi, er óviðunandi og hamlar verulega framþróun svæðisins, auk þess sem það samræmist ekki markmiðum samgönguáætlunar um forgang grunnnetsins hvað varðar uppbyggingu og fjármögnun.



Bæjarstjórn tók undir fyrirliggjandi afgreiðslu 34. fundar skipulagsnefndar og styður þá áherslu að umferðaröryggi verði haft að leiðarljósi við endanlega ákvörðun um legu vegarins og að ný veglína verði samþætt endurskoðuðu aðalskipulagi sveitarfélagsins í nánu samráði við Vegagerðina og nærliggjandi sveitarfélög.



Með hliðsjón af framangreindu krafðist bæjarstjórn þess að framkvæmdir á Skógarstrandarvegi, þar á meðal þverun Álftafjarðar, verði fullfjármögnuð í samgönguáætlun. Tryggja þarf fjármagn bæði til undirbúnings og framkvæmdar og hraða uppbyggingu vegarins í samræmi við markmið samgönguáætlunar um uppbyggingu grunnnets samgangna á Íslandi. Bæjarstjórn lagði jafnframt áherslu á að ljúka uppbyggingu og lagningu bundins slitlags á veginum eigi síðar en árið 2029, að undanskildri veglínu sem snýr að þverun og/eða brú yfir Álftafjörð, og að framkvæmdum við þverun eða brú yfir Álftafjörð verði lokið fyrir árið 2032. Í því sambandi þarf að ljúka uppbyggingu og lagningu bundins slitlags frá Stykkishólmsvegi a.m.k. að Svelgsá á árinu 2026 eða að þeim kafla sem ný veglína tekur við. Minnt er á að uppbygging á umræddum kafla innan sveitarfélagsins var áherslumál í sameiningu Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar á árinu 2022.



Bæjarstjórn fól bæjarstjóra að koma ályktun þessari á framfæri við innviðaráðherra, umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, Vegagerðina, þingmenn Norðvesturkjördæmis, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og Dalabyggð og fylgja málinu eftir fyrir hönd sveitarfélagsins.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd tók undir fyrri ályktanir skipulagsnefndar, bæjarráðs og bæjarstjórnar. Þá ítrekaði nefndin enn og aftur fyrri ályktanir nefndarinnar um mikilvægi þess að framkvæmdir við Snæfellsnesveg 54 um Skógarströnd verði settar í forgang í nýrri samgönguáætlun og leggur í þeim efnum áherslu á að tryggt verði fjármagn til undirbúnings og framkvæmda, þ.m.t. þverunar Álftafjarðar, að hraðað verði uppbyggingu bundins slitlags og að endanleg veglína verði samþætt aðalskipulagi og unnin í nánu samráði við Vegagerðina og Dalabyggð. Áherslur þessar þurfa að endurspeglast í nýrri samgönguáætlun sem stefnt er að komi til afgreiðslu Alþingis á árinu 2026.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd lagði jafnframt þunga áherslu á, þar sem afgreiðslu samgönguáætlunar hefur verið frestað til ársins 2026, að Alþingi samþykki fjárheimildir fyrir lok árs 2025 til handa Vegagerðinni vegna Skógarstrandarvegar. Slíkt er nauðsynlegt til þess að unnt verði að hefja áframhaldandi framkvæmdir við Skógarstrandarveg á árinu 2026, með sérstakri áherslu á uppbyggingu vegarins innan sveitarfélagsins í samræmi við fyrirliggjandi áform.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu Atvinnu- og nýsköpunarnefndar og vísar málinu til bæjarstjórnar.

28.Innviðagjald á skemmtiferðaskip

Málsnúmer 2411027Vakta málsnúmer

Undir lok síðasta árs voru samþykktar lagabreytingar á Alþingi sem gerir m.a. ráð fyrir að leggja 2.500 króna innviðagjald á hvern farþega skemmtiferðaskipa fyrir hvern sólarhring sem siglt er við Íslands strendur. Ljóst er að álagt innviðagjald hefur þegar leitt af sér færri komur skemmtiferðaskipa til landsins og þá sérstaklega minni skipanna, sem hafa sótt heim minni byggðir á borð við Stykkishólm. Komur skemmtiferðaskipa til Stykkishólms hafa hríðlækkar í kjölfar lagabreytingarinnar sem hefur sett sjálfbærni Stykkishólmshafnar í hættu sem er alvarleg staða fyrir atvinnulíf í Stykkishólmi.







Atvinnu- og nýsköpunarnefnd lagðist, á 4. fundi sínum, gegn þeim álögum sem boðuð eru í frumvarpinu, enda fyrirvarinn of skammur fyrir slíka gjaldtöku. Nefndin taldi að ef umrædd gjöld yrðu að veruleika væru verulegar líkur á stoðunum verði kippt undan lífæð Stykkishólmshafnar með tilheyrandi þjónustuskerðingu. Atvinnu- og nýsköpunarnefnd taldi nauðsynlegt að slík gjöld skili sér til nærsamfélaganna, þ.e. sveitarfélaganna.



Málið tekið til umræðu að nýju í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir varðandi komur skemmtiferðaskipa í kjölfar lögfestingar innviðagajalds á skemmtiferðarskipum.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd tók málið til umræðu, á 6. fundi sínum, í ljósi nýrra gagna. Ljóst er að neikvæð áhrif innviðagjaldsins eru staðfest og umtalsverð. Nefndin kallaði eftir því að þingmenn axli pólitíska ábyrgð á málinu, bæði þeir sem stóðu að samþykkt gjaldsins og þeir sem hingað til hafa ekki náð fram nauðsynlegum breytingum á Alþingi. Ábyrgðin er mikil í ljósi þeirra alvarlegu áhrifa sem gjaldið hefur nú þegar haft á atvinnulíf í Stykkishólmi, líkt og nefndin varaði við á síðasta ári.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd staðfesti að öðru leyti fyrri afstöðu sína og afstöðu sveitarfélagsins um að innviðagjaldið hafi verulega neikvæð áhrif á komur skemmtiferðaskipa og þar með á sjálfbærni hafnarinnar og atvinnulíf í sveitarfélaginu. Nefndin krefst þess að gjaldið verði endurskoðað án tafar.



Nefndin taldi jafnframt að verði slík gjaldtaka áfram viðhöfð þá eigi hún að renna til viðkomandi sveitarfélaga en ekki ríkisins. Það eru íbúar og innviðir þeirra svæða sem skipin koma til sem bera hitann og þungann af umferð skemmtiferðaskipa og því er réttlátt að tekjur fylgi þeim skyldum og þeirri ábyrgð.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.

29.Gjaldtaka bílastæða á hafnarsvæði

Málsnúmer 1909018Vakta málsnúmer

Lögð er fram tillaga um heimild fyrir rekstraraðila á hafnarsvæðinu til að veita viðskiptavinum sínum gjaldfrjáls bílastæði á P1 út árið 2025 í gegnum útfærslu Parka ehf. Meginmarkmiðið er að styðja ferðaþjónustu á hafnarsvæðinu, efla þjónustu og bæta aðgengi gestum og viðskiptavinum.



Bæjarráð samþykkti, á 35. fundi sínum, að styðja við ferðaþjónustu á hafnarsvæðinu með því að veita ferðaþjónustuaðilum í veitingarekstri og hafsækinni upplifunarþjónustu heimild til þess að veita viðskiptavinum sínum gjaldfrjáls bílastæði á P1 út árið 2025 með útfærslu sem er í boði í gegnum Parka Lausnir ehf.



Bæjarráð vísaði að öðru leyti áframhaldandi gjaldtöku og fyrirkomulagi hennar til umfjöllunar hjá atvinnu- og nýsköpunarnefnd. Í framhaldi af þeim fundi verði haldinn sameiginlegum fundur fulltrúa sveitarfélagsins með ferðaþjónustuaðilum, FAS og öðrum hagsmunaraðilum varðandi útfærslu á gjaldtöku.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd tók, á 6. fundi sínum, framlagða tillögu til umræðu. Nefndin tók undir að gjaldtakan á hafnarsvæðinu sé mikilvægur þáttur í uppbyggingu og viðhaldi þeirra innviða sem þjónusta ferðamenn. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu um að styðja við heimild rekstraraðila til að veita viðskiptavinum sínum gjaldfrjáls bílastæði, enda sé slíkt úrræði skynsamleg leið til að styðja við ferðaþjónustu á hafnarsvæðinu í ljósi gjaldtökunnar.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd tók jafnframt undir að nauðsynlegt sé að boða til sameiginlegs fundar með ferðaþjónustuaðilum, FAS og öðrum hagsmunaaðilum til að móta framtíðarfyrirkomulag gjaldtöku á hafnarsvæðinu.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu atvinnu- og nýsköpunarnefndar.

30.Samningur við Snæfell

Málsnúmer 1905032Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni formanns UMF Snæfells um endurskoðun á samningi félagsins við sveitarfélagið.



Bæjarráð vísaði, á 38. fundi sínum, tillögum að breytingum á samningnum til umfjöllunar hjá nefndinni.



Æskulýðs- og íþróttanefnd lagði, á 5. fundi, áherslu á mikilvægi þess starfs sem unnið er hjá UMF Snæfell og mikilvægi þess að styðja vel við það starf. Nefndir taldi mikilvægt að vinna málið áfram í samvinnu við félagið með þeim áherslum sem ræddar voru á fundinum, svo sem hvað það felur í sér að vera fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Hvað er það sem félagið uppfyllir nú þegar og hverju þarf að bæta við. Varðandi aðra liði telur nefndin að félagið, skólinn og íþróttamiðstöðin geti auðveldlega fundið lausn á þeim málum.



Nefndin fól formanni að koma því sem rætt var á framfæri við bæjarráð.
Bæjarráð óskar eftir nánari upplýsingum og rökstuðning frá Snæfell varðandi 20% aukningu á fjárframlagi og hvað það felur í sér að vera fyrirmyndarfélag ÍSÍ með vísan til bókunar æskulýðs- og íþróttanefndar.

Bæjarráð vísar málinu til frekari vinnslu þar til nánari upplýsingar liggja fyrir.

31.Stefna í íþróttamálum m.t.t. uppbyggingar íþróttatengdra mannvirkja

Málsnúmer 1905025Vakta málsnúmer

Málið var tekið til umræðu, á 5. fundi æskulýðs- og íþróttanefndar, í samræmi við hlutverk hennar samkvæmt erindisbréfi.



Æskulýðs- og íþróttanefnd fagnaði þeim mikilvægu framkvæmdum sem fram hafa farið á árinu og lýsir yfir ánægju yfir því hversu vel var tekið í áherslur nefndarinnar við vinnu við fjárhagsáætlun síðasta haust og mikilvægi þess að halda áfram að vera leiðandi og metnaðarfull í íþrótta og tómstundastarfi.



Æskulýðs- og íþróttanefnd lagði áherslu á mikilvægi þeirra verkefna sem tómstunda- og æskulýðsfulltrúi gerði grein fyrir á fundinum.



Æskulýðs- og íþróttanefnd lagði jafnframt áherslu á mikilvægi þess að gert verði ráð fyrir stefnumörkun stafshópsins í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins til skemmri og lengri tíma.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu æskulýðs- og íþróttanefndar.

32.Barnvæn Sveitarfélög

Málsnúmer 2510023Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá UNICEF á Íslandi sem hefur nú opnað fyrir umsóknir um þátttöku í verkefninu Barnvæn sveitarfélög.



Bæjarráð vísaði erindinu, á 37. fundi sínum, til umsagnar í æskulýðs- og íþróttanefnd og ungmennaráði.



Æskulýðs- og íþróttanefnd tók, á 5. fundi sínum, jákvætt í erindið, en taldi að farsælast yrði ef sveitarfélögin á Snæfellnsesi myndu vinna saman að þessu verkefni og í því sambandi gæti verið skynsamlegt að tengja það við farsæld barna.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu æskulýðs- og íþróttanefndar.

33.Kallhamar og Hamraendar - Skipulagsáætlanir (ASK)

Málsnúmer 2206035Vakta málsnúmer

Lögð fram samantekt umsagna og athugasemda sem bárust á auglýsingatíma, ásamt tillögu að svörum nefndarinnar. Bæjarstjórn samþykkti á 35. fundi sínum þann 28. apríl 2025 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólms 2002-2022 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2012. Tillagan var auglýst frá 24. september til og með 5. nóvember 2025. Opið hús var haldið í Ráðhúsinu þann 21. október 2025. Á 35. fundi skipulagsnefndar var farið var yfir þær umsagnir og athugasemdir sem bárust við auglýsingu aðalskipulagsbreytingarinnar.



Á 37. fundi skipulagsnefndar var lögð fram samantekt umsagna og athugasemda sem bárust á auglýsingatíma í samræmi við 31. gr. skipulagslaga. Einnig eru lögð fram uppfærð skipulagsgögn þar sem brugðist er við athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma.



Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að svörum við umsögnum og endanlegri tillögu að aðalskipulagsbreytingu.



Skipulagsnefnd lagði til við bæjarstjórn að samþykkja aðalskipulagsbreytinguna og að bæjarstjórn mælist til þess við Skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að svör við umsagnir og athugasemdir verði staðfest.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.

34.Kallhamar og Hamraendar - Skipulagsáætlanir (DSK)

Málsnúmer 2206035Vakta málsnúmer

Lögð fram samantekt umsagna og athugasemda sem bárust á auglýsingatíma deiliskipulagstillögunnar, ásamt tillögu að svörum nefndarinnar. Bæjarstjórn samþykkti á 35. fundi sínum þnn 28. apríl 2025 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi annars vegar Kallhamar og hins vegar Hamraenda, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2012.



Tillögurnar voru auglýstar frá 24. september til og með 5. nóvember 2025. Opið hús var haldið í Ráðhúsinu þann 21. október 2025.



Á 35. fundi skipulagsnefndar var farið var yfir þær umsagnir og athugasemdir sem bárust við auglýsingu deiliskipulagstillögurnar. Skipulagsnefnd fól skipulagsfulltrúa og formanni skipulagsnefndar að boða til fundar með fulltrúum Hamraenda 3 og eftir tilvikum öðrum lóðarhöfum til að fara yfir fyrirliggjandi athugasemdir.



Á 37. fundi skipulagsnefnar var lögð fram samantekt umsagna og athugasemda sem bárust á auglýsingatíma í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. Einnig eru lögð fram uppfærð skipulagsgögn þar sem brugðist er við athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma. Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að svörum við umsögnum og athugasemdir ásamt uppfærðum skipulagsgögnum.



Skipulagsnefnd samþykkti endanlega deiliskipulagstillögu og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagið og að það taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt lagði skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að svör við umsagnir og athugasemdir verði staðfest.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með þeirri viðbót að settir verði skilmálar við lóðir við flugvallaendann í samræmi við svar Isavia ohf. og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.

35.Agustsonreitur - skipulagsbreyting

Málsnúmer 2302009Vakta málsnúmer

Lögð fram samantekt umsagna og athugasemda sem bárust á auglýsingatíma, ásamt tillögum að svörum nefndarinnar. Bæjarstjórn samþykkti 8. maí 2025 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólms 2002-2022 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga og að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

Tillögurnar voru auglýstar frá 24. september til og með 5. nóvember 2025. Opið hús var haldið í Ráðhúsinu þann 21. október 2025.



Á 35. fundi skipulagsnefndar mættu íbúar nærliggjandi lóða og sögðu nánar frá athugasemdum sínum og á 36. fundi nefndarinnar mætti Davíð Pitt, hönnuður skipulagsins, og kynnti fyrir nefndinni uppfærslur og breytingar til að koma til móts við íbúa.



Á 37. fundi skipulagsnefnar var lögð fram samantekt umsagna og athugasemda sem bárust á auglýsingatíma í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. Einnig voru lögð fram uppfærð skipulagsgögn þar sem brugðist er við athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma. Gerð var breyting á deiliskipulagi Agustsonreitar til að koma til móts við athugasemdir og ábendingar sem bárust á auglýsingatíma. Vísast til fyrirliggjandi ganga í því sambandi.



Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að svörum við athugasemdum og umsögnum ásamt uppfærðum og endanlegum skipulagsgögnum aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulags.



Skipulagsnefnd lagði til við bæjarstjórn að samþykkja aðalskipulagsbreytinguna og að bæjarstjórn mælist til þess við Skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ennfremur lagði skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulag Agustsonreitar með þeim breytingum sem gerðar hafa verið og að það taki gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Jafnframt lagði skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að svör við umsagnir og athugasemdir verði staðfest.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.

36.Birkilundur - nýtt deiliskipulag 2024

Málsnúmer 2209002Vakta málsnúmer

Óskað er eftir því að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Birkilundar í landi Saura er varðar Birkilund 37 og 38, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Á 37. fundi skipulagsnefndar samþykkri nefndin óverulega breytingu á deiliskipulagi Birkilundar i landi Saura er varðar Birkilund 37 og 38, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Deiliskipulagsbreytingin er gerð til að samræma deiliskipulag og stofnskjöl lóðanna. Skipulagsnefnd fól skipulagsfulltrúa að ganga frá málinu.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

37.Umsókn um skipulagsbreytingu Laufaásvegur 4

Málsnúmer 2511016Vakta málsnúmer

Óskað er eftir því að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Stykkishólms er varðar Laufásveg 4, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða breytingu á byggingarreit fyrir bílskúr og nýjan byggingarreit fyrir sólskála.



Á 37. fundi skipulagsnefndar frestaði nefndin málinu og óskaði eftir málsettum gögnum byggingarreits ásamt fjarlægð að lóðarmörkum.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

38.Þvervegur 12, lóð

Málsnúmer 2511015Vakta málsnúmer

Eigandi Þvergötu 12 stendur í því að hanna lóð sína og þá kom í ljós að stígur, sem í gildandi deiliskipulagi er utan lóðar, reynist vera innan hennar. Óskar eigandi eftir samvinnu við sveitarfélagið varðandi lóðina. Eigandi er viljugur til að gefa eftir hluta af lóð í brekku sem snýr að opnu svæði og fá í staðinn svæði sem snýr í norður.



Á 37. fundi skipulagsnefndar tók nefndin jákvætt í erindið og fól skipulagsfulltrúa að útbúa lóðarblað þar sem stígur er utan lóðarmarka.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

39.Samstarf um uppbyggingu í Víkurhverfi

Málsnúmer 2401022Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkti, á 39. fundi sínum, að hefja viðræður við Skipavík ehf. um samstarf um skipulag og uppbyggingu íbúðarhúsnæðis vestan Borgarbrautar í Víkurhverfi á grunni fyrirliggjandi gagna. Bæjarstjórn vísaði samningaviðræðum við Skipavík ehf. til vinnslu í bæjarráði og lagði til samráð við skipulagsnefnd um skipulagshluta samningsins. Þá óskaði bæjarstjórn þess að fulltrúar Skipavíkur ehf. fengju sem fyrst tækifæri til þess að kynna áform sín og hugmyndir nánar á sameiginlegum fundi bæjarráðs og skipulagsnefndar. Á 36. fundi bæjarráðs mættu fulltrúar Skipavíkur ehf. til fundar við bæjarráð og gerðu grein fyrir áætlunum sínum. Bæjarráð fól bæjarstjóra að leggja grunn að drögum að samkomulagi í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir bæjarráð.



Í samræmi við ofangreint eru lögð fram drög að samkomulagi milli sveitarfélagsins og Skipavíkur ehf.
Bæjarráð samþykkir að haldinn verði sameiginlegur vinnufundur með fulltrúum skipulagsnefndar og bæjarstjórnar þar sem línur sveitarfélagsins verða lagðar og í framhaldi af þeim fundi muni bæjarráð funda ásamt formanni skipulagsnefndar með fulltrúum Skipavíkur ehf.

40.Milliuppgjör - Október 2025

Málsnúmer 2512004Vakta málsnúmer

Lagt fram milliuppgjör frá októbermánuði þessa árs.
Lagt fram til kynningar.

41.Gjaldskrár 2026

Málsnúmer 2510019Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að gjaldskrám sveitarfélagsins fyrir árið 2026.



Bæjarráð samþykki gjaldskrár, á 37. fundi sínum, og vísaði þeim til fyrri umræðu í bæjarstjórn.



Bæjarstjórn samþykkti, á 41. fundi sínum, gjaldskrár fyrir Sveitarfélagið Stykkishólm fyrir árið 2026 og vísaði þeim til frekari umfjöllunar í bæjarráði, umsagnar í fastanefndum og til síðari umræðu í bæjarstjórn.



Bæjarráð vísaði, á 38. fundi sínum, málinu til frekari vinnslu í bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrár og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarstjórn.

42.Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms 2026-2029

Málsnúmer 2510020Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun 2026-2029 lögð fram til síðari umræðu.



Bæjarráð samþykkti fjárhagsáætlun 2026-2029, á 37. fundi sínum, og vísaði henni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.



Bæjarstjórn samþykkir að útsvar hjá Sveitarfélaginu Stykkishólmi verði 14,97% á árinu 2026.



Bæjarstjórn samþykkti, á 41. fundi sínum, fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms fyrir árin 2026-2029 og vísaði henni til frekari umfjöllunar í bæjarráði, umsagnar í fastanefndum og til síðari umræðu í bæjarstjórn.



Bæjarráð vísar málinu, á 38. fundi sínum, til frekari vinnslu í bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir fjárhagsáætlun 2026-2029 og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarstjórn.

Fundi slitið - kl. 18:43.

Getum við bætt efni síðunnar?